Dagblaðið - 29.07.1981, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981.
15
rttir
Iþróttir
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
i sin.
Mlli
- ,
ukeppnina
baki þeim
ögmundur var Þrótt-
urum erfiður í gær
— þegar Fylkir hirti stig af Þrótti í markalausu jaf ntef li
Vonir Þróttara um sæti í 1. deild á
næsta ári biðu alvarlegan hnekki i gær-
kvöld er þeim tókst ekki að brjóta hina
margrómuðu Fylkisvörn á bak aftur
þrátt fyrir góð tilþrif. Reyndar komust
þeir í siðari hálfleiknum einum þrisvar
sinnum i upplögð færi en tvivegis varði
Ögmundur Kristinsson frá framherjum
liðsins og siðan lyfti Sverrir Brynjólfs-
son knettinum yfir þverslá þegar
auðveldara virtist að skora.
Fyrri hálfleikurinn var næsta jafn
en Þróttarar léku þó mun betur og
höfðu undirtökin án þess þó að fá nein
veruleg færi. Fjör færðist hins vegar
ekki í leikinn fyrr en síðasta stundar-
fjórðunginn. Fyrst komst Páll Ólafsson
í dauðafæri eftir að hafa sólað alla vöm
Best sagði nei takk!
George Best, sem þessa dagana I neitað tilboði Boltin Wandcrers, sem
spókar sig í sólinni með San Jose honum bauðst fyrir skemmstu. Segist
Earthquakers í Kaliforníu í bandarísku Best hafa það svo gott í Ameríkunni að
knattspyrnudeildinni á milli þess sem hann vilji ekki fyrir nokkurn mun snúa
hannbregðurséráMcDonald’s, hefur | aftur í ensku deildina.
Þrír fengu
2 leikja bann
Þrfr leikmenn fengu 2ja leikja bann
á fundi aganefndar i gærkvöld. Hafþór
Sveinjónsson, Fram, fékk bann i tvo
leiki vegna 15 refsistiga, Jón Björns-
son, ÍBÍ, einnig tvo leiki vegna 15
refsistiga og loks fékk Einar Friðþjófs-
son, Skallagrími, tveggja leikja bann
vegna refsistiga.
Fjórir leikmenn fengu eins leiks
bann. Gunnar Andrésson, Haukum,
vegna útafreksturs, Jón G.B. Jónsson,
Reyni, Kristinn Petersen, Óðni, vegna
útafreksturs og Örn Guðmundsson,
Þór, vegna 10 refsistiga eins og Jón
G.B. Jónsson.
-SSv.
Enn straumur
milli félaga
— miklu meiri en nokkru sinni áður
Það er ekkert lát á félagaskiptum í
knattspyrnunni — hreyfing miklu meiri
I ár en nokkru sinni fyrr. Stjórn Knatt-
spyrnusambands íslands þarf að
samþykkja félagaskiptin og á tima-
bilinu frá 6. maí til 18. júní voru sam-
þykkt félagaskipti 85 manna. Þekkt-
ustu leikmenn þar eru Jóhann Torfa-
son og Kristinn Atlason, sem komnir
eru frá Svíþjóð og Sverrir Herbertsson.
Hér á eftir fer listi yfir félagaskiptin.
Olafur Ólafsson úr Val R. i Tindastól.
Gunnar Herbertsson úr Þór Þ. í Þrótt R.
Þóröur Ólafsson úr Reyni S. í Eilíf.
Samúel Grytvik úr Val R. í FH.
Andrés Ólafsson úr í A í Skallagrim.
J.A.M. Campos úr KA- i Árroöann.
Pétur G. Pétursson úr Snæfelli í U.M.F. Grinda-
víkur.
Þorfinnur Hjaltason úr Þrótti R. í Val R.
Þorsteinn Magnússon úr FH í ÍR.
Þröstur Jensson úr UBK i ÍR.
Kjartan Jónsson úr Leikni i Selfoss.
Halldór Stefánsson úr KA i U.M.F. Hauka.
Viðar Arason úr Reyni S. í Snæfell.
Jón Magnússon úr Njarðvík í Reyni S.
Friðrik Á. Þorvaldsson úr Austra i Snæfell.
Haraldur Haraldsson úr Austra — opið.
Þorgils Arason úr Austra í Létti.
Orri Harðarson úr Leikni F. i ÍK.
Kolbrún Jóhannsdóttir úr FH í Val.
Viðar Gunnarsson úr UBK í ÍK.
Magnús Jónatansson úr Magna i KS.
öm Guðmundsson úr UBK í Reyni Hn.
Oddur Óskarsson úr Þór Ak. í KS.
Valþór Þorgeirsson úr Þrótti N. í Þór. Ak.
Jóhann Torfason úr ÍK Heid i ÍBÍ.
Agúst Guðmundsson úr Fylki í ÍR.
Magnús Kristjánsson úr Fylki í ÍR.
ólafur Jensson úr UBK í lR.
Sigurður Þór Kristjánsson úr Óðni i Hött.
Steinar Tómasson úr Austra í Aftureldingu.
ólafur Ragnarsson úr U.M.F. Selfoss í Huginn.
Hreinn Ólafsson úr Val Reyðarf. i Hött.
Magnús Þorvaldsson úr Árroðanum — opið.
Heimir Guðmundsson úr Fram i Þrótt R.
Hannes Ó. Leifsson úr Þór V. í Ármann.
Ingvar H. Ágústsson úr Vestri i Reyni Hn.
Grétar Sigurbjörnsson úr KA í Snæfell.
Einar K. Pálsson úr UBK i Stjömuna.
Sölvi Ingólfsson úr Þrótti í Þór Ak.
örn Bjarnason úr FH l Val R.
Ólafur Á. Gíslason úr Leikni F. i Tindastól.
Gunnar Sigurðsson úr Skallagrími í Leikni R.
Jón Jóhannesson úr FH í Leikni F.
Júlíus Hjálmarsson úr FH í Leikni F.
Guðmundur Ólafsson úr Snæfelli í U.M.F. Bolung-
arvíkur.
Ingvar Teitsson úr UBK i ÍK.
Reynir H. Hilmarsson úr Fram — opið.
Sveinn M. Ottósson úr UBK í lK.
Friðrik Árnason úr Austra í Snæfell.
Jón Óttarr Karlsson úr Fylki í ÍK.
Guðmundur Kjartansson úr Val i FH.
Rúnar Georgsson úr Orrebro i Reyni H.
Guðlaugur Kristinn Bergsson úr Víking í Ármann.
Stefán Garðarsson úr Leikni F. í Þór Þ.
Óskar Jóhannesson úr Fram i Stjörnuna.
Hilmar Hilmarsson úr Val i Fram Skagastr.
Ingólfur Hannesson úr Gróttu — opið.
Magnús Guðmundsson úr Val Reyðarf. í Hött.
Ómar Bogason úr Sindra í Hött.
Viðar Gylfason úr Þrótti R. i Reyni H.
Valþór Brynjarsson úr Eflingu í Reyni Ár.
Þorsteinn Guðjónsson úr Val í Reyni H.
Viðar Ólafsson úr Einherja í Hött.
Hjörtur Þór. Frimannsson úr Hetti i Hugin.
Valur Sveinbjörnsson úr Val — opið.
Eyjólfur Skúlason úr Austra i U.M.F. Borgarf.
Jón Ólafsson úr Þrótti R. — opið.
Þorbjörg Albertsdóttir úr Fram í KR,.
iHannes Sigmarssoiúr Haukum — opið.
Þórir V. Þórisson úr Leikni R. i KS.
Jón Óskar Sólnes úr Gróttu í Val R.
Jóhanna Ásmundsdóttir úr Völsungi í KR.
Oddur S. Jakobsson úr Þrótti R. í Reyni H.
Magnús ólafsson úr Víkingi R. í Hörð.
Björn R. Ingólfsson úr KFK i UMFK.
Sigurður Björgvinsson úr KFK i UMFK.
Björgvin A. Björgvinsson úr sænsku félagi í Víði.
Sigrún Blomsterberg úr FH í KR.
Konráð Árnason úr óðni i UMF Grundarfjarðar.
Kristinn Atlason úr Sírius í Fram.
Kristján Kristjánsson úr Haukum — opið.
Sigurður Páll Óskarsson úr Gróttu í KR.
Jón Óðinn Óðinsson úr Þór. Ak. i Hugin.
Magnús Guðmundsson Val Reyðarf. í Hött.
Þorvaldur Þórðarson úr Stjörnunni í Sindra.
Sverrir Herbertsson úr KR-opið.
Hjólað f rá Keflavík
— hjólreiðaíþróttinni vex fiskur um hrygg
Hjólreiðaíþróttinni hefur vaxið ört
fiskur um hrygg á undanförnum
mánuðum og nú er svo komið að farið
er að halda keppnir og var t.d. ein slík
haldin um sl. helgi með þátttöku 35
manns.
Um næstu helgi er ætlunin að halda
aðra hjólreiðakeppni og hefst hún kl.
10 á sunnudagsmorgun í Keflavik og
lýkur við Kaplakrikavöll í Hafnarfirði.
Keppt verður í þremur flokkum karla
svo og kvennaflokki. Fyrst ber að telja
flokk 13—14 ára, þá flokk 15—16 ára
og loks flokk 17 ára og eldri, auk
kvennanna. Verðlaunaafhending fer
fram I Hollywood um kvöldið kl. 20.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru
beðnir að snúa sér til Ásgeirs Heiðars 1
sima 12136 eða 25641.
-SSv.
Fylkis upp úr skónum, en Ögmundur
varði vel frá honum. Því næst komst
Baldur Hannesson í dauðafæri en
Ögmundur varði frá honum af örstuttu
færi — vel gert. Loks kom svo áður-
nefnt færi Sverris.
Er rúm hálf mínúta var til leiksloka
komst Hörður Guðjónsson inn fyrir
vörn Þróttar, lék á markvörðinn og gaf
svo þvert fyrir markið á Birgi Þórisson.
Hann lagði knöttinn fyrir sig en tókst
samt ekki að skora því varnarmaður
Þróttar blandaði sér skyndilega í málið.
-SSv.
Staðan í 2. deildinni eftir leikinn í
gær:
isafjörður 11 7 3 1 16- -8 17
Keflavík 11 7 2 2 20- -7 16
Þróttur, R. 12 5 5 2 12- -4 15
Völsungur 11 4 5 2 16- -12 13
Reynir 11 4 5 2 11- -8 13
Fylkir 12 4 3 5 12- -13 11
Skallagrímur 11 2 3 6 7- -12 7
Þróttur, N. 11 2 3 6 9- -15 7
Selfoss . 11 2 3 6 5- -14 7
Haukar 11 1 4 6 9- -24 6
M
Ögmundur Kristinsson.
Enn met
Þrátt fyrir að methafinn, Bill Paul,
frá Bandaríkjunum hafi ekki komizt í
úrslitasundið í 200 metra flugsundi á
stúdentaleikunum í Rúmeniu i gær
kom það ekki í veg fyrir að nýtt met
væri sett.
Sergei Fesenko frá Sovétríkjunum
snerti bakkann eftir 200 metrana á
2:01,86 mín. og setti þar með nýtt met.
Leventc May frá Kanada varð annar á
2:04,75 mín. og þriðji Serguei Kisselev
frá Sovétríkjunum á 2:04,85.
Sigurvegararnir úr J&B mótinu á Selfossi.
33 A FYRSTA GOLF-
MÓTISELFYSSINGA
—Smárí Jóhannsson sigurvegari
Fyrri laugardag fór fram fyrsta I voru alls 33 og sigurvegari varð Smári
golfmótið á Alviðru-golfvellinum á Jóhannsson, GOS. Ársæll Ársælsson
Selfossi. Var það J& B mótið og var sigraði með forgjöf.
keppt með og án forgjafar. Keppendur |
LAUGAHÁTÍÐ HSÞ
— Þingeyingar vilja víkja kynslóðabilinu burt
Héraðssamband S-Þingeyinga efnir
nú í ár eins og undanfarin ár til
Laugahátíðar um verzlunarmanna-
helgina, eða frá föstud. 31. júlí til
sunnud. 2. ág.
Að venju verður vandað til dag-
skráratriða og alls undirbúnings svo að
sem flestir megi þar finna eitthvað við
sitt hæfi og líða sem bezt í því fagra
umhverfi er Laugastaður býður upp á.
Forráðamenn þessarar samkomu
hafa leitazt við að skapa það öryggi er
til þarf, þar sem unglingar hafa sótt
þessa skemmtun að miklum meirihluta.
Stjórn HSÞ vill að þessu sinni hvetja
alla uppalendur til að leita skemmtunar
með börnum sínum, víkja burt
kynslóðabilinu og taki þátt í þeirra
gleði af þeim skilningi er hæfir
/5
Sigurður
Sverrisson
fullorðnu fólki.
Það er einlæg von Laugahátíðar-
nefndar að Laugahátíð ’81 megi sýna
og sanna að hægt er að halda
skipulagðar fjöldasamkomur, þar sem
sönn hátíð ríkir meðal þátttakenda.
Síðasta
námskeið Vals
Nú er aðeins eftir citt námskeið á
vegum knattspyrnuskóla Vals sumarið
1981. Hefst það 4. ágúst og stendur til
17. ágúst.
Sem fyrr verður námskeið fyrir þátt-
takendur sem fæddir eru 1972 eða
síðar, haldin frá 10—12, en fyrir þátt-
takendur 1972 og fyrr verða milli 13 og
15 daglega.
Margt verður til skemmtunar, s.s.
fótbolti, knattþrautir, videoo.fl. Leið-
beinendur: Ólafur Magnússon, Njál!
Eiðsson, Brynjar Níelsson.
Innritun verður I slma 11134 næstu
daga. Þátttökugjald er kr. 180,00.
Hafa skal það er
sannara reynist
— Bolvíkingar ekki sáttir við skrif Ólaf svíkur-Víkinga
Vegna skrifa um leik Bolvíkinga og
Ólafsvíkinga i Bolungarvík vilja
aðstandendur Bolungarvíkurliðsins
taka fram eftirfarandi:
Skv. staðfestingu frá starfsmanni
mótsnefndar KSÍ er það ekki hlutverk
heimaliðs að útvega dómara heldur að
útvega linuverði og sjá um að leikvöllur
sé undirbúinn. Má taka fram að KSÍ
hefur ráðið mann til að sjá um að út-
vega dómara í 3ju deildarleiki á Vest-
fjörðum.
I umrætt skipti, þegar í ljós kom að
dómari hafði ekki mætt, var um þrjá
valkosti að ræða.
1. Að aðkomuliðið sneri aftur án þess
að leika leikinn þrátt fyrir að hafa
lagt í gífurlegan kostnað.
2. Að heimamaður úr Bolungarvíkur-
liðinu sem reynslu hefur I að dæma
dæmdi leikinn.
3. Að kalla til dómara á staðnum með
minni reynslu.
Eftir að hafa haft samráð við starfs-
mann mótanefndar samþykktu bæði
liðin þriðja valkostinn, með vitund og
samþykki fulltrúa mótanefndar, enda
skildu heimamenn að aðkomuliðið
hafði lagt í ærinn kostnað. Skv.
upplýsingum KSÍ mun það ekki á neinn
hátt standa straum af aukakostnaði
sem til fellur ef endurtaka þarf leik
vegna þess að dómari hefur ekki mætt.
Ábending frá starfsmanni móta-
nefndar um að gera athugasemdir
vegna þessarar ráðstöfunar á
leikskýrslu fyrir leik var báðum
aðilum gerð kunnug.
Hvorugur aðili gerði slíka athuga-
semd.
Forráðamenn Víkingsliðsins fóru
fram á að annar línuvarða yrði frá
þeim og var það samþykkt.
Aðalregla okkar f leik er að bera
virðingu fyrir andstæðingum og
dómara og hefur enginn bolvlsku
leikmannanna fengið að sjá gult eða
rautt spjald það sem af er keppnistíma-
bilinu — og mættu Víkingar gjarnan
venja sig af stóryrðunum og taka nýja
stefnu.
Sú hegðun að kasta lausum hlutum í
átt að leikmönnum er ekki til fyrir-
myndar, hvort sem það er í Bolungar-
vik eða Ólafsvík.
Varðandi lengd leiksins er hið rétta
að þegar flautað var til leiksloka var
leiknum að fullu lokið og hafði þá
dómari bætt við 2. mín. vegna tafa.
Við hörmum að leikmenn Víkings
gátu ekki haft stjórn á skapi sínu að
leiknum loknum og gerðust sekir um
mikið ósóma atvik sem áður hefur
komið fram.
Varðandi ummæli um þjálfara
Bolvikinga vísum við þeim algerlega á
bug. Hins vegar kom til hans kasta að
skilja á milli tveggja leikmanna, sinn úr
hvoru liðinu, er þeir fóru í hár saman,
einnig að koma dómara á „óhultan”
stað er Víkingar réðust að honum.
Með vinsemd.
Aðstandendur og
leikmcnn knattspyrnudeildar
Ungmennafélags
Boiungarvikur