Dagblaðið - 14.09.1981, Page 6

Dagblaðið - 14.09.1981, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. Ódýrasta kennslan er sú sem sparar þér tíma Frábærir kennarar sem æfa þig í TALMÁLI. Kvöldnámskeið. — Siðdegisnámskeið. — Pitmans- próf. Enskuskóli barnanna. — Skrifstofuþjálfunin. Sími 10004 09 11109 (kl. 1-5 e.h.). Málaskólinn Mímir, Brautarholti 4. Smurbrauðstofan BJORNINN NjáSsgötu 49 - Sími 15105 KEFLAVIK Blaðburðarfólk óskast strax í Keflavík. Upplýs- ingar hjá umboðsmanni í síma 3053. BIABIB Notaðar trésmlðavélar til sölu kantlímingarvél, spónlímingarvél, spónskurðarsög, sogblásari og kantpússivél. Góð greiðslukjör. Á. Guðmundsson, Skemmuvegi 4 Kóp. Sími 73100. Útboð — gluggasmíði Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir tilboðum í gluggasmíði í 176 íbúðir í fjölbýlishúsum við Eiðsgranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30 frá og með fimmtudeginum 10. sept. gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 23. sept. kl. 15.00 á sama stað. Stjórn Verkamannabústaða Reykjavík. Önnumst kaup og sölu allra almennra veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bætt við kaupendum á við- skiptaskrá okkar. Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin. B3 Venlliréfsi- Atjirluiiliirina Nýja húsinu OHi *•% v/Lækjartorg. ■**** EYRARBAKKI Dagblaðið óskar að ráða umboðsmann á Eyrar- bakka. Upplýsingar gefur umboðsmaður Dag- blaðsins, s. 99-3358 eða 91-27022. BREIÐDALSVÍK Dagblaðið óskar að ráöa umboðsmann á Breið- dalsvík. Upplýsingar gefur umboðsmaður Dag- blaðsins, s. 97-5677eða 91-27022. HELLISSANDUR Dagblaðið óskar að ráða umboðsmann strax á Hellissandi. Upplýsingar ísíma 91-27022. 'wMwuum FréttirfráSVFK: 15 punda sjóbirting- ur í Geirlandsá Stórlax hafði betur í Reykjadalsá... Við Hallá, þar sem veiðzt hafa.um 100 laxar. Nú fer að síga á seinni hlutann í laxveiðinni. Veiðinni er reyndar lokið í nokkrum ám. Síðustu ánum verður lokað 20. september. Við slógum á þráðinn um helgina til Ragnars Péturssonar, formanns Stangveiðifélags Keflavíkut,til að afla frétta. „Þetta er heldur skárra en í fyrra,” sagði Ragnar um veiðina hjá félögum í félaginu. ,,Á land munu vera komnir um 57 laxar úr Geir- landsá. Tala um fjölda sjóbirtinga er ekki á hreinu. Fyrir skömmu fengu náungar 26 sjóbirtinga í ánni. Þeir stærstu voru um 15 pund. I Geir- landsá er veitt fram að mánaðar- lokum. Enda veiðist oft sjóbirtingur í lokin. Hvolsá og Staðarhólsá hafa gefið vel, þar eru komnir á land um 115 laxar. 1 fyrra veiddust aðeins um 18 laxar i ánum. Þar er líka mikið af bleikju. Veitt er á þrjár stangir. Hallá hefur gefið um 100 laxa. Veiðin upp á síðkastið hefur verið heldur treg enda vist ekkert sérstakt veiðiveður. Úr Reykjadalsá eru komnir um 70 laxar, sem er ágætt. Stærsti laxinn sem veiðzt hefur 1 ánni vó 19 pund. Og mun það vera stærsti fiskurinn sem veiðzt hefur í ánum ökkar. En það gerðist um daginn í Reykjadalsá, að Stefán Jónsson, sásnjalli veiðimaður, missti um 20—25 punda lax á flugu, eftír að hafa verið með hann í einar 20 mínútur. Eitthvað mun vera af stórum fiski í ánni. Um 120 laxar munu vera komnir úr Flóku, sem er lélegt því að i fyrra veiddust um 240 laxar. Veitt er til 18. þessa mánaðar. Tunguáin hefur verið léleg. Aðeins eru komnir á land um 25 laxar. Ekki mun vera mikið af laxi í ánni.” Já, það er margt að gerast í laxveiðinni ennþá, þó tekið sé að hausta. Veiðimenn láta það litíl áhrif hafa á sig. Eða eins og veiðimaðurinn sem var fyrir vestan í síðustu viku. Hann stóð víst úti í miðjum snjóskafli og veiddi. Náungi einn átti leið hjá og sagði: „Væri nú ekki betra að vera heima hjá sér en „forkela” sig hér?” Hinn veiðiglaði svaraði. „Það er nú allt í lagi, meðan maður finnur ána”. -GB. Fréttin um netaveiðina vakti athygli: Aðgerðir þurfa að koma til Frétt DB um ólöglega netaveiði í Leirvogsá um síðustu helgi vakti mikla athygli. Tími er kominn til að stemma stigu við þessu mikla vandamáli. Netaveiði í skjóli haust- myrkranna er staðreynd, ekki bara í þeirri á sem við ræddum um í greininni, þetta skeður í fleiri ám. Sumir vilja segja að við höfum verið of stóryrtir i umræddri grein. En það þýða bara ekki nein vettlingatök í þessum málum. Það er mikið í húfi. Þetta hefur nefnilega ekki verið tekið hátíðlega hingað til. Sumir trúa ekki að netaveiði sé stunduð í ánum. Enda kannski hart að viðurkenna það. En það sem við viljum er aukin gæzla. Þar sem aðeins er einn veiðivörður verður að bæta við manni. Einn maður gerir ekki kraftaverk. Hann getur ekki staðið allan sólarhringinn við vörzlu. Orðrómurinn er orðinn anzi líflegur um netaveiði. Haldinn var fundur um fréttina núna í vikunni. Þar voru málin rædd ofan í kjölinn. En hvað gert verður í framhaldi af þessum skrifum er lokuð bók. Nú þarf aðgerðir strax. Tíminn er að byrja, sem menn fara á vapp. Stöðvum þessar ferðir. -GB. VEIÐIVON X * Veiðinni er nú lokið ( Elliöaánum. Alls veiddust 1072 laxar, sem hcldur er slök veiðL Hún er þó betri en f fyrra, þá komu aðeins á land 938 laxar. Á myndinni sjást Karl Ómar Jónsson, formaður Stangveiðifélags Reykjavikur, og Þórður Þor- bjarnarson borgarverkfræðingur. Karl Ómar losar öngulinn úr laxi Þórðar, sem hann veiddi snemma i sumar. Lélegt fyrir vestan — enda ekkert sérstakt veiðiveður Þær fréttir hafa borizt nú síðustu daga að heldur hafi veiðiveðrið verið leiðinlegt sums staðar. Enda vill það nú oft vera svoleiðis í lokin. Og veiðin eftir því. En hvað skyldi vera að frétta frá Vestfjörðum? Úr Hvannadalsá eru óskemmtilegar veiðifréttir. Þar hefur veiðin verið með eindæmum léleg. Aðeins munu vera komnir milli 25 og 30 laxar í allt sumar, sem er mjög lítið. Þeir síðustu sem veiddu í ánni fengu þó þrjá laxa. Ómar Þórðarson, annar leigjandi Laugadalsár, tjáði okkur að 291 lax hefði verið kominn á land. Þetta er mjög léleg veiði. En dálítið mun vera af fiski í ánni. En þegar veiðiveður er ekki gott er varla von á góðu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.