Dagblaðið - 06.10.1981, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
Umboðsmenn óskast
ESKIFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast á Eskifirði, upplýsingar
hjá umboðsmanniísima 97-6331 eða 91-27022.
VÍK í MÝRDAL
Umboösmaður óskast í Vík í Mýrdal, upplýsing-
ar hjá umboðsmanni í síma 99-7161 eða 91-
27022.
imBum
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
SÍMAR 29555 OG 29558
OPIÐ KL1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA.
Baldursgata
2ja herb. ósamþykkt kjallaraíbúð, verð kr. 200.000,00.
MelgeríH, Kóp.
3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00.
Hörgshtíð
Einstaklingsíbúð til sölu. Verð tilboð.
Ljósheimar
3ja herb. ibúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrir
sams konar eign með stórum stofum.
Leirubakki
4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd-
uð eign, verð kr. 700.000,00.
Lækjarkinn
3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her-
bergi i kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00.
Kaplaskjólsvegur
5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr.
650.000,00.
Breiöás
5 herb. stór sérhæð, falleg ræktuð lóð, fagurt útsýni,
bílskúrsréttur, verð kr. 700.000,00.
Háaleitísbraut
4ra herb. íbúð á 4. hæð, 117 ferm. plús bílskúr, hugsanlegt
að taka tvær minni eignir upp i.
Kjarrhólmi
3ja—4ra herb. 100 ferm íbúð á 3 hæð, verð kr. 550.000,00.
Bjargartangi — Mosfellssveit
Sérhæð með bílskúr, 3 svefnherbergi, plús stórar stofur,
samtals 150 ferm, verð kr. 700.000,00.
Sandgerði
Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr.
850.000,00.
Sandgerði
3ja herb. 110 ferm ibúð í tvíbýlishúsi, verð kr. 240.000,00.
Óskum eftir
3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi,
einbýlishúsi í gamla bænum , með bílskúr, einbýlishúsi
eða góðri sérhæð í Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi í Heima-
hverfi, Langholti eða Laugarnesi.
LÓÐIR:
Esjugrund — Kjalarnesi,
sökklar að raðhúsi, allar teikningar fylgja, búið að greiða
öll lóðargjöld, verð kr. 180.000,00.
Byggingarlóð í Garðabæ, verð kr. 150.000,00.
Byggingarlóð á Álftanesi 937 ferm byggingarlóð, verð kr.
150.000,00.
Byggingarlóð á Arnarnesi, rúmlega 1700 ferm byggingar-
lóð á fallegum stað.
Nánari uppl. á skrifstofunni, ekki í síma.
SK0ÐUM OG METUM ÍBÚÐIR
SAMDÆGURS.
GÓÐ OG FUÓT ÞJÓNUSTA
ER KJÖRORÐ OKKAR.
AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU
Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM.
EIGNANAUST,
Þ0RVALDUR LÚÐVlKSSON HRL.
t
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir útvarpsþulun Óvenju iífleg og hnyttin í kynningum sínum, skrifar Valdi. DB-mynd Bj.Bj.
Áheyrilegt morgunútvarp
Valdi skrifar:
Það ber að geta þess sem vel er
gert og nú langar mig að biðja Dag-
blaðið að koma á framfæri þökkum
til Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur, út-
varpsþular, fyrir góða frammistöðu í
morgunútvarpinu undanfarið. Ragn-
heiður Ásta er óvenju lífleg og hnytt-
in í kynningum sínum — og raunar
kærkomin breyting frá þeirri einok-
un, sem ríkt hefur í morgunútvarpinu
síðan ég man fyrst eftir mér. Ekki vil
ég þó gera lítið úr þeim starfsmönn-
um útvarpsins, sem skiptast á við
hana um morgunútvarpið, en engu
að síður get ég ekki látið hjá líða að
lýsa þeirri skoðun minni, að hægt er
að fá nóg af öllu, Iíka Andrews Sist-
ers og Comedian Harmonists.
Ragnheiður Ásta velur lög við
allra hæfi, tengir þau skemmtilega
saman með kynningum sinum og
hefur lipran húmor, sem er gott að
vakna við og hefja vinnudag með.
Kærar þakkir, Ragnheiður Ásta,
oggangi þérvel.
Slysadeild:
Fólk þarf að bíða
í heila klukkustund
—virðist engu skipta hversu alvarleg meiðsl um er að ræða
Einn hneykslaður hringdi:
Ég var rétt í þessu að koma ofan
af Slysadeildinni og mér blöskrar
hreinlega hve lengi fólk þarf að bíða
eftir að því sé sinnt. Virðist hreint
engu máli skipta hver á í hlut, ung-
börn eða gamalmenni, né heldur
hversu slasað fólk er. Ég hef þrívegis
komið þarna að undanförnu og alltaf
þurft að bíða talsverðan tíma — frá
30 mín. og í yfir klukkustund.
1 dag var þarna barn á öðru ári,
sem dottið hafði á andlitið, brotið í
sér tennur og var með skurð á góm.
Það varð að bíða þarna rétt eins og
verið væri að bíða eftir strætó. Þá
var þarna einnig ungur maður, sem
hlotið hafði höfuðhögg, og skalf
mikið. Var utan við sig og greinilegt
að hann hafði fengið heilahristing.
Ég bar fram kvörtun við starfs-
fólkið vegna þessa seinagangs og var
ég þá spurður að því hvort ég væri
eitthvað óánægður. Ég kvað já við
því en því var ekki sinnt neitt frekar.
Vel má vera að stofnunin sé undir-
mönnuð að einhverju leyti, en mér
finnst þetta ekki staðurinn til að
mæta niðurskurði á starfsliði.
Frá Slysadeild
Borgarspitalans.
Vottar Jehóva hafna blóðgjöf:
Er það mistúlkun
á orðum Biblíunnar?
M. Ævarsson, 6294—7152, skrifar:
í tilefni af skrifum Dagblaðsins
30. september sl. um einn meðlima
votta Jehóva, þess efnis að vottum
Jehóva sé óheimilt að þiggja
blóðgjafir, „jafnvel þótt líf liggi
við”, þá langar mig að bera fram
spurningar sem ég vonast til að
einhvervotta Jehóva geti svarað.
Áður en ég ber fram
spurningarnar, langar mig að taka
orðrétt úr grein Dagblaðsins þann
30. september. Þar segir til um á-
stæðuna fyrir neitun votta Jehóva
um blóðgjöf. „Biblian bannar slíkt
að þeirra mati og skiptir þá ekki máli
hvort blóðs sé neytt eða því dælt í æð
eins og tíðkast í nútíma lækningum.”
Nú spyr ég, í fyrsta lagi, hafa vott-
ar Jehóva (þ.e.a.s. þeir íslenzku)
aldrei borðað kjöt, en kjöt er alls
ekki laust við blóð? í öðru lagi, hafa
vottar Jehóva aldrei borðað blóðmör
né nokkurn annan mat, sem inniheld-
ur blóð? í þriðja lagi, geta vottar
Jehóva bent mér og öðrum
villuráfandi mönnum á þann stað í
Biblíunni, þar sem segir að neyzla
blóðs sé óheimil? Eða er þetta bara
mistúlkun á orðum Bibliunnar?