Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 13

Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. 13 s henti ekki til þess að koma á þjóð- félagi vinnandi fólks í landinu. Um leið hafa þau hafnað sovéskri af- skræmingu sósíalismans og krefjast öflugrar baráttu gegn báðum risa- veldunum, meðan íslenskir flokkar hallast meira eða minna að öðru hvoru risaveldinu eða gera sem minnst úr hættunni af þeim. í fram- haldi af því hefur Morgunblaðið reynt að gera mikið úr sovétandstöðu marx-lenínista, en þagað um afstöðu okkar gegn Bandaríkjunum. í>jóð- viljinn treður sömu slóðir til þess að láta líta svo út að „maóistarnir” séu NATO-sinnar og handlangarar Kín- verja. Kommúnistasamtökin hafna al- gjörlega tillögum atvinnurekenda og allra flokka um að launafólk og þeir sem lifa af annarra vinnu verði að samstilla stefnu sína. Þess vegna vilja þau lýðræðislega og sjálfstæða verka lýðshreyfingu með baráttustefnu og þor til að fylgja kröfum sínum eftir. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag eiga vissulega eitthvað sameiginlegt með kommúnistum en ef til vill mun meira saman sem tveir kratískir um- bótaflokkar. Hlutar Alþýðuflokks og Kommúnistasamtakanna snertast í framsæknum kröfum um umbætur í verkalýðshreyfingunni. Sammála erum við um að landrými eigi allt að vera þjóðareign og um nauðsyn ein- hvers konar almanna-og indvarna. Alþýðubandalagsmenn styðjum við í slagnum við Alusuisse að mörgu leyti og i kröfum um úrsögn úr NATO og brottvísun bandarísks hers. Og ætli við séum ekki sammála báðum aðil- unum um stuðning við 3. heiminn og einfaldari innflutningsverslun! Þrátt fyrir ólík grundvallarsjónar- mið geta kratar og kommar unnið saman og aldrei skyldi útiloka að þeir mynduðu með sér samtök ef nauðsyn krefur, annað eins hefur gerst í ís- landssögunni. Nú sem stendur er mér samt efst í huga að styrkja þau litlu samtök sem hafa haft bein í sér til að reisa merki marxisma dálítið við í landinu og hanga í buxnarössum bur- geisa og kerfisliðsins sem snýst í kringum þá, reynandi að fletta niður um söfnuðinn þann. Ari T. Guðmundsson. Ari T. Guðmundsson — Alþýðuflokkur og Alþýdubandalag eiga vissulega eitthvað sameiginlegt meó kommúnistum en ef til vill mun meira saman sem tveir kratiskir umbótaflokkar, segir Ari Trausti Guðmundsson meðal annars. Formaður Alþýðuflokksins og ráðherra Alþýðubandalagsins takast hér i hendur. DB-mynd: Þorri. dylgja um „sameiningu krata og maóista” og skrökva stefnumiðum uppá Kommúnistasamtökin. Vel má vera að nýtt flokksform til vinstri við íhaldið, eins konar sam- fylking skoðanahópa, geti um tima verið lífgjafi í stefnumótun og stirðn- aðri flokkaskipan í landinu. Kommúnistar geta ekki hafnað slíku fyrirfram þó þeir liti ekki á slíkt flokksform sem rétthæft handa marxískum verkalýðsflokki. Ólíku saman aðjafna, en ... Kommúnistasamtökin hafa leitt rök að því að borgaralegt þingræði afturhaldssöm hugmyndafræði hrekur almenning frá þátttöku í þeim. Eftir að hafa hafnað ýmsum þátt- um úr fyrri starfsstefnu lýsa Kommúnistasamtökin þvi yfir að þau eru reiðubúin til samstarfs við aðra aðila um baráttumál. Þau hafa reynt, án teljandi árangurs. Umstangið um Alþýðuflokkinn Eftir dágóða fjölmiðlarispu ætti að vera Ijóst að sameining Alþýðu- flokks og Kommúnistasamtakanna stendur ekki fyrir dyrum. Hvorki Vilmundur né Jón Baldvin hafa brotið gegn flokki sinum og ættu alþýðuflokksmenn rólegir að geta af- greitt sinar skipulagsbreytingar án hræðslu við mig og mína samherja. Samtökin hafa heldur ekki rætt möguleikana sem felast í jafn rót- tæku stökki og skipulagstillögur Vilmundar og kó eru í raun og veru. Niðurstaðan er allsendis óljós og við það bætist að flokksstjórn Alþýðu- flokksins samþykkir eða hafnar um- sókn um aðild félags að flokknum. Reyndar ættu Fylkingin og Alþýðu- bandalagið að skammast til að ræða hugmyndir alþýðuflokksmanna í al- vöru. Enn hefur málgagn Alþýðu- bandalags aðeins látið sér nægja að Kjallarinn Fjarlægðin gerir fjöllin blá—ogkjötið betra Munur á fltuinnihaldi mjólkur fyrir norðan og sunnan er um 0.1 prósent. Sá maður sem finnur mun á fitu i slfkn mjólk hlýtur að vera með innbyggðan fitu- mæli, segir Agnar Guðnason meðal annars i grein sinni. DB-mynd. og munurinn er á fitunni, sem telur sig finna einhvern mun og þetta sama fólk hefur svo óskaplega gaman af að skrifa í blöðin. Hvað með kjötið? Sjaldan er gerður samanburður á gæðum kjöts eftir landshlutum. Þó eru til menn sem kjósa frekar feitt kjöt en magurt og vilja því þunga dilkaskrokka. Þeir fá hvergi betra kjöt en úr Strandasýslu. Hólsfjalla- hangikjötið var ákaflega vinsælt hér áður fyrr og talið var að framboð á Hólsfjallahangikjöti væri allmikið meira en framleiðslan var á Hólsfjöll- um. Þá er nokkuð útbreidd sú skoðun að kjöt af lömbum, sem beitt hefur verið á fóðurkál fyrir slátrun, sé mun verra en af lömbum, sem gengið hafa á úthaga fram að slátrun. Þessi kenn- ing stangast verulega á við það, sem sérfræðingar halda fram um kjöt- gæði. Það er löngu sannað að kjöt af gripum sem eru í afleggingu fyrir slátrun sé verra og seigara en af gripum, sem eru í bata fyrir slátrun. Enda hefur samanburðar á bragð- gæðum dilkakjöts ekki leitt í ljós neinn mun á bragði. Það virðist vera nákvæmlega sama á hverskonar landi lömbin höfðu gengið stðustu vikurnar fyrir slátrun, þeir sem áttu að dæma um bragðgæði fundu engan mun. Það á því að vera ástæðulaust fyrir neytendur að forðast kjöt af dilkum, sem beitt hefur verið á rækt- að land fyrir slátrun. Kjötið er nokkurn veginn það sama, hvar sem kálið hefur verið bitið eða á hvaða fjalli lömbin hafagengið sumarlangt. Agnar Guðnason blaðafulltrúi.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.