Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
5
NEYÐARBILL — EÐA
SLYSADEILD Á HJÓLUM
—verður næst á dagskrá hjá Reykjavíkurdeild RKÍ
„Hjartabillinn” svonefndi, sá sem hér sést til hægrí, markaði á sfnum tima þátta-
skil i sjúkraflutningum hér. En læknisaðstaðan var aldrei sköpuð né nýtt f bflnum
og hann lauk sinni sögu án þess að vera eiginlega að fullu tekinn I notkun. Til
vinstrí er einn nýju sjúkraflutningabilanna. Þeir eru göðir sem sUkir en geta I engu
keppt við neyðarbil af fullkomnustu gerð eins og næst er á dagskrá RKÍ.
DB-mynd: S.
Næsti nýi sjúkraflutningabillinn,
sem sjást mun á götum höfuðborg-
arinnar, verður með nýju og
fullkomnu sniði — neyðarbíU búin
fuUkomnustu tækjum. Hillir undir
að draumurinn um sUkan neyðarbíl
rætist nú. Sjúkraflutninganefnd hefur
lagt tU við ReykjavíkurdeUd Rauða
krossins hvernig bíU verður keyptur
og hvaða tæki verða í honum.
Val sjúkraflutninganefndar féU á
Ford EconoUne bifreið, sérstaklega
yfirbyggða. Verður afturhluti bif-
reiðarinnar með upphækkuðu þaki
til þess að koma megi fyrir
fullkomnustu neyðartækjum og
aðstöðu fyrir lækni að annast
sjúklinginn á leiðinni tU sjúkrahúss.
Á fundi með fréttamönnum
nýlega, sögðu Rúnar Bjarnason
slökkviliðsstjóri og einn úr sjúkra-
flutninganefnd að ýmis ljón væru
enn á veginum. Fjárveiting til
reksturs bílsins væri enn ekki fyrir
hendi og hefði sú afgreiðsla tekið
óeðlilega langan tíma.
Á sama fundi sagði Rúnar að
þrjár hugmyndir væru uppi um það
hvernig starfrækja ætti slíkan
neyðarbíl í samvinnu við lækna.
Ein leið er að billinn sæki lækni I
hverju tilfeUi og kvað Rúnar þá leið
svolítið hafa verið reynda, en slíkt
haft í för með sér bið eftir þvi að
einhver deUd Borgarspítalans gæti
séð af lækni.
önnur leið væri svokölluð
„stefnumótsaðferð”, þ.e. að neyðar-
bUUnn flýtti sér á staðinn, þár sem
sjúklingur væri og læknir kæmi sér
einnig þangað.
Þriðja leiðin væri að neyðarbiUinn
yrði rekinn frá sjúkrahúsinu. Þar
væru reiðubúnir sérstakir sjúkra-
flutningamenn og læknar alla daga
til að fara í útköU. „Stefnumóts-
aðferðin” yrði svo viðhöfð að nætur-
lagi við lækna á neyðarvakt .
Rúnar sagði að leið þrjú hefði
verið og væri reynd í Finnlandi núna.
Hún þætti afar dýr. Kvað hann
sjúkraflutninganefnd Reykjavíkur
hallast að „stefnumótsaðferðinni”.
Ljóst er'að sjúkraflutningamálin
eru að þróast til betri vegar og
fullkomnari þjónustu við sjúkUnga
en tíðkazt hefur. BUtegundin er
ákveðin og Reykjavíkurdeild RKÍ
mun hafa handbært fé til bíl-
kaupanna þó bíllinn sé dýr, enda
nánast slysadeUd á hjólum.
Eftir er að fá fjárveitingu til
reksturs bílsins. Það þýðir aukið
mannahald á slökkvistöð og sjálfsagt
aukningu læknavakta á Borgar-
spítalanum. En það hillir undir að
draumurinn rætist.
-A.St.
Vinningarvikunnar:
Glæsilegt reiðhjól fyrir DB-áskrifanda
Nýtt
skóla-
húsá
Hellis-
sandi
Verið er að taka í notkun nýtt og
glæsiegt skólahús á Hellissandi. Er það
tæplega 1200 fermetrar að stærð, á
einni hæð. Hýsir það eftirleiðis allan
grunnskólann á staðnum. Við það
losnar meðal annars húsnæði í Félags-
heimilinu Röst, þar sem hluti skólans
hefur verið. Er mikil framför að hinu
nýja skólahúsi. Settur verður nýr
skólastjóri en ennþá er ekki ljóst hver
það verður.
Af öðrum framkvæmdum á Hellis-
sandi má geta nýbyggingar Lands-
bankans, Verið er að grafa grunn og á
því að vera lokið fyrir 1. nóvember.
Eftir það verður húsbyggingin boðin út
og á henni að lj úka á næsta ári.
Miklar framkvæmdir hafa einnig
verið við nýja skólplögn í plássinu.
Rafmagnsveitur ríkisins hafa í
sumar verið að koma öllum raflínum
fyrir í jörðu á Hellissandi. Voru þær
áður i lofti.
Glæsilegt reiðhjól frá Fálkanum, að
verðmæti um 3.500 krónur, er
vinningur vikunnar i áskrifendaleik
Dagblaðsins. Sem fyrr getur hver
einasti áskrifandi blaðsins átt von á þvi
að hreppa hjólið.
Leikurinn er þannig að einhvern dag
í vikunni birtast á baksiðu blaðsins
spurningar tengdar smá-
auglýsingunum. Næsta dag á eftir
verður nafn eins áskrífanda dregið út
og það birt innan um smáauglýsingar.
Sá áskrifandi á að snúa sér til
augiýsingadeiidar blaðsins og svara
spurningunum. Geri hann það rétt, er
reiðhjóUð hans.
Selma Magnúsdóttir dregur i vikunni út nafn eins Dagblaðsáskrífanda. Sá á þess kost
að vinna glæsilegt reiðhjól.
Mikil ölvun í miðbænum
Miðbærinn heillaði unglingana um
helgina og varð það til þess að í nógu
var að snúas’t njá lögreglunni. Mikil
ölvun var og voru tvær stórar rúður
brotnar í miðbænum. Sökudólgar
náðust I bæði skiptin. Að sögn lög-
reglunnar voru nú mun yngri krakkar á
ferð en voru i sumar og telur hún það
geta stafað af nýbyrjaðri skólagöngu.
Þá var einnig ákjósanlegt veður til
útiveru.
Unglingamir sðfnuðust ekki
einungis fyrir á svokölluðu Hallæris-
plani, heldur var rúnturinn, Austur-
stræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og
Aðalstræti undirlagður. Þá var
eitthvað um ryskingar í Fógeta-
garðinum og varð einum lögreglu-
manni að orði að loka ætti þeim garði
um helgar, þar sem mjög Ula væri
gengið um.
-ELA.
Þegar hafa sautján áskrifendur DB
fengið í gegnum þennan leik glæsileg
verðlaun, sólarlandaferðir, hljómflutn-
ingstæki, myndsegulbönd, tölvu og
reiðhjól. Enn eru ntu vinningar óút-
gengnir þannig að enn er ekki of seint
að gerast áskrifendur, vUji menn eiga
möguleika. -KMU.
Fiskveiðar eru byrjaðar á Hellis-
sandi og ganga bara vel. Bæði er veidd
loðna og bolfiskur í net.
-DS/Hafsteinn, Hellissandi.
keríu einuí
Loksms
getum við boðið
ÞRIGGJA KERFA TÆKI MEÐ
1) PAL EVROPSKA KERFIÐ
2) SECAM FRANSKA KERFIÐ
3) NTSC AMERÍSKA KERFIÐ
NU ER AUÐVELT AÐ AFLA SER EFNIS FRA HINUM
ÝMSU LÖNDUM.
VERZLIÐ I
SÉRVERZLUN MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HUÓMTÆKI
Verð: 19.000
Greiðslukjör.
SKIPHOLT119. SIMI29800