Dagblaðið - 21.08.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981.
3
„VARÐ FYRIR LÍKAMS-
ÁRÁS ÞRIGGJA DYRA-
VARDA HOLLYWOOD”
RUCANOR
Stærðír 32—47
Verð
kr. 112,—
Hjólaskautar
— skoraráfólkad
kæra slíkt
ofbeldi
umsvifalaust
Magnús Pétursson skrifar:
Ég varð fyrir líkamsárás þriggja
dyravarða skemmtistaðarins Holly-
wood síðastliðið föstudagskvöld, rétt
eftir miðnætti.
Eina ástæðan virtist vera sú, að svo
vildi til að ég stóð fyrir hurðinni,
þegar þeir voru að opna hana í eitt
skiptið af mörgum.
Þeir gripu mig þrír og tóku mig
hengingartaki, þannig að ég missti
meðvitund. Þegar ég rankaði við mér
sátu þeir þrír ofan á mér. Ég spurði
hvort ástæða væri til þess, þar eð ég
lá á grúfu og með hendur bundnar
fyrir aftan bak; vafðar einhvers
konar límböndum i stað handjárna.
Þar ofan á sat einn þessara þriggja
aflraunamanna áfram sem fastast —
hinir tveir létu sig hafa það að standa
upp samkvæmt minni beiðni. Sá
þaulsetnasti tolldi þar til lögreglan
kom.
Vitni ekki spurð
Lögreglumennirnir tóku mig um-
svifalaust og einu lætin, sem ég tók
þátt í, urðu þegar átti að troða mér
inn í lögreglubílinn, án þess að
nokkur vettvangsrannsókn hefði átt
sér stað. Fullyrðingar dyravarðanna
um „drykkjulæti” voru látnar gilda
og enginn viðstaddar var spurður
neins.
Þetta er prýðileg aðferð til þess að
losa sig við aUan framburð vitna en
svo heppilega vildi til að þau skortir
mig ekki. Eru þessir menn svo hátt
settir að þeir séu hafðir yfir lög og
reglur þessa lands?
Er ég kom niður á lögreglustöð,
kom í ljós að fjórar álíka kærur lágu
fyrir á dyraverði Hollywood. Ég gaf
skýrslu og kærði árásarmenn mína
fyrir líkamsárás. Þeirri kæru verður
fylgt eftir og skora ég jafnframt á
aðra, er þessir dyraverðir hafa beitt
ofbeldi, að láta sín kærumál ekki
niður falla. Þessir menn hegða sér
nefnUega alveg eins og þeim sýnist, í
skjóli þess að þeir telja fólk veigra sér
við að gera mál út af slíku, ef það
hefur verið undir áhrifum áfengis.
Ég fór síðan aftur að dyrum HoUy-
wood til þess að reyna að ná tali af
einhverjum yfirmanni skemmti-
staðarins. Enginn yfirmaður var
sagður viðstaddur. Ég stóð þarna
fyrir utan í klukkutíma og ítrekaði
kröfu mína. Auk ofangreinds svars,
um að enginn yfirmaður væri við,
hreyttu þessir menn í mig ónotum.
Þeir sögðust m.a. vel vita hvar ég
ynni, söngluðu sífellt auglýsingalag
fyrirtækis míns og reyndu að hæða
bæði það og mig eftir beztu getu.
Ég hef iðulega orðið var við að
fólk er beitt ofbeldi í Hollywood,
fyrir það eitt að vera drukkið. í
slíkum tilvikum nægir að henda fólki
á dyr. Það er ekki nauðsynlegt að
nýta þessi tækifæri út í yztu æsar og
__f' -4*tina fyrir utan.
Raddbönd mfn
hafa skaddazt
Ég vil láta þess getið að raddbönd
min hafa skaddazt eftir hengingar-
takið og bætzt gæti við kæruna um
líkamsárás.
Undanfarna fjóra daga hef ég ár-
angurslaust reynt að ná tali af fram-
kvæmdastjóra HoUywood, sem ætíð
er sagður ekki vera viðstaddur —
hvenær sem ég hef hringt og hvenær
sem mér hefur verið sagt að hringja
aftur. Það er ástæða þess að ég ákvað
að snúa mér til Dagblaðsins, tU þess
að reynsla mín geti orðið öðrum víti
til varnaðar — og tU þess að brýna
fyrir fólki að kæra slíkt ofbeldi um-
svifalaust.
„Þeir gripu mig þrír og tóku mig hengingartaki, þannig að ég missti
meðvitund,” segir Magnús Pétursson um dyraverði Hollywood. Magnús hefur
kært þá fyrir Ukamsárás. DB-mynd: Einar Ólason.
Laugavegl3
Sími13508
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14-S 21715,23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Þegar þu kaupir
Micronett örbylgjuofninn gerir
þú frábær kaup vegna þess;
að Husqvarna framleiddi sinn
fyrsta örbylgjuofn árið 1954, og er
því með 27 ára reynslu á bak við
sig.
að Husqvama Micronett er í
„réttri stærð”(35 x 55 x 38) þ.e.
hann passar fyrir ofan/neðan
gamla eða nýja Husqvarna ofninn.
Einnig passar hann inn í staðlaðar
innréttingar.
að Husqvarna Micronett er með
örbylgjukerfi, sem dreifir bylgjun-
um jafnt — maturinn hitnar jafn
mikið alls staðar.
* u"uivama Micronett er
ao ______.
. , —n-ar allt
sparneytmn ofn. Hann
að 75% orku, miðað við eðlilega
notkun á eldavél.
að Husqvarna Micronett er
með 10 mismunandi styrkleika á
örbylgjum, þe. frá 165W til
600W. Þá má stilla tímarofa allt
frá 0—30 mín.
Micronett
ör-
ÍKJ
Uusqvarna
, , ’ j •. '* 'onsri botn-
bylgjuofnmn er meo -
plötu, sem auðveldar
honum hreinum.
að verðið á Husqvama Micron-
ett er alveg sérstakt:
Góð matreiðslubók fylgir hverjum ofni.
Missið ekki af tækifærinu.
Kynningarverð
okkar er
aðeins kr. 4.350.
|Við eigum aðeins takmarkað magn á þessu frábæra verði.
Gunnar Ásgoirsson hf, akurvík
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 AKURÉYRI
Ætlar þú að kaupa
Nýtt land, biað
Vilmundar og fólaga?
Carl Nielsen, bankastarfsmaður: Nei,
ég ætla ekki að kaupa það.
4
1
Wm c-’; ipPn érM
eIIiXÁ ’ ' 1
W JmSm f
W,.,ÆtÉf/ 't
Ólafur Ólafsson, verzlunarmaður:
Nei, ég ætla ekki að gera það, enda hef
ég aldrei keypt Alþýðublaðið og kaupi
ekki þetta heldur.
Valtýr Óskarsson, læknanemi: Því
reikna ég ekki með.
Svava Guðmundsdóttlr, húsmóðir:
Nei, ég ætla ekki að kaupa það.
Sæbjörn Guðmundsson, háskólanemi:
Égveitþaðekki.Égefastum það.
Sigurveig Einarsdóttir, húsmóðir: Já,
örugglega. Ég er mjög forvitin að sjá
það.