Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 14.09.1981, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . V . Leo Sayer—Beztu kveðjur Skrautfjaðrir fallandi stjömu Gamli trúðurinn og vinsældalista- kóngurinn Leo Sayer er óðum að falla í gleymsku og dá. Þeir tímar eru nú löngu liðnir að nýtt lag með honum rjúki beint í toppsæti listanna. Þó komst hann í annað sætið í Englandi í ágústbyrjun í fyrra með lagið More Than I Can Say. En síðan ekki söguna meir hvað sem síðar kann að verða. Það sem einna merkilegast er við tvöföldu hljómplötuna Beztu kveðjur er að hún hefur ekki komið opinberlega út neins staðar í heiminum áður. (Bretinn telur ísland kannski ekki til hins almenna heimsmarkaðar.) Hún var seld í Englandi í litlu upplagi gegn póstkröfu og þar heyrðu útgefendur plötunnar hér á landi fyrst af henni. Þar sem plötur Sayers hafa yfirleitt ekki verið til hér á landi öll þau ár sem hann hefur notið vinsælda þótti rétt að kanna möguleikann á að fá að gefa hana út. Og það leyfi fékkst. Því er alls ekki hægt að tala um tímaskekkju með því að gefa út 24 laga safn (tvær plötur) vinsælustu laga Leos Sayer nú, þótt stjarna hans fari fallandi. Þau hafa einfaldlega ekki verið til áður. Þarna er að finna You Make Me Feel Like Dancing, Thunder In My Heart, When I Need You, Train, Moonlightning, One Man Band og fleiri minnisstæð lög af ferli Sayers. Og ekki má gleyma laginu The Show Must Go On sem varð til þess að vekja athygli á þessum lágvaxna trúði árið 1973. Nokkur lög eru þarna einnig af plötunni Living In Fantasy sem kom út síðla árs í fyrra. Þar á meðal er lagið More Than I Can Say. Eitt lag er hljóðritað á þessu ári. Það nefnist Bye Bye Now My Sweet Love. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt þess getið áður — þýst þó tæplega við að um frumút- gáfu á því sé að ræða. Fyrir þá sem þeðið hafa óþreyjufullir eftir lögum Leos Sayer er platan Beztu kveðjur kærkomin á markaðinn. Fyrir okkur hin sem getum sofið rótt, án þess að hafa plötu með honum undir koddanum, er hún einfalt halló og bless. -ÁT- WSSVALORY 6REÖO ROIJK 8TKVKSMITH STKVK ÞKURY NEALSCHOÍ BRÚÐAN sem: gengur talar og syngur Hárið er sítt/stutt og greiða má eftir ósk eða smekk 93 cm á hæð Mikið úrval af brúðum í öl/um stærðum HEILDSALA - SMÁSALA jagga. BLÁBER H/F w ÞINGHOLTSSTRÆTI 6 SÍMI 29488 Umboðsmenn vantar um land allt 7 HANDVERKSBAKARAR A&B BAKARÍIÐ Dalbraut 1 ÁLFHEIMABAKARf Altheimum 6 ÁRBÆJARBAKARÍ Rofabæ 9 BAKARAMEISTARINN SUÐURVERI Stigahliö 45-47 BAKARINN LEIRUBAKKA Leirubakka 34 BAKARÍIÐ AUSTURVERI Haaleilisbraut 68 BERNHÖFTSBAKARÍ Bergstaöastræti 14 BREIÐHOLTSBAKARf Voivutelli 13 BJÖRNSBAKARl GRlMSBÆ Efstalandi 26 HLÍÐABAKARÍ Skaftahliö 24 KÖKUBANKINN Miövangi 41 Hafnarfiröi KÖKUVAL Laugarísvegi 1 MIÐBÆJARBAKARl BRIDDE Haaleitisbraut 58-60 SNORRABAKARi Hverfisgotu 61 Hafnarfiröi ÞÓRSBAKARf Borgarholtsbraut 19 Kópavogi Nú er rétti tíminn að fá sér IHilA hillu- skilvegginn bjóða upp á fjöl- breytt val í skáp- um, hillum, blóma- kössum o.fl. 11111 Hillu skilveggir SHÁIA hilluskilveggurinn er til afgreiðslu með stuttum fyrirvara (HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR) HÚSGÖGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.