Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. Nató hefur nú hafið umfangsmiklar heræfingar, bæði á sjó og f lofti, og er ætlað að þær muni að lokum enda á Eystrasalti en þar eru Sovétmenn einmitt nýhættir sömu iðju. Af hálfu Nató taka 19.000 menn þátt i æfingunum ásamt 80 skipum og 280 flugvél- um og hófust þær í gær undan ströndum Frakklands og Spánar. Munu þær ná yfir rnikinn hluta Atlantshafsins og enda, eins og áður er sagt, á Eystrasalti i næstá mán- uði. Samkvæmt þvi sem talsmaður Nató segir eiga æfingar þessar að færa sönnur á að öllum er frjáls aðgangur að hafi þessu. Löndin sem taka þátt f æfingun eru Bretland, Belgía, Kanada, V-Þýzkaland, Hol- land, Noregur, Portúgal, Bandaríkin og Frakkland. Myndin sýnir bandariskt flugvélamóðurskip við heræfingar. BMW518 árg. 1977 Renau/t 18 TS árg. 1979 BMW320 árg. 1980 RenaultS TL árg. 1980 BMW318 árg. 1978 Renault 12 TL árg. 1977 BMW320 árg. 1979 Renault 4 Van F6 ' árg. 1979 BMW320 árg. 1977 Renault 4 VANF4 árg. 1975 Renau/t20 TL árg. 1978 Haig ákærir Sovétmenn fyrir eiturefnahernað: Sönnunargögnin væntanleg í dag —verða afhent Kurt Waldheim, aðalritara Sameinuðu þjóðanna BÖRN - UNGLINGAR - FULLORÐNIR Pólland gjaldþrota? Pólsk stjórnvöld hafa birt grimma spá um framtíð landsins og vara við því að það rambi nú á barmi algjörs gjald- þrots. Fréttastofan Pap sagði í gærkvöld að mörgum iðnfyrirtækjum yrði að loka og skortur yrði á rafmagni. í viðbót við olíu- og orkuskort má einnig vænta þess að 4 milljónir tonna vanti á nauðsynlega kolaframleiðslu. Lech Walesa sagði að Eining mundi byggja sinn eigin sjónvarpssendi ef stjórnvöld héldu áfram að meina samtökunum aðgang að opinberum fjölmiðlum. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Alexander Haig, sem nú ræðir við stjórnvöld i V-Þýzkalandi, sagði að Bandaríkjamenn mundu i dag koma með sannanir á því að eiturefni hefðu verið notuð í hernaði í SA-Asíu, gagnstætt alþjóðlegu samkomulagi. f ræðu sem hann hélt í V-Berlín í gær ýjaði hann að þvi að Sovétmenn hefðu staðið að eiturefnahernaði, án þess að beina þeirri kæru beinlínis að Moskvu. Hann sagði að lengi hefði leikið grunur á því að Sovétmenn og banda- menn þeirra hefðu notað banvæn eiturefni i Laos, Kampútseu og Afganistan. — Og nú hafa áþreifanlegar eðlis- fræðilegar rannsóknir sannað að þarna finnast framandi eiturefni sem eru baneitruð fyrir bæði menn og dýr, sagði hann. Efnið hefur verið greint sem tricht- hecan toxin, þekkt undir nafninu T2, en áhrif þess eru þau að fólk deyr af blóðspýtingi. Haig sagði að Reaganstjórnin mundi láta aðalritara Sameinuðu þjóðanna í té sönnunargögnin. Haig staðfesti þessar upplýsingar í V-Berlín, en þar hafði mikið fjöl- menni safnazt saman til að mótmæla stefnu Bandaríkjastjórnar og þeirri ákvörðun Reagans að framleiða nifteindavopn. Haig mun ræða takmörkun nifteindavopna í Evrópu við Helmut Schmidt kanslara og Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherraog er það talinn undirbúningur undir sams konar viðræður við Moskvustjórn síðar á árinu. Sovétfréttastofan Tass hefur lýst þessa staðhæfingu Haigs rógburð. Alexander Haig. Opið laugardaga frá kl. 1—6. lAIÝI \i ■ I Enn er grættá Hitler Forsetadóttir íframboö MNZíCOLM Sími52996 INNRITUN ER HAFIN Eldri nemendur vinsamlegast hafiÓ samband strax! Takmarkaó í hven tíma IflA líAIII |P - Jafnréttisráð ætlar ¥111 WUriUlf að takamálið fyrir í byrjun mánaðarins mátti sjá ber brjóst á hverju götuhorni í París og rétt fyrir helgina sneri stúlka sér við og sýndi á sér bakhlutann. Þetta gerðist í sambandi við auglýsingaherferð sem hefur vakið sára reiði hjá rauðsokkum, glatt pungrottur og jafnvel komið stjórninni í bobba. Á mánudag birtust hundruð auglýs- ingaspjalda í öllum frönskum stórborg- um sem sýndu bikiniklædda stúlku sem lofaði að láta brjóstahaldarann falla tveimur dögum síðar. Enda stóð hún við það loforð og næst á dagskrá voru buxurnar. Á föstudag var hún því orðin allsnakin á veggspjaldinu. Her- ferð þessi var á vegum auglýsingaskrif- stofu sem framleiðir veggspjöld og stóð letrað á spjöldin: „Avenir, vegg- spjaldaframleiðandinn sem ekki svíkur loforð sín.” Borgaryfirvöld i nokkrum borgum létu þegar þekja myndina og jafnréttis- ráð, sem telur þetta móðgun við konur, sagðist senda út yfirlýsingu um málið þar sem sósíalistastjórninni í Frakk- landi væri mjög umhugað um réttindi kvenna. Vatnslitamynd eftir Adolf Hitler ásamt silfurtepotti og munnþurrku, sem sagt er að foringinn hafi notað, áttu nýlega að fara á uppboð í Múnchen en voru dregin til baka á síð- ustu stundu. Uppboðsfyrirtækið, Graf Klenau, hefur oft áður boðið upp hluti frá tíma- bili þriðja rikisins. En nú stendur yfir réttarrannsókn á viðskiptum þess þar sem álitið er að það hafi brotið lög í sambandi við dreifingu á tignarmerkj- um. Talsmaður fyrirtækisins neitaði að Maureen Reagan, dóttir Reagans Bandaríkjaforseta og fyrrverandi konu hans, leikkonunnar Jane Wyman, er nú að hugsa um að skella sér í framboð fyrir næstu kosningar í Kaliforníu. Er sagt að pabbinn sé litt hrifinn af hug- myndinni. Maureen hefur áður stundað „sjóbisness” með heldur slælegum árangri. Ákvað hún þess vegna fyrir þremur árum að snúa sér frá skemmtanaiðnaðinum og leita á önnur mið. — Ég vildi ekki ná fertugsaldri með ekkert annað mér til ágætis en það að vera dóttir frægs manns, sagði hún þá. Nú er Maureen orðin fertug og vinnur sem framkvæmdastjóri hjá fyrirtæki sem sér um olíuútflutning. Hún er líka nýlega gift í þriðja sinn, í þetta skiptið 28 ára gömlum manni, Dennis Revell, og vinnur sá á lögfræði- skrifstofu. Enn er samt Maureen frægust fyrir að vera dóttir Reagans. Og nú er spurningin hvort faðernið verður henni til hjálpar eða trafala á stjórnmálabrautinni. Forsetinn álitur ekki að henni takist að vinna þingsæti og stjúpmóðir hennar, Nancy, er mjög mótfallin því að hún fari i framboð. Maureen hefur í mörg ár starfað að alls konar félagsmálum fyrir Repúblik- anaflokkinn. Maureen Reagan með þriðja eigin- manninum. segja hvers vegna hætt hefði verið við uppboð á Hitlersmununum, en vatns- litamyndin, sem máluð var 1920, var metin á 3.750 dali . Hann fullyrti að Hitler hefði notað tepottinn og munn- þurrkuna á veitingahúsi í Múnchen. Skrautplatti með áletruninni „Traustur foringi á stormasömum tímum verndar þjóðina gegn ótta og tjóni” seldist á 70 dali eða 8 dölum meira en matsverð. Hermannajakki frá nasistatímabilinu var seldur á40 dali. THkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir ágústmánuð er 15. september. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt sölu- skattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið, 10. september 1981. VU.ENTINE T BÍLALÖKK ALLT TIL BÍLALÖKKUNAR Sfmi 74540 Smiðjuvegi 40D, Kóp. Erlent Erlent Erlent Erlent Veggspjald vekur hneyksli í Frakklandi: ER TAUD MÓDGUN

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.