Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
Varaðvið spákonu:
Fjárplógsstarfsemi og svindl?
—tekur kr. 100 fyrir og „segir það sama við alla”
Fjórar reiðar skrifa:
Við viljum vara fólk við spákonu í
húsi við Suðurgötu í Reykjavík.
Við erum nokkrar vinkonur sem
höfum gaman af að fara til spákonu
við og við, eins og gengur og gerist.
Annarri eins fjárplógsstarfsemi og
svindli og við urðum fyrir nýlega,
höfum við þó aldrei kynnzt.
Manneskjan leyfir sér að taka kr.
100 fyrir um það bil hálftíma ,,spá-
dóm” — og segir það sama við alla,
með þeim smábreytingum sem fella
Fjórar vinkonur vara fólk við spá-
konu sem segir það sama við alla —
með smábreytingum — að þeirra
sögn.
DB-mynd: Jim Smart.
„spádómana” að aldri fólks og þess
háttar. Og drjúgar tekjur hefur hún
þessi; tekur inn kr. 200 á klukkutíma
og ekki vantar aðsóknina. Þar að
auki er hún sennilega skattlaus að
mestu því hvernig á að fylgjast með
svona starfsemi?
Hér eru nokkur dæmi um þetta
bull hennar:
1) Þú hefur mikla hæfileika og veizt
um nokkra þeirra núna. 2) Þú vinnur
þar sem fólk kemur og fer. Þú annað-
hvort hættir um áramót eða færð
stöðuhækkun. 3) Þúhefur orðið fyrir
sorg. Það getur hafa verið ástarsorg
eða þá að einhver hefur verið veikur.
Þú hefur verið með pilti en einhver
stúlka komst upp á milli ykkar. Það
' er allt bjartara framundan.
Þetta sagði hún við okkur allar
fjórar, hverja fyrir sig. auðvitað.
Næstu tveir þættir áttu að eiga við
þrjár okkar og eru þessir:
4) Þú hefur hitt pilt. Hann er ekki
rauðhærður, heldur skolhærður;
ljósskol- eða dökkskolhærður. 5)
Þetta er mjög góður maður. Þú
verður fljótlega ófrísk, eftir svona 1
ár og ellefu mánuði. Þú vantreystir
þessum manni en barnið tengir ykkur
saman. Hann er vel efnaður. Þið
kaupið mjög fínt hús, eða enda-
raðhús, sem allir öfunda ykkur af.
Við okkur allar fjórar sagði hún
síðan: 6) Hann á bíl sem ekki er
svartur og ekki hvítur en af ein-
hverjum lit þar á milli.
7) Þið búið þar sem fjöll eru á báða
bóga. Þið farið oft til útlanda —
sagði hún við 3 okkar og nokkurn
veginn það sama við hina fjórðu.
Þrjár okkar fengu svo þetta: 8) Þú
missir fóstur en átt eftir að eiga svona
3—4 börn. Og 8) Þú átt eftir að verða
fyrir illu umtali nágranna. Þrjár
fengum við: 9) Þú átt dreng sem þú.
tekur miklu ástfóstri við. Hin fjórða
átti að taka miklu ástfóstri við dreng,
ættmenni sitt.
Við þekkjum fleiri sem hafa orðið
fyrir sömu reynslu og vörum fólk við
að leita til þessarar manneskju.
Dagskrá sjónvarpsins:
„Virðist vera
um of sniðin
fyrirfámenn-
an áhrifahóp”
Flugmaður hringdi:
Ég vinn á fjölmennum vinnustað
og er því vel kunnugt um viðhorf
margra til sjónvarpsdagskrárinnar.
Hún virðist vera um of sniðin fyrir
fámennan áhrifahóp sem á gott með
að koma óskum sínum á framfæri
vegna náinna tengsla við útvarp og
sjónvarp.
Áhugamál þessa fólks virðast al-
gjörlega sitja i fyrirrúmi hvað dag-
skrárgerð varðar. Prýðilegt dæmi um
þetta voru síðastliðin mánudags- og
þriðjudagskvöld sem bæði voru
undirlögð þunglamalegu og löngu
leikriti, Dauðadansinum, eftir
Strindberg.
Meðal annars voru Óvænt endalok
látin víkja, en svo vill til að vafalaust
hefðu mun fleiri kosið að horfa á eitt-
hvað slíkt.
Hér með skora ég á formann út-
varpsráðs, Vilhjálm Hjálmarsson,
fyrrverandi menntamálaráðherra, að
láta fara fram gagngera könnun á
vilja almennings í þessum efnum, því
þolinmæði fólks er á þrotum.
Flugmanni þótti Dauðadans Strind-
bergs vera þunglamalegt og langt
leikrit og vill láta „fara fram gagn-
gera könnun á vilja almennings” I
dagskrárvali.
LPTOFRA-
HSKURINN
Ryksugan sem svífur
Má
-
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogsfyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 lifra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líöur um
gólfiö á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
Eg er léttust...
búin 800Wmótor
og 12 lítra rykpoka
(Made in USA)
Verð
kr. 1399
m
M
HOOVER er heimilishjálp
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
/Pekking
/feynsla
Þjonust#
MEIRIHATTAR
HLJÓMPLÖTUÚTSALAN
Framhald
Sjá bls. 35.
Hjörleifur Guttormsson vélstjóri: Já,
ég er ánægður með útvarpið, nema
þessa þungu tónlist. Ég horfi nú lítið á
sjónvarp, nema fréttir og er ánægður
Spurning
dagsins
Ert þú ónægð(ur)
með dagskrá út-
varps og sjónvarps?
Herdis Ösk Herjólfsdóttir húsfreyja:
Já, svona í meðallagi, en ég hlusta
reyndar lítið á útvarpið.
Sævar Simonarson verkamaður: Ég
hlusta litið á útvarpið en finnst sjón-
varpið veraágætt.
Þórunn Lárusdóttir húsmóðir: Það er
nú það . . . ekki fullkomlega.
Pétur örn Sigurðsson gagnfræðaskóla-
nemi: Já, já, mér finnst þetta ágætt.
Öskar Sverrisson verkfræðingur: Ég
hlusta hvorki á útvarp né horfi á sjón-
varp.