Dagblaðið - 06.10.1981, Qupperneq 3
3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
Okurverð hjá Tomma-hamborgurum:
Guðriður Steindórsdóttir húsmóðir:
Sjálfsagt hefur það gert það. Það
hlýtur að breytast. Eru ekki allir hlutir
sífellt að breytast?
Kristveig Baldursdóttir skrifstofu-
maður: Já, mér finnst það frjálsara og
ánægjuiegra miðað við hvernig það var
fyrir20árum síðan.
Ásta Sigvaldadóttir afgreiðslukona:
Nei, það finnst mér ekki. Það er
kannski líflegra, frjálslegra.
Ólafur Þorsteinsson sölumaður: Það
hefur gert það, að vissu leyti. Það er
meira stress, miðbærinn hefur dáið þó
að smávegis hafi breytzt til batnaðar
síðustu tvö ár. Svo eru það stórverzl-
anirnar. Áður fyrr verzlaði fólk meira í
hverfunum. Nú deyja búðirnar í hverf-
unum. Þá taka fleiri þátt í atvinnulífinu
nú en áður. Börnin eru komin á stofn-
anir eða í skóla og húsmæðurnar farn-
ar að vinna úti. Bilaaukning hefur
sömuleiðis verið mikil og það hefur
breytt bæjarbragnum verulega.
Samúel Valberg skrifstofumaður: Já,
það hefur orðiö það, náttúrlega. Fólk
hefur það mikið betra nú en í minu
ungdæmi.
Karl Harðarson nemi: Fólk hefur
ekkert skyn á hvað hlutirnir kosta
lengur. Fólk er gjörsamlega komið inn í
hringiðu verðbóigunnar. Þá fer fólk nú
miklu minna út, hangir meira heima.
taks máltíð
Mathákur skrifar:
Mig langar til að gera að "
umræðuefni verðlagningu á
hamborgurunum hjá Tomma á
Grensásveginum. Þar kostar ostborg-
ari kr. 32, skammtur af frönskum
kartöflum kr. 12 og miðstærð af
pepsíglasi, venjulega fyllt með
muldum ís að þriðja hiuta, kr. 8.
Samtals gera þetta kr. 52.
Á veitingahúsinu Lauga-ási kostar
fiskur af matseðli dagsins kr. 44 og
fylgir með honum súpa. Glasið af
kók/pepsí kostar einnig kr. 8 þar.
Samanlagt verð kr. 52.
Hvernig má það vera að á
skyndibitastað eins og Tomma-ham-
borgurum skuli máltíðin vera jafndýr
og fyrirtaks máltíð á góðu veitinga-
húsi? Mér er spurn. Ostborgari hjá
McDonald’s í Englandi kostar aðeins
um fjórðung af því verði sem sett er
upp hjá Tomma-hamborgurum og á
Burger King í Kaupmannahöfn er
verðið helmingi lægra en hér.
Svo er annað þessu óskylt og það
er hvernig bæði merkinu í Tomma-
hamborgurunum er hreinlega stolið
frá Burger King svo og myndunum,
sem hanga uppi á staðnum. Þær eru
ættaðar frá Burger King að því ég
bezt fæ séð. Á þeim má sjá hamborg-
ara, sem er hreint ekki eins og fnaður
fær hjá Tomma. T.d. eru ost-
sneiðarnar svo þunnar að engu líkara
er en þær séu skornar með laser-
geisla. Mér finnst sannast sagna að
okurverð sé á þessum hamborgurum.
DB hafði samband við Tomma-
hamborgara vegna þessa máls, en
tókst ekki að ná tali af eiganda
staðarins. Er honum velkomið að
hafa samband við blaðið, vilji hann
koma einhverjum skýringum
varðandi þetta. á framfæri.
VOLVO
TEUUM
að notaðir VOLVO bílar
séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum
VOLVO 245 GL ÁRG.'80 beinsk., ekinn 23 þús. Kr. 140.000.-
VOLVO 245 GL ÁRG. '79 beinsk., ekinn 54 þús. Kr. .130.000.-
VOLVÖ 244 DL ÁRG. '79 beinsk., ekinn 40 þús. Kr. 115.000.-
VOLVO 244 GL ÁRG. '79 beinsk., ekinn 45 þús. Kr. 120.000,-
VOLVO 244 GL ÁRG. '79 sjálfsk., ekinn 27 þús. Kr. 125.000.-
VOLVO 244 DL ÁRG. '78 sjálfsk., vökvast.,
ekinn 60 þús. Kr. 125.000.-
VOLVO 244 DL ÁRG. '78 sjálfsk., ekinn 31 þús. Kr. 110.000.-
VOLVO 343 DL ÁRG. '78 sjálfsk., ekinn 27 þús. Kr. 80.000.-
VOLVO
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16
Spurning
dagsins
Finnst þér mannlrfið
í Reykjavík hafa
breytzt á undan-
förnum árum?