Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.08.1981, Qupperneq 28

Dagblaðið - 19.08.1981, Qupperneq 28
57 flugvirkjar vildu starfa hjá Flugleið- Ulll — lOvoruráðnir Tfu flugvirkjar voru ráðnir til Flugleiða i byrjun þessarar viku. Voru þeir valdir úr hópi 57 umsaskj- enda sem allir höfðu flugvirkja- menntun. Að sögn Más Gunnarssonar, starfsmannastjóra Flugleiða, höfðu allir þeir sem ráönir voru starfs- reynslu við flugvirkjun og enginn skemmri en eins árs reynslu. Nokkrir þeirra höfðu áður unnið hjá Flug- leiðum. -KMU Hvaldeilan að sjatna — starfsmenn virðast sætta sigviðfríin „Ég held að þetta mál sé að róast niður. Menn taka sin fri.'Starfsmenn- irnir á minni vakt virðast flestir sætta sig við þetta. Þeir eru eitthvað harðari á hinni vaktinni,” sagði Valur Sigurðsson, trúnaðarmaður starfsmanna á annarri af þeim tveim vöktum sem eru í Hvalstööinni í Hvalfirði. Starfsmaður á hinni vaktinni, sem DB ræddi við, taldi að þegar á heildina væri litiö væru flestir starfs- menn fylgjandi nýja samkomulaginu. Sagði hann að einstaka menn væru ekkisáttirviðþetta. Fulltrúar frá Vinnueftirlitinu ræddu við starfsmenn sl. laugardag og skýrðu út málin eins og þau litu út frá sjónarhóli Vinnueftirlitsins. Frek- ari fundir hafa ekki veriö boðaðir. - KMU Handtökumálið íSkúlagarði: Vitnaleiðsl- um á Húsavík lokið Vitnaleiðslum á Húsavík vegna handtökumálsins svokallaða er lokið, en Hjörtur O. Aðalsteinsson, fulltrúi f sakadómi, sem skipaður var um- boðsdómari í málinu, hefur haft rannsóknina með höndum. Hjörtur sagöi í samtali við DB að rannsóknin hefði gengið vel en eftir væri þó að ræöa viö liðsmenn hljóm- sveitarinnar Lolu á Seyöisfirði sem viðstaddir voru er forstöðumaður félagsheimilisins Skúlagarðs var handtekinn og fluttur í fanga- geymslur á Raufarhöfn. Sagði Hjörtur að hann myndi taka sér ferð á hendur til Seyðisfjarðar strax upp úr mánaðamótunum og ræða við hljómsveitarmenn. -ESE Á98km hraðaá Kársnesbraut — Sviptur ökuleyfi þegarístað ökumaður var I gær stöðvaður á Kársnesbraut I Kópavogi eftir að lögreglan þar hafði mælt ökuhraða hans 98 km á klukkustund. Var maðurinn færður fyrir fulltrúa fógeta og sviptur ökuleyfi þegar C stað til bráðabirgða þar til mál hans kemur fyrir dóm. Kópavogslögreglan gerir þessa dagana herför gegn of miklum öku- hraöa. Starfaði hún með radartæki I um 3 klst. I gær og stöðvaöi yflr 30 biia sem mældust á 68—98 km hraða. Verður þessum hraðamælingum fram haldið næstu daga. -A.SI. Framkvæmdir hafnar við Sultartanga: „Aðeins undirbún- ingur fyrir vænt- anlegt útboð” —segir aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar „Þama er verið að vinna við undirbúning stiflusvæðis fyrir fyrirhugaða virkjun. Fram fara ýms- ar jarðfræöirannsóknir i sambandi við stiflunina, hreinsun undir þéttikjarna sem felst í því að skurður verður graftnn, um 7 metrar á dýpt og allt að 5 km langur,” sagði Halldór Jónatansson aðstoðarfram- kvæmdarstjóri Landsvirkjunar 1 morgun. er hann var inntur eftir framkvæmdum sem nú standa yfir viö Sultartanga. „Hér er aðeins um að ræða tak- markaðar athuganir á stfflusvæðinu i sambandi viö virkjunina sem reisa á þegar fram í sækir. Verkið mun taka um fimm vikur og verður væntanlega lokiö i mæsta mánuði,” sagði HJJ- dór. Hann var að því spurður hvort taka mætti þessar framkvæmdir sem svo aö Sultartangi verði næsta virkjun sem ráðizt verður í. Ekki sagði Halldór það vera. „Það er stefnt aö þvi að þessari stíflufram- kvæmd verði lokið 1983 og gæti því stiflugerðin verið boðin út næsta haust eða vetur. Málið verður fljótlega tekið til á- kvörðunar 1 stjórn Lands- virkjunar,” sagöi Halldór, ,,en hér er aðeins verið að undirbúa verklýsingu fyrir væntanlegt útboð við stiflu- framkvæmdina.” -ELA. NEITAKK, ENGAN STÖDUMÆU HÉR — og vegfarendur á Skólavörðustíg fjarlægðu hann Borgarbúar eru hœttir að láta bjóða sér allt. Það sýndi sig glögglega I gœr á Skóla- vörðustlgnum. Þangað komu borgarstarfsmenn og settu niður stöðumœla hœgra megin götunnar og svo langt upp á gangstétt að barnavagnar og hjólastólar áttu ekki greiðan aðgang lengur. Ibúar og vegfarendur um Skólavörðustíg létu ekki bjóða sér sllkt fyrirkomulag og það á afmœlisdegi borgurinnar heldur rifu þeir upp nýniðursett- an stöðumœlinn. Margt manna safnaðist við staðinn og furðaði fólk sig á þessum aðgerðum. En eins og áður segir, þá eru horgarbúar heettir aðláta bjóða sér aílt og nú geta börn og fatlaðir afturfarið um Skólavörðustíginn. Nú er bara að sjá hvað borg- arstarfsmennirnir gera... -ELA/DB-myndir Einar Ólason. frjálst, úhád dagblað MIÐVIKUDAGUR19. ÁGÚST1981. Pósturogsími: Allt klárt í skrefatalning- una íhaust - Steingrímur ákveður hvenær talningarvélar skuli gangsettar Skrefatalning símtala á að geta komizt á í haust, nánar tiltekið í októ- bermánuði. Þá verður nauðsynlegum breytingum á tæknibúnaði símstöðva lokið og annar undirbúningur á loka- stigi. ' „Við bjuggumst við að undirbún- ingsvinnu lyki fyrr en vorum ekki að hraða henni með aukavinnu,” sagði Jón Skúlason póst- og símamálastjóri við Dagblaðið. Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra er jafnframt yfirmaður simamála i iandinu. Á hans valdi er að ákveða hvenær talning skuli sett í gang i samræmi við reglugerð þar að lútandi. Sú reglugerð leit dagsins ljós þegar Ragnar Amalds var samgönguráðherra og yfirmaður Pósts og síma. - ARH Engin loðnu- veiði Í4 sólarhringa Engin skip hafa tilkynnt Loðnu- nefnd um afla síðustu fjóra sólar- hringa en 19 skip eru nú á miðunum við Jan Mayen. — Þetta má ekki tregara vera, sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd er DB ræddi við hann í morgun. Andrés sagði að 4 bátar hefðu landaö afla á laugardag á Raufarhöfn og Eski- firði en síðan hefðu engin skip tilkynnt um afla. Gott veður er nú á loðnumiðunum. •ESE Áskrifendur DB athugið Einn ykkar er svo Ijónheppinn að tk að svara spurningunum i leiknum „DB-vinningur f viku hverri”. Nú auglýsum við eftir honum á smáauglýsingasfðum blaðsins f dag. Vinningur I þessari viku er Iff glra Raleigh reiðhjól frá Fálkan- um, Suðurlandsbraut 8 I Reykja- vik. Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir næstu helgi verður einn ykka't, glæsilegu reiðhjóU rikari hressir betur.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.