Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Lið Liverpool gerði allt nema að skora í Ipswich West Ham enn í efsta sæti í 1. deild og Swansea í öðru sæti „Ipswich hefur oft leikiff betur og tapafi, Liverpool hefur oft leikiA verr og sigrað,” sagrti útvarps- marturinn kunni, Peter Jones, hjá BBC, eftir að UEFA-meistarar Ipswich höfðu sigrað Evrópumeistara Liverpool 2—0 í leik liðanna í 1. deildinni ensku á Portman Road á laugardag. Ipswich- liðið náði ekki sinum bezta leik en vann þó öruggan sigur. Liverpool sótli meira í leiknum en mætti ofjarli sínum í marki Ipswich, Paul Cooper. Hann hafði miklu meira að gera en markvörður Liverpool. Varði allt sem á markið kom. I.ivcrpool, með gömlu uppstillinguna lengstum, þar sem Mark Lawrensen er í leikbanni, 2ja leikja, frá Brighton-dögum sínum, gerði raunverulega allt í leiknum nema skora að sögn frétta- manna BBC. Ekki þar fyrir. Ipswich lék oft vel í leiknum og hafði þá heppni til að bera, sem nægði til sigurs. Á 15. mín. fór knötturinn í höfuð Phil Neal, bakvarðar Liverpool og beint i markið hjá Bruce Grobblelaar. Þar með hafði Ipswich náð forustu og síðara mark Ipswich skoraði John Wark úr ví'a.pyrnu. Það var á 64. mín. eftir að l 'v^'pool hafði sótt hvað mest. S ög! sókn Ipswich og misskilningj- aui sér stað milli mið- varða Liverpool, Phil Thompson og Allan Hansen. Allan Brazil komst frír inn í vítateig og Hansen greip til þess ráðs að halda honum. Víta- spyrna og Wark urðu nú ekki á nein mistök eins og á Old Trafford fyrri laugardag. Sendi knöttinn í markið með innanfótarspyrnu. — Grobble- laar kastaði sér í rangt mark- horn.Craig Johnston kom í stað Terry Mcdermott á 68. mín. en það breytti litlu. Leikmönnum Liverpool tókst ekki að koma knettinum í markið hjá Cooper. David Johnson fékk þó mörg góð færi, einnig Samy Lee. Cooper varði frábærlega frá þeim. Liðin voru þannig skipuð. Ipswich: Cooper, Mills, McCall, Osman, Butcher, Wark, Thijssen, Múhren, Gates, Mariner og Brazil. Liverpool: Grobblelaar, Neal, Allan Kennedy, Thompson, Hansen, Ray Kennedy, McDermott (Johnston), Souness, Dalglish, Johnson og Lee. Standa sig vel West Ham og Swansea, liðin, sem komust upp í 1. deild í vor ásamt Notts County, eru nú i tveimur efstu sætunum i deildinni og skora allra liða mest. Notts County í sjötta sæti. West Ham sigraði Stoke í mjög góðum leik á Upton Park i Lundúnum á laugardag með odda- markinu af fimm. Þar leit þó út fyrir stærri sigur. West Ham náði forustu með marki Paul Goddard á 7. min. en stærsta leikmanninum á vellinum, Brendan O’Callaghan, tókst að jafna fyrir Stoke með skalla. 1 — 1 í hálf- leik. Á 49. mín. náði West Ham aftur forustu með marki Goddard og á 67. mín. skoraði skozki lands- liðsbakvörðurinn Ray Stewart þriðja mark West Ham úr vítaspyrnu. Tveimur min. fyrir leikslok var dæmd vítaspyrna á West Ham og úr henni skoraði Paul McGuire fyrir Stoke. Swansea virtist stefna í stórsigur á heimavelli gegn Notts County. Áhorfendur þar voru aðeins 14 þúsund — tíu þúsund færri en í fyrsta heimaleik Swansea í 1. deild. Lands- liðsmenn Wales, Allan Curtis og Leighton James, skoruðu fyrir Swansea í fyrri hálfleik. Á 51. mín. skoraði Bob Latchford, fyrrum miðherji Englands, þriðja mark Swansea. Staðan 3—0 en undir lokin munaði sáralitlu að Swansea missti af þremur - stigunum. Ray O’Brien skoraði fyrir Nottingham-liðið á 65. mín. og á þeirri 85. minnkaði Ian McCulloch muninn í 3—2. Spennan vargífurleg síðustu fimm mínúturnar en County tókst ekki að jafna. Hefði þó átt það skilið. Trevor Christie hitti þverslá marks Swansea tvivegis í leiknum. En það er víst kominn tími til að líta á úrslitin á laugardag. 1. deild Arsenal-Sunderland 1 — 1 Aston Villa-Man. Utd. 1 — 1 Coventry-Leeds 4—0 Everton-Brighton 1—1 Ipswich-Liverpool 2—0 Man. City-Southampton 1 — 1 Middlesbro-Birmingham 2—1 Nottm. For.-WBA 0—0 Swansea-Notts. Co. 3—2 West Ham-Stoke 3—2 Wolves-Tottenham 0—1 2. deild Barnsley-Bolton 3—0 Blackburn-Orient 2—0 Chelsea-Watford 1—3 C. Place-Charlton 2—0 Derby-Leicester 3—1 Hibernian-Airdrie Partick-Aberdeen St. Mirren-Rangers 1—1 0—2 1 — 1 ' * **Íí*tJ ‘-Þó'' £•/’;/ Sunderland skoraði i gegn Sunder- land. Grimsby-QPR 2—1 Luton-Sheff. Wed. 0—3 Newcastle-Cambridge 1—0 Oldham-Shrewsbury 1—1 Rotherham-Cardiff 1—0 Wrexham-Norwich 2—3 3. deild Bristol Rov.-Burnley 2—I ' Carlisle-Southend 3—2 Doncaster-Exeter 3—0 Fulham-Bristol City 2—1 Gillingham-Chester 0—1 Huddersfield-Wimbledon 1 — 1 Newport-Oxford 3—2 Plymouth-Lincoln 0—2 Portsmouth-Brentford 2—2 Swindon-Preston 4—0 Walsall-Chesterfield 1 — 1 4. deild Aldershot-Halifax 3—1 Blackpool-Crewe 5—0 Bournemouth-Darlington 2—0 Bradford-York 6—2 Bury-Stockport 2—0 Hartlepool-Wigan 2—1 Northampton-Hull 1 — I Peterbro-Rochdale 5—1 Port Vale-Mansfield 0—0 Sheff. Utd.-Colchester 1—0 Torquay-Scunthorpe 1—0 Tranmere-Hereford 0—0 Skozka úrvalsdeildin Celtic-Morton 2—1 Dundee Utd.-Dundee 5—2 Bradford skoraði flest mörk allra liðanna í ensku deildunum eða sex. Liðið er nú undir stjórn Roy McFarland, fyrrum miðvarðar Derby og Englands. LiðVilla óheppið Englandsmeistarar Aston Villa, sem leika við Val á Villa Park á miðvikudag í Evrópubikarnum, voru óheppnir ?ð ná ekki sigri í leiknum við Man. Utd., neðsta liðið í 1. deildinni.Aston Villa náði forustu með marki Gordon Cowans á 18. min. eftir að Bailey, markvörður United, hafði fyrst varið. Man. Utd. tókst óvænt að jafna rétt fyrir leikhléið. Frank Stapleton sendi knöttinn i markið eftir fallega sóknarlotu Steve Coppell og Gary Birtles. í síðari hálfleiknum náði Villa aftur fyrri yfirburðum. Leikmenn Manchester-liðsins voru heppnir, þegar dómarinn sleppti augljósri vítaspyrnu á Arthur Albiston, þegar hann hélt Donovan, miðherja Villa. Og niu mín. fyrir leikslok munaði ekki miklu að Man. Utd. skoraði, aðeins undraverð markvarzla Rimmer frá Stapleton kom í veg fyrir það. Man. City og Southampton gerðu jafntefli á Maine Road. Dýrlingarnir náðu forustu að marki Kevin Keegans úr vitaspyrnu, sem dæmd var þegar Tommy Caton braut á Mike Channon. Keegan átti góðan leik en hins vegar sást Trevor Francis varla i City-liðinu. Malcolm Waldron gætti hans svo vel, að það var eins og þeir væru reimaðir saman með skóreimunum — eða það sögðu að minnsta kosti fréttamenn BBC. Kevin Reeves tókst að jafna fyrir City mínútu fyrir leikhléið. Fékk góða sendingu frá Tommy Hutchison og skoraði. í síðari hálfleiknum var Southampton betra liðið en tókst ekki að knýja fram sigur. Keegan var þó nálægt að skora. Francis slapp einu sinni frír frá gæzlumanni sínum, komst einn að markinu en tókst ekki að skora. Mark Sunderland nægði ekki á Sunderland Litill glans er á Arsenal þessa dagana. Liðið seldi tvo leikmenn til Brighton á föstudag, Steve Gatting fyrir 200 þúsund sterlingspund og írska landsliðsmanninn Sammy Nel- son, sem þó á við meiðsli að stríða. Fer niður á suðurströndina, þegar hann hefur jafnað sig á þeim. Áhorfendur voru rétt rúmlega 20 þúsund á Highbury og leikurinn lélegur. Bary Siddell góður i marki Sunderland en honum urðu á mistök á 78. mín. Það nýtti Alan Sunderland sér og skoraði eftir sendingu Graham Rix. Ekki nægði þetta mark Sunder- land Arsenal þó til að sigra Sunder- land. Gary Rowell jafnaði á 81. mín. og þar við sat. íþróttir HALLUR SiMONARSON Paul Cooper Ipswich. frábær 1 marki Um aðra leiki er það að segja, að það er annaðhvort í ökkla eða eyra hjá Coventry. Liðið vann nú stór- sigur á Leeds. Kornungur Hollendingur í liði Coventry, Keiser að nafni, skoraði fyrsta markið á 8. mín. Síðan skoraði Garry Thompson og staðan var 2—0 í hálfleik. Thomp- son skoraði annað mark í síðari hálf- leik og ungi miðherjinn Steve Whitt- on skoraði fjórða markið. Brighton náði jafntefli á Goodison Park í Liverpool gegn Everton. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik. Billy Wright, miðvörður Everton, náði síðan forustu fyrir lið sitt en Mike Robinson jafnaði fyrir Brighton. Enski landsliðsmarkvörðurinn Ray Clemence átti mjög góðan leik í marki Tottenham í Wolverhampton. Maðurinn bakvið sigur Lundúna- liðsins, sem vann sinn annan útisigui en hefur tapað báðum heima- leikjunum. Tony Galvin skoraði eina mark leiksins í siðari hálfleik. Joe Gallagher lék ekki í vörn Úlfanna, brákaðist á rist í 3. umferðinni. Middlesbrough lagði Birmingham á heimavelli svo Man. Utd. er nú eina liðið í 1. deild, sem ekki hefur sigrað í fjórum fyrstu umferðunum. Þeir Heine Otto og David Hogdson skoruðu fyrir Bori í fyrri hálfleik en Neil Whatmore eina mark Birming- ham í þeim síðari. Leikur Nottingham Forest og WBA þótti slakur. Tony Godden snjall í marki WBA. Justin Fashanu skaut yfir á 9. mín. en hinum megin fékk Garry Owens bezta tækifæri leiksins. Tókst hins vegar ekki að skora hjá Peter Shilton. Áhorfendur aðeins 22 þúsund og undir lokin varði Shilton mjög vel frá svarta bakverðinum Brendan Batson. Þrumuskot af 35 metra færi. Sheff. Wed. — lið Jackie Charlton og eitt af frægustu liðum Englands gegnum árin — er nú eina liðið í tveimur efstu deildunum með fullt hús stiga. Vann mjög athyglisverðan sigur í Luton á laugardag. Tony Curran átti stórleik í Sheffield-liðinu, tætti vörn Luton í sundur og það nýttu félagar hans sér í síðari hálf- leiknum. Skoruðu þá þrívegis. Fyrst Andy McCulloch, síðan Bannister. Enski landsliðsmaðurinn á árum áður, Brian Kidd hjá Bolton, lenti enn einu sinni í útistöðum við dómara. Var rekinn af velli í Barnsley. Bolton er neðst i 2. deild. Staðan er nú þannig: 1. deild West Ham 4 3 10 10—3 10 Swansea 4 3 0 1 11—8 9 Ipswich 4 2 2 0 8—5 8 Man. City 4 2 2 0 7—4 8 Southampton 4211 7—4 7 Notts. County 4211 6—5 7 Stoke 4202 8—6 6 Coventry 4 2 0 2 7—7 6 Tottenham 4 2 0 2 5—8 6 Brighton 4121 5—4 5 Everton 4121 5—4 5 Nottm. For. 4121 5—5 5 Sunderland 4121 6—7 5 Aston Villa 4112 5—5 4 WBA 4112 5—5 4 Arsenal 4112 3—4 4 Liverpool 4112 3—4 4 Birmingham 4112 7—9 4 Middlesbrough 4112 4—7 4 Leeds 4 112 5—10 4 Wolves 4103 2—8 3 Man. Utd. 4022 3—5 2 2. . deild Sheff. Wed. 4 4 0 0 7—0 12 Grimsby 4 3 1 0 8—4 10 Luton 4301 7—5 9 Barnsley 4211 8—2 7 Watford 4211 5—4 7 Leicester 4211 5—5 7 Norwich 4211 6—7 7 QPR 4 2 0 2 8—5 6 Chelsea 3 2 0 1 5—4 6 C. Palace 4 2 0 2 4—3 6 Blackburn 4 2 0 2 4—4 6 Derby 4 2 0 2 7—8 6 Rotherham 4 2 0 2 5—6 6 Shrewsbury 4 112 6—8 4 Cambridge 4 1 0 3 5—5 3 Oldham 3 0 3 0 4—4 3' Orient 3 1 0 2 3—5 3 Charlton 3 1 0 2 2—5 3 Newcastle 3 10 2 1—4 3 Cardiff 3 0 1 2 3—5 1 Wrexham 3 0 0 3 3—7 0 Bolton 3 0 0 3 1—7 0 Skozka úrvalsdeildin Celtic 3 3 0 0 10—4 6 St. Mirren 3 2 1 0 7—4 5 Dundee Utd. 3201 9—4 4 Hibernian 3 1 2 0 5—3 4 Rangers 3120 4—3 4 Morton 3 1 0 2 2—4 2 Dundee 3 1 0 2 6—9 2 Aberdeen 3 1 0 2 4—7 2 Airdree 3 0 1 2 6—10 1 Partick 3 0 0 3 2—7 0 •hsim. Trevor Christic — óheppinn Swansea. Tvö skot í þverslá.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.