Dagblaðið - 14.09.1981, Síða 16

Dagblaðið - 14.09.1981, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. (I D Iþrötfir Iþróftir Iþróttir Iþróttir Jafnt hjá Laval Lens tapar enn Úrslitin í 9. umfcrð 1. deildarinnar í Frakklandi um helgina urðu þessi. St. Etienne-Lyon 4—0 Lille-Montpellier 6—1 Strasbourg-Valenciennes 4—0 Laval-Nantes 1—I Sothaux-Lens 1—0 Nancy-Metz 2—1 Tours-Auxerre 2—0 Bastia-Bordeaux 4—4 Brest-Paris St. G. 2—1 Monaco-Nice 1—0 Eins og sjá má var mikið skorað i 9. umferð eða 3,5 mörk að meðaltali i leik Bordeaux, andstæðingar Víkings í undir lögregluvernd Að sögn talsmanns bandaríska tennissambandsins fékk sænska tennis- stjarnan Björg Borg lögregluvernd, á laugardag, eftir að hafa fengið morð- hótun. Talsmaðurinn sagði að hótunin hefði borizt símleðis til miðstöðvar tennissambandsins í New York rétt fyrir leik Borgs gegn Bandaríkja- manninum Jimmy Connors i undanúr- slitaleik opna bandariska meistara- mótsins i einliðaleik karla. Haft var samband við lögreglu og Borg var tryggt aukið öryggi. Svipuð hótun var send Borg fyrr á þessu ári i keppni í Kanada. _______________________-VS. Maree ógnar heimsmeti Ovetts Bandaríkjamaðurinn Syndey Maree, sem er fæddur í S-Afríku og vann Steve Ovett mjög óvænt í miluhlaupi sl. miðvikudag, var aðeins tæpa sekúndu frá heimsmeti Ovetts i 1500 m hlaupi i Munchen á laugardag. Maree fékk tímann 3:32,30, 94/100 úr sekúndu lakari tíma en heimsmet Ovetts sem hann setti í Koblenz í fyrra. Hinn 32 ára gamli Mike Boit frá Kenya, sem hlaut bronsverðlaun á OL í Munchen 1972, varð annar á 3:33,67 og V-Þjóðverjinn Uwc Becker þriðji. Árangur Maree er þó ekki bandarískt met. Steve Scott hefur hlaupið 1500 m á 3:31,96. Maree hefur verið búsettur í Bandarikjunum, sl. fjögur ár, en er aðeins nýbúinn að fá rikisborgararétt þar. -VS. UEFA-keppninni, náðu jafntefli i miklum markaleik á Korsíku og eru enn ósigraðir i deildinni. Jafntefli hjá Karli Þórðarsyni og félögum i Laval gegn Nantes, sem var í 2. sæti deild- arinnar i fyrra, en Lens, lið Teits Þórðarsonar tapar enn og situr á botninum. Staðan eftir 9. umferð: Bordeaux 9 4 5 0 18- -11 13 Sochaux 9 5 3 1 12- -8 13 Lille 9 5 2 2 19- -11 12 Lyon 9 6 0 3 12- -10 12 Monaco 9 5 1 3 20- -13 11 Laval 9 4 3 2 13- -11 11 Nancy 9 4 3 2 13- -11 11 Bastia 9 3 4 2 17- -17 10 Strasbourg 9 4 1 4 12- -10 9 Paris St. G. 9 3 3 3 13- -13 9 Brest 8 2 5 1 11- -11 9 Nantes 9 3 3 3 11- -11 9 Tours 9 4 1 4 10- -10 9 St. Etienne 7 3 2 2 12- -6 8 Valenciennes 9 3 1 5 11- -13 7 Metz 9 0 6 3 5- -9 6 Auxerre 8 1 3 4 7- -15 5 Montpellier 9 1 3 5 7- -15 5 Nice 9 1 2 6 6- -15 4 Lens 9 1 1 7 1- -15 3 -VS. Stórsigur Fylkis Haukar kvöddu 2. deildina með tapi á heimavelli fyrir Fylki, 0—4, á laugar- dag. Ekki var að neinu að keppa fyrir Haukana, fall í 3. deild þegar staðreynd. Áhugaleysi einkenndi leik þeirra og var sigur Fylkis sizt of stór. Hörður Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins og Guðmundur Baldurs- son bætti öðru við fyrir hlé eftir glæsilegan einleik Þóris Gíslasonar gegnum Haukavörnina. Þórir renndi knettinum út á Guðmund sem skoraði auðveldlega. í siðari hálfleik bætti Omar Egilsson tveimur mörkum viö' fyrir Fylki og unnu Fylkismenn þar með þrjá siðustu leiki sina i deildinni með samanlagöri markatölu 9—1. Góður endasprettur eftir dauft sumar í 2. deildinni. -VS. Þróttur R. vann Selfoss Þróttur, Reykjavik, vann léttan sigur á fallkandidötum Selfoss á föstudagskvöld, 5—1. Leikið var í Laugardal. Mörk Þróttar skoruðu Sverrir Pétursson 2', Jónas Hjartarson, Sigurður Hallvarðsson og Hilmar Gunnarsson en fyrir Selfoss svaraði Gisli Sváfnisson. Páll Ólafsson, Þrótti var rekinn útaf í leiknum. Með þessum sigri tryggðu Þróttarar sér 3. sætið í 2. deild en Selfyssingar verma botnsætið ásamt Haukum. -VS. Guðmundur Ásgeirsson, markvörður Breiðabliks, ver skot Kára Þorleifssonar á 12. mfn. f leik UBK og ÍBV. Eitt af fáum hættulegum færum ÍBV f leiknum. Sreiðablik lagði bikarmeistarana — en Blikarnir ungu verða að sætta sig við fjórða sætið Breiðablik sigraði ÍBV á Kópavogs- velli á laugardag i siðustu umferð 1. deildar með einu marki gegn engu. Þrátt fyrir sigurinn verða Blikarnir að gera sér 4. sætið i deildinni að góðu, bikarmeistararnir úr Eyjum það sjötta. Breiðablik hlaut 22 stig, fimm stigum meira en f fyrra en er aðeins einu sæti ofar i deildinni. Leikurinn var í nokkru jafnvægi framan af og liðin skiptust á að sækja. Á 6. mín. varði Páll Pálmason mark- vörður ÍBV vel hörkuskot frá Vigni Baldurssyni og á sömu mínútu ollu bræðurnir Sigurlás og Kári miklum usla i vörn Breiðabliks sem var mjög óörugg á þessum kafla. Kári Þorleifs- son komst inn fyrir vörn Breiðabliks á 12. mín., en Guðmundur Ásgeirsson varði skot hans úr þröngu færi. Á 15. mín. einlék Helgi Bentsson upp hægri kantinn og þaðan inn í vítateig Eyjamanna og sendi knöttinn í fjær- hornið, stöngin inn, óverjandi fyrir Pál í markinu. Glæsilegt einstaklings- framtak hjá Helga. Skömmu síðar áttu Eyjamenn, Kári og Ómar Jóhannsson, tvö góð færi en Guðmundur mark- vörður bjargaði í bæði skiptin. Síðustu Fram á toppnum í einn sólarhring — unnu KA 2-0 en það dugði skammt Það voru ekki nein meistaratilþrif sem Framarar sýndu á laugardag gegn KA. Fram vann reyndar sigur, 2—0, en i 70 mfnútur af 90 var leikur liðanna lítið augnayndi. Háspörk og sendingar mótherja á milli einkenndu hann allt þar til Framarar voru fyrri til að átta sig á því að ekki sakaði að gefa knöttinn nokkrum sinnum samherja á milli og freista þess að opna vörn KA- manna. Það reyndist ekki erfitt verk þegar til kom því KA-vörnin var eins og höfuðlaus her án Erlings Krisjáns- sonar. Það þurfti vítaspyrnu á 72. mín. til að koma Fram á bragðið og frá sjónar- hóli blaðamanna virtist hún vera harla vafasöm. Annað var uppi á teningnum er atvikið var sýnt í sjónvarpi á laugar- dag. Þar virtist um augljósa vítaspyrnu að ræða er Guðmundi Torfasyni var brugðið innan vítateigs. Marteinn Geirsson tók spyrnuna og skoraði af miklu öryggi — sendi Aðalstein Jóhannsson í öfugt horn. KA-liðið brotnaði gersamlega niður við þetta mótlæti og aðeins Elmar Geirsson reyndi að berjast áfram á hægri vængnum. Lárus Grétarsson var fádæma klaufi á 80. mín. er hann fékk eitthvert það bezta færi sem hægt er að hugsa sér. Hann náði að taka knöttinn niður á brjóstið og leggja hann fyrir sig en lét síðan Aðalstein verja frá sér. Að vísu snilldartilþrif hjá markverðinum, en hann hédt ekki knettinum, sem barst til Guðmundar Torfasonar með markið gapandi fyrir framan sig. Skot hans fór vel framhjá. Strax á næstu mínútu fékk KA sitt bezta færi er Marteini Geirssyni urðu á slæm mistök í vörninni og Gunnar Gislason komst inn í sendingu ætlaða markverði. Skot hans fór hins vegar rétt yfir og fimm mín. síðar gerðu Framarar út um leikinn og var einkar laglega að því marki staðið. Sighvatur Bjarnason vann knöttinn við eigin vítateig og tók á rás fram völlinn. Rétt framan við miðju sendi hann góða sendingu á Lárus Grétarsson sem lék nokkur skref áffam áður en hann renndi knettinum framhjá Aðalsteini og í gagnstætt horn. Ekki munaði nema hársbreidd að Guðjóni Guðjónssyni tækist að bjarga á marklinu. Framarar héldu því enn í vonina um íslandsmeistaratign eftir þennan sigur þó svo að frammistaða þeirra í leiknum verðskuldaði allt annað. Sú von slökknaði á sunnudag er Víkingur sigraði KR. Fram er því i 2. sæti 1. deildar annað árið í röð og tekur þátt í UEFA-bikarkeppninni næsta haust. -SSv. 20 mínútur fyrri hálfleiks var svo nær látlaus sókn Blikanna. Páll Pálmason hélt Eyjamönnum á floti með frábærri markvörzlu. Samvinna hinna snöggu framherja Blikanna splundraði Eyja- vörninni hvað eftir annað, sérstaklega lék Sigurjón Kristjánsson á als oddi og Sigurður Grétarsson skapaði hættu í hvert skipti sem hann fékk boltann. Síðari hálfleikur fór rólega af stað en smám saman tóku Blikarnir leikinn í sínar hendur á ný. Á 56. mín. átti Sigurður Grétarsson glæsilega sendingu á vítateigshornið hægra megin þar sem Ómar Rafnsson kom á fullri ferð og sendi fyrir markið þar sem tveir Blikar voru skyndilega óvaldaðir en þeir misstu knöttinn klaufalega aftur fyrir endamörk. Mínútu síðar komst Sigurður inn fyrir vörnina hægra megin í vítateignum, Páll kom út á móti og varði glæsilega skot hans, knötturinn féll fyrir fætur Sigurðar, sem lék á Pál og sendi fyrir markið en þar var enginn til að reka endahnútinn á sóknina. Eyjamenn áttu eitt og eitt upphlaup. Sigurlás komst tvisvar upp hægra megin en í bæði skiptin skaut hann í hliðarnetið, aðþrengdur af varnarmönnum Breiðabliks. Hinum megin átti Helgi Bentsson tvö góð færi. í fyrra skiptið var hann of seinn að skjóta og varnarmenn ÍBV náðu að bjarga og í seinna skiptið hljóp Páll Pálmason út og hirti knöttinn af tám Helga. Eftir því sem leið á hálfleikinn náðu Eyjamenn betri tökum á leiknum án þess þó að skapa sér umtalsverð færi. Upphlaup Blikanna voru hins vegar hættuleg og hugmyndaflugið mikið. í einu slíku komst Helgi Bentsson upp að endamörkum hægra megin og sendi út í teiginn þar sem Sigurjón reyndi skot, knötturinn barst út til Ómars Rafns- sonar, sem skaut viðstöðulaust á markið, knötturinn breytti stefnu af varnarmanni ÍBV og þaðan í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Á 75. min. buldi stórsókn á marki ÍBV. Helgi Bentsson komst einn inn fyrir og var megn rangstöðufnykur af honum. Páll kom út á móti honum og varði glæsilega, knötturinn barst til Vignis Baldurssonar, sem þrumaði á markið, en Páll fleygði sér og sló knöttinn í horn. Á 81. mín. reyndi Sigurður Grét- arsson hjólhestaspyrnu á Eyjamarkið og enn var Páll vel á verði og bjargaði. Á sömu mínútu áttu Eyjamenn sitt bezta færi í leiknum. Ómar Jóhanns- son sendi fyrir frá hægri og Sigurlás skallaði hárfínt yfir. Tækifærin komu á færibandi, hinum megin komst Helgi enn inn fyrir en Páll hljóp út fyrir teig og hreinsaði. Fimm mínútum fyrir leikslok áttu Blikarnir enn eitt tækifærið til að bæta öðru marki við þegar Ómar Rafnsson, hinn sókndjarfi bakvörður, fékk tvö færi í sömu sókninni. Vörn ÍBV bjargaði í fyrra skiptið, Páll i það síðara. Tveimur mínútum síðar fékk Kári Þorleifsson færi á að jafna fyrir Eyjamenn en skot hans fór í varnarmann Blikanna. Það var síðasta færið í leiknum og Blikar stóðu uppi sem verðskuldaðir sigur- vegarar. Leikmenn liðanna sýndu oft ágætis knattspyrnu og marktækifærin voru fjölmörg. Samleikur Blikanna var stórgóður á köfium en þeir eru snilling- ar í að klúðra færum. Það var þó ekki við neinn venjulegan markvörð að eiga þar sem Páll Pálmason er. Mikill ljóður á leik Breiðabliksmanna eru hin tiðu brot þeirra, óþarfa spörk aftanfrá og hrindingar sem ættu ekki að sjást hjá jafnléttleikandi liði. Beztir þeirra voru Sigurður Grétarsson og Sigurjón Kristjánsson sem oft léku vörn ÍBV grátt. Liðsheildin var sterk en þessir tveir stóðu upp úr. Hjá Eyjamönnum var meðalmennskan allsráðandi og stundum virtust framlínumenn liðsins vera byrjaðir að spóka sig i sólinni á Flórída. Snorri Rútsson var traustur í vörninni en maður leiksins var án efa Páll í markinu. Hann átti stórkostlega góðan leik og bjargaði ÍBV frá stærra tapi. Markvarzla hans hélt spennu í leiknum fram á síðustu mínútu. Dómari var Þóroddur Hjaltalín og hafði hann ágæt tök á leiknum en var stundumfullfljóturá sér þannig að hinn brotlegi hagnaðist. Kópavogsbúar tóku í notkun nýja vallarklukku, fyrstu raf- ljósaklukku á knattspyrnuvelli hér- lendis. Völlurinn sjálfur er mjög góður, sennilega í betra ásigkomulagi en nokkur annar. -VS. Reynir vann Reynir, Sandgerði, sigraði Skalla- grim f Borgarnesi á laugardag i 2. deild Islandsmótsins i knattspyrnu með einu marki gegn engu. Sigurjón Sveinsson skoraði eina mark leiksins fyrir gestina. Þetta var sfðasti leikur beggja liða sem bæði komu upp úr 3. deild i fyrra. Reynismenn höfnuðu í 4. sæti og Skallagrfmur í sjöunda. Gengi Skalla- grims hefur verið mjög einkennilegt í sumar. Á heimavelli vann liðið aðeins einn einasta leik og hlaut 4 stig, en á útivöllum unnust aftur á móti fjórir leikir, þremur lauk með jafntefli og aðeins tveir töpuðust, i Keflavík og á ísafirði, báðir með eins marks mun. Með átíka árangri á heimavelli hefðu Borgnesingar verið i toppbaráttu 2. deildar. -VS.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.