Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.07.1981, Qupperneq 16

Dagblaðið - 29.07.1981, Qupperneq 16
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981. Hjörtur með ijöoaböKina stna: „part ao selja á annað hundrað bækur til að klára prentunarkostnaðinn.” DB-myndir: Sig. Þorri. Arnaldur Arnarson gitarleikari. Hann stundar nú tónlistarnám i Manchester i Englandi. Amaldur Amarson keppir við fimmtíu beztu ungu gítar- leikara heimsins Arnaldur Arnarson er einn af fimm- tíu heimsins beztu gítarleikurum af yngri kynslóðinni sem hefur verið val- inn til að taka þátt í fyrstu alþjóðlegu Segovia samkeppni gítarleikara. Hún verður haldin dagana 9.—14. október næstkomandi í Leeds kastala í Kent sem reistur var árið 1119, um svipað leyti og Hrói höttur skelfdi auðkýfinga í Skírisskógi. Alþjóðleg dómnefnd undir forystu hins heimsþekkta gítarleikara Andres Segovia mun skera úr um hæfni gítar- leikaranna f tilkynningu frá aðstand- endum keppninnar segir að verðlaunin, sem eru í boði, séu hin hæstu í sambærilegum keppnum. Heildar- upphæð verðlaunanna er 6.450 sterlingspund sen nemur um 90.300 íslenzkum krónum. Auk þess stendurj sigurvegaranum til boða margvíslegur heiður. Arnaldur Arnarson er 22ja ára gam- all, búseltur 1 Mnn hester í Englandi. Hann hóf tónlistarnám tiu ára gamall. Frá ellefu ára aldri til átján ára aldurs lærði hann á gítar hjá Tónskóla Sigur-; sveins og lauk þz.’-.n prófi árið 1977. Hann hefur ví ða komið fram, bæði á sviði, í útvaipi og sjónvarpi. Keppi- nautar Arnalds eru á aldrinum sautján ára til þrítugs. Flestir þeirra koma frá Englandi ng Bandaríkjunum. Aðeins einn annar keppandi kemur frá Norðurlöndunum, Daninn Jesper Lutzhoft. -AT Á neðrí hæðinni I Dalbæ hefur Hjörtur til umráða tvö litil herbergi sem hann notar til að binda f bælcur. A borðinu standa nokkrir ár.gangar af norðlenska menningarritinu Súlum. Hann var að binda Súlurnar inn fyrir Ingva á Bakka. Skáldog útgefandi á eftirlaunaaldri: „ Guðjón hvatti mig til að gefa Ijóðabókina út” — segir Hjörtur Björnsson frá Vökuvöllum, vistmaöur í Dalbæ á Dalvík. við ljóðagerð. Bókin hefur að geyma sýnishorn af því sem hann hefur ort um dagana. Miklu meira á hann í möppu sem er geymd í hillu í herberginu. Börn- in hans báðu hann að taka saman sýnis- horn af skáldskapnum. Ætlunin var að láta ljósrita Ijóðin í litlu upplagi. Meira varð úr útgáfunni þegar til kom: bók sá loks dagsins ljós. Hjörtur Björnsson fæddist í Loð- mundarfirði í desember árið 1907 og fluttist til Seyðisfjarðar 1920. Til Akur- eyrar flutti hann 1938 en hafði í milli- tíðinni verið eitt ár á Jótlandi og einnig við nám við bændaskólann að Hvann- eyri. Ætlunin var raunar að fara líka til Þýzkalands að læra raffræði en af því varð ekki. ,,Ég fór heim til Islands og sá ekki eftir þeirri ákvörðun. Allt var að verða vitlaust í Þýzkalandi á þessum tíma.” Nasisminn óð uppi og brátt var skollið á heimsstríð. Hjörtur vann hjá Akureyrarbæ um skeið og síðan í verksmiðjum Sam- bandsins. Hann var jafnframt með smábúskap á Vökuvöllum. Árið 1973 flutti hann að Grund í Svarfaðardal, þegar sonur hans og tengdadóttir hófu búskap á jörðinni. Þaðan lá leiðin að Dalbæ. Þar hefur hann fengið aðstöðu til að binda inn bækur og segist hafa nóg viðaðvera. ,,Ég hef átt við bókbandið síðan ég var stráklingur og lærði iðnina á Akur- eyri af Jakob- Lilliendahl (föður Ing- „Það hafði ekki hvarflað að mér að gefa út bók. Guðjón (Brjánsson for- stöðumaður í Dalbæ) hvatti mig til þess. Útgáfan er óhemju dýr. Ég kosta hana sjálfur og þarf að selja nokkuð á annað hundrað bækur til að klára prentunarkostnaðinn,” sagði Hjörtun Björnsson frá Vökuvöllum við Akur- eyri. Tvö ljóðakver, þúfnakollar — gaman og alvara, heitir lítil ljóðabók sem Hjörtur er nýbúinn að gefa út. Hann er vistmaður í Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvik. Vigdís forseti fékk eitt eintak að gjöf frá höfundi þegar hún heimsótti Dalbæ um daginn: ,,Ég vakti alla nóttina þegar talin voru atkvæði í forsetakosningunum. Gunn- birni var skítkalt á bryggj. unm Gunnbjörn Arnljótsson sagði að sér væri skítkalt. Til að verjast kuldanum dró hann puttana upp í ermarnar og bretti kragann upp undir eyrun. Hann stóð niðri við sjó á Akureyri á dögunum og fylgdist með strákum veiða ufsa á bryggjunni. Gunnbjörn sagðist vera 6 ára og stundum stæði hann sjálfur með veiðistöng á bryggj- unni. Því sagðist hann ekki nenna þann daginn. Lái honum hver sem vill. - ARH / DB-mynd Sig. Þorri. Um morguninn setti ég saman visu og sendi Vigdísi. Nú færi ég henni þessa bók.” Hjörtur kvaðst lengi hafa dundað ólfs apótekara á Dalvík, nú forstjóra i Holtsapóteki í Reykjavík). Jakob var eini lærði bókbindarinn á Akureyri.” FÓLK ATLI RUNAR HALLDÓRSSON

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.