Dagblaðið - 21.08.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981.
7
Þjófur hafði á brott með sér ferðagjaldeyri og f lugmiða til Stokkhólms en
margir vildu rétta hjálparhönd og fyrirheitna ferðin var farin:
„Kominn í heila
höfn og lagstur
fyrir 2 ankerum"
— segir Sigurjón Kristjánsson, vistmaður á Hrafnistu, nýkominn heim úr
heimsókn til sonardóttur sinnar í Síþjóð
,,Ég get líklega seint þakkað til
fulls öllum þeim sem ýttu mér af stað
og sýndu mér svo mikinn hlýhug.
Eðlilega var ég dálítið sleginn þegar
upp komst að allt var horfið úr
jakkavasanum,” sagði Sigurjón
Kristjánsson vistmaður á einu heimili
aðdraðra á vegum DAS við
Jökulgrunn í Reykjavík. Sigurjón
varð fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu í sumar, að þjófur heimsótti
hann og hafði á brott með sér
veskið hans. Veskið var í jakkavasa
og hafði að geyma skilríki og
peninga. Síðast en ekki sízt voru í
veskinu ávisanir á gjaldeyri og
farseðlar með Flugleiðum til
Stokkhólms. Sonardóttir Sigurjóns
og maður hennar, sem er í framhalds-
námi í læknisfræði, búa þar ásamt
þremur dætrum sínum. Ætlunin var
að heimsækja þau. Sigurjón átti
pantað far af landi brott morguninn
eftir heimsókn þjófsins. Dagblaðið
birti frétt um þjófnaðinn á sínum
tíma og ráðgerði að safna peningum
til að bæta Sigurjóni skaðann svo að
utanlandsferðin dytti ekki upp fyrir.
Þegar fulltrúar blaðsins reyndu að
hafa upp á honum, kom í ljós að
hann var farinn af landi brott. Skjót-
ar hjálparhendur sáu til þess.
,,Ég byrjaði á að hringja til
Svíþjóðar og afboða komu mína. Svo
hafði ég samband við Flugleiðir og
bankann og lýsti því sem gerzt hafði.
Alls staðar var mér undur vel tekið og
allir boðnir og búnir til hjálpar.
Bankinn bauðst til að búa til nýja
ferðatékka, Flugleiðir buðu aðra
flugfarseðla. Og hissa var ég um
kvöldið, eftir að Dagblaðið birti
fréttina, þegar mættir voru heim tveir
kaupmenn, ásamt konum sínum, þeir
Jón Þórðarson í Breiðholtskjöri og
Jón Júlíusson í Nóatúni og viídu
þeir gefa mér gjaldeyri. Annar þeirra
varmeiraað segja með peninga frá
öðrum manni sem ekki vildi láta
nafns síns getið. Ég gat sem betur fer
komizt hjá að þiggja peningagjafir en
það gleður mig að kynnast svo
góðum hug fólks. Sjómannadagsráð
ýtti líka til mín bjarghring, en ég var
sem betur fer ekki sokkinn og er enn
á floti! Líklega verð ég seint
borgunarmaður fyrir þá góðu hugsun
sem mér var sýnd.”
Veskið hans Sigurjóns kom i
leitirnar á dögunum. Það fannst í
póstkassa við Jökulgrunn og í því
týndu skilríkin. Peningarnir voru
hins vegar horfmr.
„Þjófurinn var hugulsamur að
skila mér þessu. Skilríkin eru mér að
vísu ónýt, þar sem ég fékk ný i
millitiðinni. En mér þótti vænt um að
fá myndina af langafastúlkunni
minni í Sviþjóð sem í veskinu var.
Kannski er það henni að þakka að
veskinu var skilað,” sagði Sigurjón
Kristjánsson. Hann ítrekaði þakklæti
til allra þeirra sem vildu rétta honum
hjálparhönd í sumar.
-ARH.
SgSflSIÍÍÍ
.; ‘ , :
j j| v « «
\j
ÍV>J> | ffj
„Við höfum ekkert nema gott um Dagblaðið að segja,” sögðu Sigurjón og Sigriður Ólafsdóttir kona hans. Þau sögðust hafa
aúglýst muni til sölu i blaðinu fyrir 2 árum og þeir seldust á augabragði. Þau hjón búa f húsi á vegum Hrafnistu við
Jökulgrunnið og iáta vel af sér. Eða eins og Sigurjón sagði: „Hér er ég kominn f heila höfh og lagstur fyrir tveimur
ankerum!”
DB-mynd: Gunnar Örn.
Þorsteinn gegnvætti Dagblaðseintak en þurrkaði það á augabragði með raka-
þurrkaranum sænska. Má sjá á biaðinu skilin milli blauta hluta eintaksins og þess
hluta sem hitinn frá tækinu hafði þurrkað aftur. t vinstri hendi er Þorsteinn með minni
rakaþurrkarann. DB-mynd Einar Ólason.
Undratæki til raka-
þurrkunar fáanlegt
— hefur miklu meiri þurrkunarhæfm en
blússlampar en er mun ódýrara í rekstri
Nýtt sænskt undratæki er nú
fáanlegt hér og sá blaðamaður DB
unnið með þvi á dögunum. Er hér um
að ræða tæki til að þurrka raka og
hefur tækið valdið nánast byltingu í
byggingariðnaði og á fjölmörgum
sviðum öðrum, þar sem þurrka þarf
raka áður en viðgerðir geta hafizt.
Tækið er nánast eins og eldvörpur
þær sem fyrst sáu dagsins ljós í síðari
heimsstyrjöldinni. Sænskur
verkfræðingur setti hugmyndina að
þurrktækinu fram en smíði
uppfyndingarinnar var kostuð af
þróunarsjóði Svía í tæknivísindum.
Með sérstakri blöndu af
samanþjöppuðu lofti og hitun næst
miklu betri og dýpri þurrkun raka en
með upphitun einni saman. Hið nýja
tæki er einnig sagt 20% ódýrara í
notkun en blússlampar þeir sem oftast
hafa verið notaðir til þurrkunar hluta
fyrir viðgerðir eða annarrar meðferðar.
Það er vélaverzlunin Nonni sem
selur tækin hér. Eru þau i tveimur
stærðum og kosta rétt um 4 þúsund
krónur. Lítill verðmunur er á
tækjunum þó mikill munur sé á fyrir-
ferð þeirra.
Þorsteinn Jónsson framkvæmda-
stjóri sagði að tæki þessi hefðu þegar
farið sigurför um heiminn. Þau ættu án
efa eftir að koma sér vel við línu- og
kapalviðgerðir hjá símanum og raf-
magnsveitunum, í byggingar-
iðnaðinum, þurrkun tectylryðvarnar á
bílum, þurrkun af völdum vatnsskaða i
eldhúsum og baðherbergjum, skipa- og
bátaviðgerðum og á óteljandi öðrum
sviðum. -A.St.
Höfn Hornafirði:
Allt klárt fyrir síldveiðarnar
Síldarsöltunin getur hafizt hér um
leið og veiðar byrja en undanfarið
hefur verið unnið að miklum endur-
bótum og breytingum á vélum og
búnaði í Sildarsöltunarstöðinni í
Óslandi. Afköst vélanna munu aukast
mjög mikið við þessar breytingar en
þær höfðu ekki undan mannskapnum í
fyrrahaust þegar vel gekk. í síldar-
söltuninni verða um 90 manns i vinnu
en ekki er ennþá búið að semja um laun
þeirra. Verður það væntanlega gert
næstu daga. Þá hefur verið unnið við
marineringu á síld í sumar og verður
því haldið áfram.
{ Stemmu er verið að pakka síðustu
skreiðinni síðan í vetur en hún var 50
tonn. Þeir voru einnig með 350 tonn af
saltfiski sem nú eru farin. Um mánaða-
mótin verður allt tilbúið fyrir síldina í
Stemmu en þar vinna nú 38 konur og
30 karlar.
Loks er nóg að gera hjá útgerðar-
mönnum. Þeir voru að mála og hreinsa
bátana af fullum krafti, auk þess sem
settir voru síldarhristarar um borð og
annað tilheyrandi svo allt yrði klárt,
þegar veiðar hæfust en það var í gær.
-ELA/Júlía Höfn.
Jarðstöð rís á Miðnesheiði
— Aðalverktakarskila henni
til tæknimanna Varnarliðsins
um næstu áramót
„Við skilum stöðinni frá okkur
um eða upp úr næstu áramótum,”
sagði Thor R. Thors forstjóri
íslenzkra aðalverktaka er DB innti
hann eftir hvað liði framkvæmdum
við jarðstöð sem verið er að reisa á
Keflavíkurflugvelli fyrir Varnarliðið.
Aðalverktakar skila verkinu
þannig frá sér að stöðin verði tilbúin
fyrir tæknimenn hersins til að koma
fyrir tækjabúnaði.
Jarðstöð sú sem nú rís mun leysa
af bráðabirgðastöð sem sett var upp
fyrir nokkrum árum. Þeir sem leið
hafa átt um flugstöðina hafa sjálf-
sagt ekki komizt hjá þvi að taka eftir
þeirri stöð. Hún er í norðurátt frá
flugstöðinni og umlykur stór, hvít
kúla sjálfan skerminn.
Hvít kúla mun einnig umlykja
skerm nýju jarðstöðvarinnar. Er slíkt
»
Móttökuskermurinn, til hœgri, beið þess aö
veröa settur á tum mikinn, sem er vinstra
megin á myndinni, þogar DB-menn voru á ferð
á Keflavikurflugvelli sl. miðvikudag. Á bakvið
turninn er stjómbyggingin.
DB-mynd: BjamleKur.
gert m.a. til að vernda skerminn fyrir
vindum.
Jarðstöð Varnarliðsins svipar
mjög til Skyggnis, stöðvar Pósts og
síma við Úlfarsfell. Stór og mikil
bygging rís þó við hlið mót-
’tökuskermsins. Er hún 850
fermetrar að flatarmáli.
Að sögn Helga Ágústssonar
deildarstjóra varnarmáladeildar
utanrikisráðuneytsins, er stöðinni
ætlað að gegna líku hlutverki og
Skyggnir, þ.e.a.s. fjarskiptum. Var
smíði hennar samþykkt af islenzkum
yfirvöldum í október 1978.
-KMU.