Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981 — 207. TBL. , RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSlMI 27022.
------[ Hartbariztíávaxtainnflutningnum: ]--
INNFLUTNINGSFYRIRTÆKI
ÞVINGAÐ ÚR VWSKIPTUM
—þýzkurávaxtaheildsalisásigneyddan tilaðskera á viðskiptin vegna
hótana stæni og eldri viðskiptaaðila á íslandi __ sjá baksiðu
" .............................
Vfldngur íslandsmeistari íknattspymu:
Maðurinn sem skóp meistarana
Hann hafði ástæðu til að vera hátt
uppi, vel klæddi herramaðurinn sem
liggur þarna í loftinu. Þetta er Yuri
Sedov, hinn sovézki þjálfari Víkinga
sem i gær urðu íslandsmeistarar í
knattspyrnu er þeir lögðu KR að velli.
Leikmenn Vikings hylltu þjálfara sinn
að loknum sigrinum og tolleruðu
hann enda er Sedov heilinn á bak við
Víkingsliðið.
Aðdáendur Víkings höfðu einnig
gilda ástæðu til að vera uppi í skýjun-
um. Eftirsóknarverðasti titill i iþróttum
hérlendis hafði ekki hlotnazt Víkingum
í 57 ár.
KMU/DB-mynd: Bjarnleifur.
— sjá frekar á íþróttasíðum
Karlakór Reykjavíkur í söngferð:
KANADA OG BANDA-
RÍKIN Á ÞREM VIKUM
Karlakór Reykjavíkur heldur í
mikla söngferð 9. október. Farið
verður um Bandarikin og Kanada á
þrem vikum og haldnir konsertar á 16
stöðum. Kórfélagar fá aðeins tveggja
daga fri frá sönghaldi og feröum.
Að sögn Böðvars Valtýssonar, for-
manns kórsins, verður fyrst haldið til
New York og farið þaðan á austur-
strönd Bandarikjanna. Siðan verður
haldið i norður alla leið til Kanada.
Einsöngvarar með kórnum verða
hjónin Sigurður Björnsson og Sige-
linde Kahman. Stjórnandi er Páll P.
Pálsson og undirleikari Guðrún
Kristinsdóttir. Kórinn ásamt
einsöngvurum, stjómanda og undir-
leikara er um 40 manns en auk þess
fara rúmlega tuttugu eiginkonur kór-
félaga með i ferðina. Ferðin er fjár-
mögnuð með styrktarfélagatón-
leikum sem haldnir verða í Háskóla-
biói 4. og 5. október. Veröur þar flutt
söngdagskrá ferðarinnar. Auk þess
verður efnt til hlutaveltu.
-DS.
Borgarfjarðarbrúin vígð ígær.
„ÞETTA ER
DÁSAMLEG-
UR DAGUR”
— sagði Halldór E. Sigurðsson
„Þetta er dásamiegur dagur,”
sagði Halldór E. Sigurðsson, fyrrver-
andi alþingismaður og samgönguráð-
herra, eftir að Borgarfjarðarbrúin
hafði verið vigð við hátiðlega athöfn i
gær. Ræður voru fluttar við þetta
merkilega tækifæri og tók Snæbjörn
Jónsson vegamálastjóri fyrstur til
máls. Þá talaði Steingrímur Her-
mannsson samgönguráðherra og fól
hann siðan Halldóri E. Sigurðssyni
að vígja brúna. Brúin verður líka
lengstum tengd nafni Halldórs, þvi
hann hreyfði fyrstur manna hug-
myndinni um brúargerð við Seleyri er
hann flutti tillögu þar að lútandi á
Alþingi árið 1958. Borgarfjarðar-
brúin var tekin í notkun í fyrra, en
framkvæmdir við hana hófust 1975.
Að lokinni athöfninni á brúnni héldu
gestir í veizlu mikla þar sem ræður
voru fluttar og skálað fyrir brúnni.
-SA.