Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 11
11
Uppfínnlngamaðurinn Martín Balokin mUar fíugnabyssu sinni á sakiausa
húsfíugu.
Skordýraóvinir
skjóta flugur meö
byssu áfæri
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
— einstök uppfinmng sem œtti aö
gera sumum lífið auðveldara.
Fátt er manninum verr við en flugur
og skordýr. Með skordýraeitur, dag-
blöð, handklæði og berar hendur að
vopni hefur hann allt frá örófi alda
reynt að bana þessum vesalings greyj-
um, sem skilja ekkert í vonzku manns-
ins. Muhammad Ali var sagður snill-
ingur í að grípa flugur á lofti, en það
var á meðan hann var léttur og snögg-
ur. Hingað til hefur þetta hins vegar
ekki verið heiðarleg keppni. Skordýrin
hafa oftast náð að smjúga úr greipum
mannsins eða þá að banahögg hans
hafageigað.
En nú er komið nýtt vopn á mark-
aðinn, sem eflaust á eftir að velgja
flugum undir uggunum, ef svo má að
orði komast. Það kallast flugnabyssan
og Martin Belokin er hugvitsmaðurinn
sem smíðaði það. Byssa þessi skýtur
kringlóttum diskum úr harðplasti að
flugunum og dregur allt að metralengd.
í disknum er spotti þannig að
„veiðimaðurinn” þarf ekki að óttast
að týna vopni sínu í miðjum bardaga.
Helzti kostur flugnabyssunnar er sá
að hægt er að skjóta flugurnar á
stöðum þar sem nær ómögulegt væri
að ná til þeirra annars, svo sem uppi á
ljósakrónum' og hátt uppi á veggjum.
Frá því Martin fyrst kynnti byssu
sína fyrir þremur árum hafa 3,5 millj-
ónir selzt en hingað til hefur aðeins
verið hægt að kaupa flugnabyssuna í
Bandaríkjunum. En það stendur allt til
bóta og innan skamms verður hægt að
kaupa byssuna í löndum Evrópu. Og
þá verður þess áreiðanlega ekki langt
að bíða að byssan verði fáanleg hér
líka.
Frœndi Carters í
fangelsifyrir
innbrotstilraun
Þótt Jimmy Carter sé ekki lengur
forseti Bandaríkjanna fylgjast fjöl-
miðlar enn náið með honum og fjöl-
skyldu hans. Blaðamenn þóttust því
skiljanlega hafa heldur en ekki
komizt í feitt er fréttist að frændi
Carters, William Carter Spann hefði
viðurkennt að hafa brotizt inn i hús i
Kalifomíu.
Eða réttara sagt reynt að brjótast
inn í hús. Spann, sem er 34 ára, gerði
tilraun til innbrots í júlí, en tókst svo
illa upp að hann skar sig á hendi. Ná-
grannarnir höfðu líka séð til hans og
hringdu á lögregluna og hún tók
Spannisína vörzlu.
Spann er ekki alveg ókunnugur
fangelsum Bandaríkjanna því 1979
var hann látinn laus eftir að hafa af-
plánað þriggja ára dóm fyrir rán. Nú
getur hann átt von á fimm ára fang-
elsisvist, en þess má geta í leiðinni að
Spann er sonur Gloriu systur Carters.
Teg. 13
StœrOir 36-41
Núkr. 49,95
Teg.8001
Stærðir 36-41
Núkr. 49,95
Stærðir 36-38
Núkr. 49,95
Teg.667 “ia“iSS
Stærðir 36—41
Núkr. 49,95
Teg.2906
Stærðir 36—41
Núkr. 49,95
Teg. 9621
Stærðir 36-41
Núkr. 49,95
Teg.205
Stærðir 36—41
Núkr. 49,95
Teg. S i
Stærðir 36 og 37
Núkr. 49,95
Tcg 506 '
Stæiðir 36-41
Núkr. 49,95
Teg. 162
StærOir 35-39
Núkr. 49,95
Teg.500
Stærðir36—41
Núkr. 49,95
Teg.92é ^®SsHÉ
Stærðir 36—41
Núkr. 49,95
Teg. 9416
Stærðir 36—41
Nú kr. 49,95
Teg. 1157
Stærðir: 36—41
Núkr. 49,95
Teg. 101
StærOir 36—41
Núkr. 49,95
Teg. 1635
Stærðir36—41
Núkr.
149,95
Teg.2130
Stærðir 36-37
Núkr. 149,95
Teg.im ■
Stærðir 36-41
Núkr. 99,95
Teg. 12
Stærðir 36-41
Núkr. 99,95
Teg. k.
Stærðir 39-43
Núkr. 175,75
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti8 vAusturvöll — Sími 14181