Dagblaðið - 14.09.1981, Síða 21

Dagblaðið - 14.09.1981, Síða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. i 21 lþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 8 Bayern náði ekki meti Kölnar! Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen: FC Köln hefur um nokkurra ára skeið átt stigamet í 6 fyrstu leikjum Bundesligunnar, 11 stig. Þessu meti ætlaði Bayern Miinchen að ná eins og öllum öðrum metum og titlum sem þeim standa til boða. Það leit vel út, 10 stig eftir fimm leiki og i 6. umferð átti Bayern að mæta liði nr. 17 i Bundes- ligunni, Eintracht Braunschweig. En nýllðarnir komu tviefldir til leiks og léku afar vel. Eftir að Paul Breitner kom ekki meira inn á eftir hlé vegna meiðsla tóku þeir meistarana i kennslustund og sigruðu örugglega, 3—1. Kaiserslautern-Bielefald 4—0 Bielefeld átti enga möguleika í Kaiserslautern eins og tölurnar gefa til kynna. Edwald Linien lék að nýju með Bielefeld en 'varð að fara út af eftir klukkustund vegna úthaldsleysis. Hans-Peter Briegel skoraði á 18. mín. Friedhelm Funkel skoraði svo tvívegis eftir varnarmistök á 48. og 58. mín. og Hiibner bætti fjórða markinu við á 68. mín.Áhorfendur 20.00'). DUsseldorf-Darmstadt 2—2 Lélegasti leikur umferðarinnar og Diisseldorf er enn án sigurs í deildinni. Þeir náðu forystu á 19. mín. með marki Stetter, en Hudka jafnaði á 70. mín. Giinter Thiele skoraði fyrir Dusseldorf á74. mín. en Rudi Collet jafnaði á ný á 85. mín. Áhorfendur 10.000. Bremen-Bochum 3—1 Eftir 12 mínútur var staðan 2—0 fyrir Bremen og leikmenn Bochum virt- ust gefast upp. Aldrei var spurning um hvort liðið væri betra. Norbert Siegmann, sem slasaði Edwald Linen fyrr í haust, kom inn á sem varamaður hjá Bielefeld og var þetta fyrsti leikur hans eftir brotið. Þýzka knattspyrnusambandið ætlar ekkert meira að gera i málinu en Lienen ætia að fara fyrir opinberan rétt og kæra Siegmann fyrirlikamsárás. Kostedde og Uwe Reinders komu Bremen í 2—0 og Meier bætti því þriðja við á 62. mín. Schreier lagaði stöðuna fyrir Bochum á 80. mín. Áhorfendur 32.000. Frankfurt-Hamburger 3—2 Bezti leikur umferðarinnar. Bæði lið léku afar hraðan og opinn sóknar- leik. Hvað eftir annað voru leikmenn í opnum færum en ekki dró til tíðinda fyrr en á 41. mín. og þá svo um munaði. Kóreumaðurinn Bum-Kun Tscha skoraði þá fyrir Frankfurt með skalla. Glæsilegt mark og ekki var skallamark William Hartwig hjá HSV siðra er hann jafnaði mínútu síðar eftir undirbúning Manfred Kaltz. Mínútu síðar skoraði hann annað giæsimark með skalia, nú eftir undirbúning Felix Magath. Þrjú glæsileg skallamörk á þremur mínútum og HSV leiddi 1—2 í hléi. i síðari háifleik dró HSV sig heldur til baka og Frankfurt sótti án af- láts. Norbet Nachtweih jafnaði á 68. mín. með skoti af 20 m færi sem fór undir Steiner í marki HSV. Leikmenn HSV ætluðu sér sigur og fóru að sækja á ný og leikurinn varð mjög opinn og færi á báða bóga. Fimm mín. fyrir leikslok skoraði Ron Borchers sigur- mark Frankfurt. Áhorfendur 40.000. Köln-Duisburg 3—0 Úrslitin gefa ekki rétta mynd af gangi Ieiksins þvi leikur Kölnar var mjög slakur og fengu þeir tvö ódýr mörk í byrjun. Thomas Kempe skoraði sjálfsmark á 11. mín. og Bernd Cullmann bætti öðru við á 15. mín. Stefan Engels skoraði, 3—0, á 52. mín. Leikmenn Kölnar áttu í vikunni 5 tima fund með þjálfaranum Rinus Michels þar sem þeir gagnrýndu hann fyrir hvað hann væri harður við þá og vegna þess að þeir fengju aldrei lof hjá honum fyrir góðan leik. Áhorfendur voru aðeins 14.000 sem þykir lítið hjá Köln og segir það meira en mörg orð. Dortmund-Bor. M'gladbach 2—2 í 5 ár hefur Dortmund ekki tekizt að sigra Gladbach og ekkert breyttist á laugardag þó Branko Zebec sé nú þjálf- ari Dortmund. Jafnt var fram í 34. mín. en þá kom rothöggið, Gladbach skoraði þrjú mörk á fimm mínútum. Wuttke fyrst og síðan Frank Mill tvívegis. Leikmenn Dortmund vildu ekki gefast upp og Manfred Burgsmilller og Riidiger Abramczik skoruðu tvívegs strax eftir hlé. Dortmund óð í færum eftir það og með ólíkindum hvernig þeim tókst að kom- ast hjá því að skora. Atli Eðvaldsson kom inn á fyrir hinn lélega Brend Klotz á 72. mín. og stóð sig vel. Hann hlýtur að fá að byrja inn á í næsta leik. NUrnberg-Stuttgart 0—0 Undir stjórn hins nýja þjálfara Klug ( = klókur) náði Nilrnberg sínu fyrsta stigi og við skulum sjá hvort hann er nógu klókur til að stýra liðinu úr fallhættu. Stuttgart lék illa í Nilrnberg og leikurinn var lélegur. Karl-Heinz Förster, landsliðsmaður, lék að nýju með Stuttgart eftir langvarandi meiðsli en aftur á móti var Hans MUller meiddur. Bæði lið voru rög við að sækja og taugaveiklunar gætti upp við mörkin. Frakkinn snjalli, Didier Six, átti sinn lélegasta leik með Stuttgart til þessa. Áhorfendur 25.000. Karlsruhe-Leverkusen 1—2 Óvæntur útisigur Leverkusen sem skauzt þar með upp í 10. sætið. Leverkusen lék betur og átti sigur skilið. Peter Szech skoraði á 9. mín. fyrir gestina en Heinke jafnaði á 50. mín. JUrgen Glowacz skoraði sigurmark Leverkusen á 85. mín. úr víti. Áhorfendur 18.000. Braunschweig-Bayern 3—1 Óvænt úrslit en sanngjörn. Fjóra leikmenn vantaði í lið Bayern, Dieter Höness, Kurt Niedermayer, Bertram Beierlorzer og Ásgeir Sigurvinsson, sem allir voru meiddir. Á meðan Paul Breitner naut við var Bayern sterkara og á 37. mín. var Rummenigge brugðið innan teigs og réttilega dæmd vita- spyrna. Breitner skoraði en litlu munaði að Bernd Franke tækist að verja.Nokkrum sekúndum fyrir hlé var Manfred Tripbacher felldur rétt utan vítateigs Bayern. Hann var fljótur að taka spyrnuna og sendi beint á kollinn á Ronald Worm sem jafnaði 1 — 1. Þegar Breitner var horfinn af velli náði Braunschweig tökum á miðjunni. Þá var ekki að sökum að spyrja og Bayern mátti þola sitt fyrsta tap í haust. Wolf- gang Grobe á 58. mín. og Zawisic á 87. mín. tryggðu Braunschweig sigur. Leikurinn var rétt þokkalegur knatt- spyrnulega séð en gleði hinna 32.000 áhorfenda var ósvikin. Staðan í Bundesligunni er þessi: Bayern 6 5 0 1 18—9 10 Hamburger 6 3 2 1 15—9 8 Bochum 6 4 0 2 12—8 8 Köln 6 4 0 2 11—7 8 Bremen 6 3 2 1 10—7 8 Gladbach 6 3 2 1 12—10 8 Kaiserslautern 6 2 3 1 13—10 7 Frankfurt 6 3 1 2 12—10 7 Stuttgart 6 3 1 2 9—7 7 Leverkusen 6 2 2 2 8—13 6 Darmstadt 6 1 3 2 9—9 5 Dortmund 6 2 1 3 8—9 5 Duisburg 6 2 1 3 9—11 5 Braunschweig 6 2 0 4 8—11 4 Karlsruhe 6 1 2 3 7—12 4 Bielefeld 6 1 2 3 5—10 4 Diisseldorf 6 0 3 3 7—11 3 Núrnberg 6 0 1 5 4—14 1 I 2. deild er nú mikil spenna. Fimm lið eru efst og jöfn með 10 stig eftir 8 umferðir og er Fortuna Köln, lið Janusar Guðlaugssonar, eitt jteirra. Sex lið hafa 9 stig. Fortuna Köln náði góðu jafntefli, 2—2, á útivelli gegn Stuttgart Kickers um helgina. Janus átti mjög góðan leik að vanda. Hann brá sér öðru hvoru í sóknina og átti þrumuskot af 25 m færi sem mark- vörður Kickers varði naumlega. Viggó/VS. Ajax á toppinn Úrslit í 6. umferð hollenzku I. deild- arinnar i knattspyrnu sem leikin var um helgina: AZ 67-Roda Kerkrade 4—0 Haarlem-Utrecht 2—0 Nijmegen-Go Ahead 1—3 Feyenord-PSV Eindhoven 2—4 Willem II-Breda 2—1 PEC Zwolle-Sparta 1—1 Twente-Groningen 1—1 De Graafschap-Den Haag 1—1 Maastricht-Ajax 0—2 Staða efstu liða er þessi: Ajax 6 4 1 1 25—6 9 GoAhead 6 4 11 13—6 9 Sparta 6 3 3 0 11—6 9 PSV Eindhoven 6 4 0 2 18—13 8 AZ67 6 3 1 2 15—8 7 -VS. Kóreumaðurinn Bum-Kun Cha skoraði glæsilegt mark fyrir Frankfurt gegn HSV. V-þýzki handboltinn: Óvænt hjá Leverkusen Viggó skoraði 7 mörk Úrslit í v-þýzka handknattleiknum Sigur Leverkusen ar mjög óvæntur. Viggó Sigurðsson var markahæstur leikmanna iiöshi. með 7 mörk. Giinzberg virðisi hafa miög gott tak á Gummersbach. Vann einnig heimaleikinn i deildinni í fyrra og sló Gummersbach út úr bikarkeppninni. -VS. um helgina: Dortmund-Grosswallstadt 15—17 Giinzberg-Gummersbach 23—18 Essen-Nettelstedt 28—21 Núrnberg-Dietzenbach 18—17 Kiel-Hofweier 19—17 Berlin-Göppingcn 20—17 Húttenberg-Leverkusen 15—21 *ÖÖV1ÍNAÍ TERMÍNAI TERMíNAÍ PRJB3E- fESTK^B termÍnÆ haarbaD ^rmínai áídífcw# ftfc TERMINAL PROFESSIONAL Al/ar nánari upp/ýsingar varðandi námskeiðið á Hársnyrtistofunni Papillu, sími 17144. LEIÐBEINANDI: I TÓRFI geirmundsson. Hársnyrtiefni fyrir fagfó/k, aðeins til endursölu hjá því. Námskeið verður ha/dið í þessari viku í meðferð á þessum efnum ásamtöðrum vörum frá Kadus.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.