Dagblaðið - 19.09.1981, Blaðsíða 1
9
7. ÁRG. — LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981 - 212. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
eða í gærmorgun. Þegar vinnufélagar
hans komu heim á Grenimel í gær-
morgun svaraði enginn ítrekuðum
hringingum á dyrabjöllu og því var
brugðið á það ráð að leita til næsta ná-
granna sem komst inn í ibúðina og sá
hvers kyns var. Var aðkoman mjög Ijót
og greinilegt að þar höfðu orðið tais-
verð átök. Lögreglan var þegar kvödd
til. Fannst Hans þá liggja.tdi á gólfi í
íbúðinni og skærin, sem hann hafði
verið myrtur með, þar hjá.
Vitað er að Hans Fritz Joachim átti
von á gestum sl. miðvikudagskvöld.
Hraðaði hann störfum sínum í vinnu
þess vegna. Ekki var vitað með vissu í
gærkvöld hverjir voru gestir Hans þetta
kvöld en líklegast er talið að hann hafi
verið myrtur í framhaldi af því sam-
kvæmi.
-ÓV/BS.
15ÁRÁ
ÍSLANDI
Hans Fritz Joachim Wiedbusch, sem
fannst myrtur í íbúð sinni í Reykjavík í
gærmorgun, kom fyrst til íslands á
miðju ári 1966. Hafði hann þá lokið
námi í blómaskreytingum í Hamborg
og starfað síðar við þekkta blómaverzl-
un í Osló i Noregi. Hann fæddist i
Þýzkalandi 10. ágúst 1936 og var þvi
nýlega orðinn 45 ára gamall.
Fljótlega eftir að hann kom til
landsins réðst hann til starfa hjá
Blómum og ávöxtum og starfaði hjá
því fyrirtæki í samfleytt fjórtán ár. Gat
hann sér þar gott orð, þótti bæði fær í
starfi og traustur starfsmaður.
Síðastliðið haust réðst Hans Wied-
busch til verzlunarinnar Blómavals i
Sigtúni I Reykjavík og starfaði þar til
dauðadags. Hann var ókvæntur og átti
enga ættingja hér en fjölmarga vini.
Vitað er að í Austur-Þýzkalandi átti
hann tvo bræður sem hann hafði
ítrekað reynt að hjálpa til að komast til
íslands. Til þess fékkst aldrei leyfi
stjórnvalda í Austur-Þýzkalandi.
-ÓV/BS.
Lögreglan leitar nú ákaft morðingja
austur-þýzka blómaskreytingamanns-
ins Hans Fritz Joachims Wiedbusch,
Grenimel 24 i Reykjavík. Hann fannst
myrtur á heimili sínu laust fyrir kl. 10 í
gærmorgun, stunginn mörgum
stungum. Samkvæmt upplýsingum
Dagblaðsins mun morðvopnið hafa
verið skæri.
Það var íbúi í kjallara hússins sem
fyrst kom að Hans Wiedbusch. Hann
kom ekki til vinnu sinnar í Blómavali
við Sigtún kl. 15 á fimmtudaginn, eins
og til stóð, og lét ekki vita af sér. Þegar
hann kom ekki til vinnu í gærmorgun
fóru vinnuveitendur hans að hafa
áhyggjur þar sem Hans var mjög sam-
vizkusamur starfsmaður og lét aldrei
bregðast að tilkynna forföll. Þá hafði
hann ekki svarað í síma á fimmtudag
Hans Frite Joachim Wiedbusch blómaskreytingamaður við vinnu sina i
Blómavali í Reykjavik skömmu fyrir síðustu jól. Þar haföi hann unrúð i tæpt
ár. DB-mynd: Einar Ólason.
segir rannsóknarlögreglustjori
Stöðugar yfirheyrslur voru hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins í gær og
i gærkvöld þegar leitað var morð-
ingja Hans Wiedbusch. „Enginn er
ennþá hafður fyrir beinni sök,” sagði
Halívarður Einvarðsson, rannsókn-
arlögreglustjóri ríkisins, um kvöld-
matarleytið þegar DB hafði samband
við hann. Hallvarður gat þess að
bæði íslendingar og útlendir menn
sættu yfirheyrslunum.
Rannsóknaraðilum er kunnugt að
Hans Wiedbusch umgekkst öðrum
fremur ákveðinn hóp karlmanna í
Reykjavik. Rannsóknin beinist ekki
sízt að því að kanna hverjir i þeim
hópi hafi síðastir manna umgengizt
hann.
Þegar eftir að líkið fannst á Greni-
mel 24 í gærmorgun voru starfsmenn
tæknideildar, Rannsóknarlögreglu
rikisins kallaðir til, svo og réttar-
læknar. Þá þegar var ekki hægt að
timasetja dauða hans en réttarkrufn-
ing mun leiða allnákvæmum líkum
að því hvenær honum var ráðinn
bani.
Hallvarður Einvarðsson sagði í
samtali við fréttamann blaðsins i gær
að tæknideild RLR stæði i þessu máli
andspænis erfiðri vettvangsrannsókn
sem ef til vill kynni að ráða úrslitum í
þessumá.i. -ÓV/BS.
Húsiðað Grenimei24iReykjavík þarsemHans Wiedbusch fannstmyrturí
gærmorgun. íbúð hans var á fyrstu hæð jtar sem biúndugardínur eru fyrir
giuggum. ibúii kjallara kom fyrstur á vettvang i gærmorgun.
DB-mynd: Sig. Þorri.
ENGINN HAFÐUR ENN
FYRIR BEINNISÖK
SUMARMYND1981 - ÚRSUT UM NÆSTU HELGI