Dagblaðið - 14.09.1981, Síða 36
Þýzkt ávaxtaheildsölufyrirtæki neytt til þess að stöðva sölu til íslenzks
innflutningsfyrirtækis:
Hart að sætta sig við
slíkar „maffuaðgerðir”
— segja innf lytjendurnir, og gruna ákveðið fyrirtæki um bragðið
„Okkur þykir það leitt en því
miður neyðumst við til að hætta
viðskiptum við ykkur. Ástæðan er sú
að aðrir viðskiptavinir okkar og vinir
í Reykjavík hafa kvartað yfir sam-
skiptum okkar við ykkur. Við höfum
skipt við þessa aðila í fjöldamörg ár
og um umtalsverð viðskipti hefur
verið að ræða allan ársins hring. Þeir
hafa gert okkur ljóst að ef við ekki
hættum að selja ykkttr ávexti muni
ekki verða frekari viðskipti af
þeirra hálfu. Vegna þessa og með
hliðsjón af áralöngum viðskiptum
við þessa aðila höfum við ákveðið að
verða við óskum þeirra.”
Þannig hljóðar skeyti frá þýzka
ávaxtaheildsölufyrirtækinu Frúco
sem barzt íslenzka innflutningsfyrir-
tækinu Fæði fyrir alla á föstudag.
Það er Ananda Marga hreyfingin,
sem stendur á bak við þessa inn-
flutningsverzlun og hefur selt ávexti á
afar hagstæðu verði á útimarkaðnum
á Lækjartorgi í allt sumar, auk þess
að reka kornvöruverzlun á Skóla-
vörðustíg.
„Við grunum ákveðið heildsölu-
fyrirtæki um að standa á bak við
þessar þvingunaraðgerðir. Að því er
við bezt vitum hafa aðeins tveir aðrir
aðilar á íslandi keypt ávexti af Frúco.
Annar aðilinn er mjög stór heild-
verzlun á þessu sviði,” sögðu þeir
félagar Andrés Magnússon, Gutt-
ormur Sigurðsson og Sigmar Arnórs-
son er DB hitti þá að máli um
helgina. Þeir hafa að miklu leyti séð
um þennan rekstur.
„Það er augljóst að þessum heild-
sala hefur ekki líkað það að við
gátum boðið ávexti á 20—30% lægra
verði én hann í sumar og því hefur
hann gripið til þessarra miður
skemmtilegu aðgerða. Við vitum það
ekki fyrir víst en höfum óstaðfestan
grun um að þessi sami heildsali hafi
orðið að lækka vöruverð sitt og það
hefurvafalítið verið honum þvert um
geð,” sögðu þeir félagar.
„Fólk kom oft um langan veg til
að verzla við okkur og líkaði vel. Það
er ekki einungis að þessum aðgerðum
sé stefnt gegn okkur heldur teljum
við að hér sé verið að ógna úti-
markaðnum í heild og það væri
afleitt ef hann legðist niður, jafn-
mikil áhrif og hann hefur haft á
bæjarlífið. Okkur þykir hart að
verða að sætta okkur við slíkar
„mafíuaðgerðir” og hyggjumst leita
réttar okkar. Það er útilokað að
svona aðgerðir geti verið lögmætar”.
-SSv.
Bergþór Guðjónsson kemur úr einni drullugryfíunni sem torfœrubiiarnir þurftu að komast yfir. Bergþór er gamaireyndur I torfceruakstri og sigraði meðal annars á
Akureyri fyrr i sumar. DB-mynd: Árni Bjarna.
Torfærukeppni Stakks á Suðurnesjum:
Sigurvegarinn ók 35 ára gömlum jeppa
Bergþór Guðjónsson vann torfæru-
keppni þá sem björgunarsveitin
Stakkur gekkst fyrir á Suðurnesjum i
gær. Bergþór ók Willy’s jeppa, árgerð
1946, — með fjögurra strokka Volvo
turbo mótor.
Torfærukeppnin fór fram í prýðis-
góðu veðri við Grindavíkurveginn.
Keppendurnir sex þurftu að aka niu
brautir sem margar hverjar reyndust
ærið erfiðar. Meðal annars buðu
Stakksmenn upp á eina tímabraut. Ef
bíllinn komst hana ekki af einhverjum
orsökum varð bílstjórinn að gjöra svo
vel að snarast út og hlaupa í mark.
Sigurvegarinn hlaut 2270 stig og
tímabrautina fór hann á 1:47,3 mín-
útum. í öðru sæti varð Guðmundur
Gunnarsson og Gunnar Guðjónsson í
þriðja sæti. Þeir óku báðir Willy’s
jeppum. Meðal keppenda voru rallöku-
mennirnir Hafsteinn Hauksson og
Jón Ragnarsson. Þeir höfnuðu í fjórða
og fimmta sæti á Suzuki jeppum. Lest-
ina rak svo Már Finnbogason á Mosk-
witch sem byggður hafði verið á Willy’s
grind.
-ÁB/ÁT.
Fyrstu tölur í norsku kosningunum í kvöld:
KARE villoch næsti
FORSÆTISRÁÐHERRA
— borgaraflokkunum spáð meirihluta—yngstu kjósendurnir fremur
áhugalitlir
Frá Sigurjóni Jóhannssyni, fréttarit-
ara DBÍ Osló:
í kvöld kl. 7 að íslenzkum tíma
koma fyrstu tölurnar í kosningunum
til norska Stórþingsins. Að þeim
tölum séðum ætti að vera ljóst hvort
norski Verkamannaflokkurinn
verður að sætta sig við að vera í
stjórnarandstöðu næstu fjögur árin.
Allar kosningaspár benda til þess
að borgaraflokkarnir þrír, Hægri
flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristi-
legi flokkurinn, fái meirihluta á þingi
og myndi rikisstjórn.
Rikisstjórnarskipti geta fyrst orðið
13. október, því að hinn 12. október
mun núverandi rikisstjórn leggja
fram tillögur sínar um fjárlög fyrir
árið 1982.
Kosningaspár benda til þess að
norski Verkamarinaflokkurinn fái
35—36% atkvæða og Hægri flokkur-
inn allt að 32—33 % atkvæða.
Kosningabaráttan hefur snúizt afar
mikið um persónurnar Gro Harlem
Brundtland og Káre Willoch, sem
verður örugglega næsti forsætisráð-
herra, ef kosningarnar falla á þann
veg, sem nú er spáð.
Stóra spurningin í þessum kosning-
um er þátttaka þeirra sem nú kjósa í
fyrsta skipti, þeir sem náð hafa 18
ára aldri. Sá hópur er almennt mjög
áhugalitill um stjórnmál. Þó má gera
ráð fyrir því, að Hægri flokkurinn
fái meiri hlutann af atkvæðum þessa
aldurshóps.
Þátttakan í kosningunum lítur að
öðru leyti út fyrir að verða mjög
mikil. Kosið er í tvo daga, i gær og í
dag, um 155 þingsæti, alla þingmenn
norska Stórþingsins.
-SJ/BS.
frfálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 14. SEPT. 1981.
Vilmundur mótmælir
ályktun útvarpsráðs:
„Ályktað á
skjön við
veruleikann”
„Það er óskiljanlegt hvernig sjö út-
varpsráðsmenn, sem ætla mætti að
væru bæði læsir og skrifandi, geta
komið saman og ályktað með þessum
hætti, alfarið á skjön við veruleikann,”
segir meðal annars í fréttatilkynningu
sem Dagblaðinu hefur borizt frá Vil-
mundi Gylfasyni, ritstjóra Nýs lands.
í fréttatilkynningunni eru rakin
dæmi um það sem nefnt er óheiðarleg-
ur fréttaflutningur fréttastofu útvarps-
ins. Eru þau dæmi um fréttir af kosn-
ingabaráttunni í Frakklandi, viðtal við
Ellert Schram, fréttir af stöðvun Al-
þýðublaðsins í sumar og útkomu Nýs
lands í kjölfar þess ásamt með fréttinni
um skipulagsbreytingar í Alþýðu-
flokknum. Þeirri frétt mótmælti Vil-
mundur mjög kröftuglega í þættinum
Á vettvangi í útvarpinu 8. september.
Ályktun útvarpsráðs, sem vitnað er til
hér að framan, er komin til vegna
þeirra mótmæla og í henni talað um
órökstuddar aðdróttanir og fullyrðing-
ar. Vilmundur vill hins vegar meina að
með m.a. þessari ..fréttatilkynningu
hafi allar ásakanir hans á hendur
fréttastofu verið rökstuddar. DS
Þjófaráferð
íNjarðvík
Brotizt var inn í skrifstofur Hitaveitu
Suðurnesja í Njarðvík um helgina en í
sama húsi eru aðrar skrifstofur sem
einnig var farið í. Var þarna sparkað
upp hurðum og skúffur stungnar upp.
Ekki er enn vitað um nema 1200 kr.
sem hurfu en málið er á frumstigi rann-
sóknar. í verkstæði á jarðhæð var
mikið af dýrum tækjum og verk-
færum.
Um helgina var líka farið í skrifstof-
ur Sjöstjörnunnar í Njarðvík. Reynt
var að opna peningaskápinn en tókst
ekki. -A.St.
SL
Q
Ö
lv!K®®yS
í yííÖJHVERRI
Vinningur vikunnar:
Tíugíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vinningur í þessari viku er 10
gira DBS eða Raleigh reiðhjólfrá
Fálkanum, Suöurlandsbraut 8 I
Reykjavík.
1 vikunni verður birt, á þessum
stað l blaðinu, spurning tengd smá-
auglýsingum Dagblaðsins. Nafn
heppins áskrifanda verður slðan.
birt daginn eftir í smáauglýsingun-
um og gefst honum tœkifœri til að
svara spurningunni. Fylgizt vel
með, áskrifendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegu
reiðhjóli rlkari.
,i •: i i,
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Sanilas