Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 26
26
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
NYIR OG SPENNANDI
Bílaverksmiðjur byggja öðru
hvoru nýja og eftirtektarverða
tilraunabíla. Þessir bílar eru
síðan þrautreyndir við allskonar
aðstæður.
Sumir þessara bíla eru gerðir
eins og til skemmtunar sjálfum
bílasmiðunum, en aðrir verða
smám saman
framleiddum
almenning.
fjölda-
fyrir
að
bdum
Ein skemmtan bílasmiða er að
byggja nýtt boddí á
gamalkunna grind og trylla
jafnframt upp mótorinn auk
annarra breytinga. Þessar
tilraunir eru oft býsna athyglis-
verðar og á þessari siðu skoðum
við nokkur dæmi.
Audi frá
Pininfarina:
Þessi bíll er gerður í samvinnu
Pininfarina og Audi. Pininfarina fór
að leika sér með Audi Quatro og þetta
er útkoman, bíll sem stal senunni á
bílasýningunni í Geneva ’81. Svona út-
færður heitir bíllinn Pininfarina
Quartz. í honum er 5 st: okka vél og há-
markshraði er sagður yfir 220 km.
Þá má bæta við þeim fréttum að
Audi vinnur nú mjög að fjögurra hjóla
drifi og mun þess að vænta að Audi
fólksbílar verði fáanlegir með drifi á
„öllum” innan skamms.
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
^_____yæ"
íkvöldfrákl. 21.
i Veitingarfrá kl. 19.
HORNIÐ
HAFNARSTRÆT115
Tveggja
manna ---
eldflaug:
Ómar og Jón Ragnarssynir hafa
nýlega iýst því yfir að senn muni þeir
láta Renóinn sinn og fá sér annan.
Þegar ég svo komst yfir fróðleik um
nýjan Renó, sem kallaður er R5 Turbo,
lagði ég saman 2 og 2 og fékk út að
vitanlega myndu þeir bræður fá sér
þessa eldflaug Renó R5 turbó (eða
vonandi).
Vélin er gefin upp 160bhp og há-
markshraði um 200 km. Viðbragð í 100
km um 6 sek. og gerir t.d. Porsche
928S ekki betur.
Fyrir bílaáhugamenn er svo ekki
annað en bíða og vona, þetta hlýtur að
vera billinn sem Ómar og Jón koma á í
keppnirnar 1982 og þá mun þurfa
hraust og harðsnúið lið til að sigra þá
bræður.
Ghia Ford:
Hér er annar Ford, en hann heitir
raunar AC ME 3000 Ghia en er
framleiddur fyrir Ford og er með Ford
V6 vél.
Skæðir fréttamenn segja að þessi
bíl muni ætlaður í rallkeppnir er
jafnframt sem götubíll.
Örfáar sekúndur,
í öryggisskyni.
«iux
FERÐAR
Þríhjóla
Ford:
Messerschmidt þriggja hjóla kúlan
var um tíma þekkt ökutæki og mun
m.a. slíkt farartæki hafa verið hér um
tíma. Erlendis er nokkuð um slík tæki
enn og t.d. í Englandi er til nær full-
vaxinn bíll með þessu lagi, þ.e. þriggja
hjóla, Reliant. Nú hefur Ford gert sér
slíkan bíl og líkt og oft þegar vanda
skal til hlutanna er leitað til Ítalíu um
teikningu yfirbyggingar. Það er Ghia
sem sér um útlitið, Ford um tæknina en
vélin er 200 rúmsentimetra 12 bhp frá
Piaggio.
Þetta er svo sniðugt farartæki að við
skoðum það i krók og kring á þremur
myndum.
afturhjólinu sem svifta má frá með
einu handtaki. Tilgangurinn með þess-
ari hlíf er sá að minnka loftmótstöðu
enda er svokallaður drag factor undir
0,3
Hér sjáum við enn eina yfirbyggingu
frá Ghia, og er sú gerð á Escort 1,1 lítra
og heitir Avant Garde two plus two.
í einu nota ítalirnir franska hug-
mynd frá Citroén, en það er hlífin yfir
Líka Escort:
SÍMI í MÍMIER 10004
FJÖLBREYTT OG SKEMMTILEGT
TUNGUMÁLANÁM.
Stjórnklefinn:
Það er ekki við hæfi að kalla plássið
fyrir ökumenn Renó 5T annað en
stjórnklefa svo sem gert er um eldflaug-
ar.
Sætin eru vel löguð og stillanleg svo
Ómar ætti að vera fljótur að fá sér
sínar frægu „kríur” í hvíld frá keppni.
Krístinn Snæland