Dagblaðið - 27.08.1981, Page 24
Heimkoma strokufangans úr Vestre-fangelsinu:
EKK) í SENDiRÁÐS-
BÍL ÚT Á FLUGVÖLL
—fékk ekki bráðabirgðavegabréf ið fyrr en f f lugvélina var komið
Sendiráð íslands i London stað-
festi við Dagblaðið í morgun að
heimkoma Sigurðar Þórs Sigurðs-
sonar strokufanga úr Vestre fang-
elsinu í Danmörku hefði átt nokkurn
aðdraganda. Hafði hann fyrir
nokkru skrifað bréf til sendiráðsins
og beðið um fyrirgreiðslu á vegabréfi
til þess að komast til íslands.
í framhaldi af þessu kom Sigurður
Þór í sendiráðið fimmtudaginn 20.
ágúst sl. til að fá vegabréfið. Sendi-
ráðið ráðgaðist við utanríkisráðu-
neytið um afgreiðslu málsins og
ákveðið var hvernig afgreiðslu
málsins yrði háttað. Sigurður Þór
beið í sendiráðinu meðan þessu fór
fram og átti samræður við sendiherr-
ann, Sigurð Bjarnason.
Vegabréfið gilti aðeins til eins dags
eða með öðrum orðum aðeins til
ákveðinnar ferðar heim. Sigurður
Þór fékk ekki afhent bráðabirgða-
vegabréfið þegar í stað. Bílstjóri
sendiráðsins ók honum út á flugvöll
og fylgdi honum gegnum vegabréfa-
skoðun og alveg út í flugvél og þar
fékk Sigurður Þór vegabréfið afhent.
Sendiráðið gat einnig staðfest, að
auk þess sem Sigurður Þór gaf sig á.
fyrrgreindan hátt fram við sendiráðið
af frjálsum vilja, með bréfaskriftum
og síðar heimsókn, þá hafði hann
samband við systur sína og hún
greiddi farmiða hans heim. Þann far-
seðil hefði sendiráðið að öðrum kosti
greitt eins og skylda yfirvalda væri í
svonatilvikum.
Sendiráðsmenn hafa siðar furðað
sig á að fíkniefni skuli hafa fundizt á
Sigurði Þór við komu hans til
íslands. Það hefur svo áður komið
.fram að Sigurður Þór framvísaði
ekki við komuna þeim bráðabirgða-
pappírum sem hann fékk í sendi-
ráðinu i London. Lögreglumenn sem
til staðar voru vegna vissunnar um
komu hans báru ekki kennsli á hann,
svo breyttur í útliti þótti hann frá því
er hann síðast yfirgaf ísland.
-A.St.
Það dýriega hestalíf
Þeir nutu blíðunnar, hestarnir sem Gunnar Örn, Ijósmyndari Dag-
blaðsins, kom auga á þar sem þeir lágu í makindum sínum við
Lambhúsatjörn á Alftanesi. Skýjaslœður voru í Esjuhlíðum en varla
hefur áhugi hrossanna beinzt að þeim. Grasið grcena, næringin sem
í því er fólgin, er líklega það sem félagarnir tveir á myndinni hafa
mestan áhuga á.
Gunnar Thoroddsen skipar nefnd til að skoða Framkvæmdastofnun íkrók og kring:
A að kroppa völd af
SverH Hermannssyni?
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra hefur skipað nefnd sem ætlað
er að fara ofan í saumana á starfsemi
og skipulagi Framkvæmdastofnunar
ríkisins. Meðal annars á að kanna
verkefnagrundvöll stofnunarinnar og
gera sér grein fyrir hvernig hún bezt
geti gegnt hlutverki sínu.
Jón Ormur Halldórsson, aðstoðar-
maður forsætisráðherra, er formaður
nefndarinnar. Með honum eru þing-
mennirnir Ólafur Ragnar Grímsson
og Stefán Guðmundsson, Lúðvík
Jósepsson, Bjarni Einarsson, deildar-
stjóri Framkvæmdastofnunar, og
Benedikt Bogason verkfræðingur,
fulltrúi Eggerts Haukdals stjómar-
formanns i Framkvæmdastofnun.
Sverrtr Hrrmannaaon: StJöaawaJauiar pkrmOk á vöédum hnna (Framkvaomdastofnun rftdnint.
DBvnynd EÓ.
Reynt verður að hraða störfum
nefndarinnar sem mest þannig að þau
verði langt komin þegar þing kemur
saman í október. Liklegt þykir að
skoðað verði hvernig breyta megi
stjórnunarfyrirkomulagi Fram-
kvæmdastofnunar þannig að yfir-
menn hennar séu ekki pólitiskt á önd-
verðum meiði við rikisstjórn á
'hverjum tíma. Stjómarsinnar em
meira og meira pirraðir á því að
Sverrir Hermannsson, þingmaður
stjórnarandstöðunnar, skuli hafa svo
mikil völd í Framkvæmdastofnun.
Hann lætur fara vel um sig i for-
stjórastólnum þar á bæ.
- ARH
frjélst, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST1981.
Gunnar Bene-
diktsson
rithöfundur
látinn
Gunnar Benediktsson rithöfundur
lézt á sjúkrahúsi í Reykjavík i gær, 88
ára gamall. Hann skrifaði yfir þrjátíu
bækur um ævina, bókmenntir, sagn-
fræði og stjórnmál en auk ritstarfa
sinna var Gunnar prestur framan af
öldinni og stundaði þess utan verka-
mannavinnu af ýmsu tagi. Hann
skrifaði einnig greinar í fjölda blaða og
timarita og var áður afkastamikili
fyrirlesari sem jafnan vakti mikla
athygli. Hann var dyggur baráttu-
maður fyrir sósialisma á íslandi,
gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir
flokka þeirra og var nokkrum sinnum i
framboði til alþingiskosninga.
Gunnar Benediktsson var tvi-
kvæntur. Eftirlifandi kona hans er Val-
dís Halldórsdóttir.
-ÓV
fTT
SL |\QN a NjN Q jUR
ÍVIKU HVERRi
IDAG
ER SPURNINGIN::
í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu i dag?
Skiðaskór.
Sá sem tók í misgripum skiðaskó
sem ég tapaði er ég var að koma úr
Kerlingarfjöllum 7. ágúst, er
beðinn að hafa samband i sima
31913. Skórnir eru af gerðinni
Nordica nr. 37.
Hver er auglýsingasfmi Dagblaðs-
ins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á FÖSTUDAG
Vinningur vikunnar:
Crown-sett
f rá Radíó-
búðinni
Vinningur i þessari viku er
Crown-sett frá Radíóbúðinni,
Skipholti 19 Reykjavík.
1 dag er birt á þessum stað I
blaðinu spuming, tengd smáaug-
lýsingum blaðsins, og nafti heppins
áskrifanda dregið út og birt I smá-
auglýsingadálkum á morgun.
Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir
nœstu helgi verður einn ykkar
gltesilegu Crown-setti ríkari.
c ískalt
Seven up.
hressir betur.