Dagblaðið - 06.10.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
FÓLK
Fólk við
opnun Manhattan
týsingastjóri Moggana, H/lmar B Jónsson ritstjóri Gestgjafans og vert-
Ingamaður i Hótel LofdaMum og Ólafur Laufdal eigandi Hollywood.
Fréttaritari Dagbíaðsins i Soiungarvík:
Fór á fœreyingnum í verziunarferðir
„Mér bauðst gott starf svo við
slógum tíl og fórum vestur,” sagði
Kristján Friðþjófsson, fréttaritari
Dagblaðsins i Bolungarvik.
Kristján er Reykvíkingur og raf-
vélavirki að mennt. í byrjun árs 1979
flutti hann til Bolungarvikur ásamt
eiginkonunni, Reginu Ólafsdóttur,
sem einnig er Reykvikingur og syni
þeirra, Róbert. Siðan hefur fjölgað i
fjölskyldunni, dóttirin Bryndís hefur
bætzt við.
,,Áður en við komum hingað
höfðum við verið þrjú ár 1 Vest-
mannaeyjum. Vinnan var stopulli i
Eyjum, hér er mlkið jafnari vinna,
nóg að gera og reyndar of mikið að
gera.
Hér gengur bara vel að kynnast
fólkinu. Mér finnst persónuiega
ganga betur að kynnast fbúunum hér
heldur en í Vestmannaeyjum,” sagði
Kristján.
Ekki kom það okkur á óvart að
Kristjáni gengi vel að kynnast
fólkinu. Hann virtist í meira lagi
félagslyndur. Áður en við yfirgáfum
bæinn höfðum við komizt að því að
hann var flæktur í félagsstúss af
Kristján Friðþjófsson fréttaritari ásamt eiginkonunni, Regfnu, og eins og hálfs árs gamalli dóttur þeirra, Bryndfsi. Kóbert,
sjö ára, var úti aó leika sér. DB-mynd: Siguróur Þorri.
mörgu tagi. Hann var í karla-
kórnum, hafði sungið i reviu með
leikfélaginu, var i ljósmyndaklúbbi,
Kiwanis og sjálfsagt einhverju fleiru
en auk þess er starf hans þess eðiis
að hann kemsí EÍCk' hjá því að
kynnast mörgum. Hann vinnur á raf-
verkstæði Jóns Friðgeirs Einarssonar
og gerir við rafvélar, aðallega i
frystihúsunum og bátum.
Við reyndum að draga eitthvað út
úr honum í sambandi við revíuna:
,,Ég var drifinn í leikrit. Þetta var
söngleikur sem hét Apakötturinn. Ég
iék gamlan mann, Óla vinnumann,
og söng í flestum lögunum i
leikritinu. Leikendur voru sex talsins.
Ég hálf skammaðist min fyrir þetta,
ég hafði aldrei sungið fyrr og var
settur beint í söngleik. Mig minnir að
hann hafl verið sýndur tvisvar
sinnum.”
Kristján á ásamt tveimur öðrum
lítinn bát, færeying. Hann kallar
bátinn „lystisnekkjuna”. Hann
notar hann i tómstundum sinum, rær
til fiskjar og veiðir I soðið. Eins nota
þeir félagarnir bátinn til að fara á
skyttiri. En það eru ekki einu notin:
„Þegar ég var bíllaus i sumar
notaði ég bátinn töluvert til að fara í
verzlunarferðir inn á ísafjörð. Þetta
var ekki nema um kiukkutima
sigling,” sagði fréttaritarinn.
-KMU.
Þá hefur nýr skemmtistaður litið
dagsins ljós á höfuðborgarsvæðinu,
Manhattan. Staðurinn var opnaður
með pompi og prakt á laugardags-
kvöídið og voru þar mættir ýmsir
þekktir menn úr bæjarlífinu.
Eigendur Manhattan tóku upp á því
að í stað þess að senda út boðskort
auglýstu þeir eftir boðsgestunum og
var ekki annað að sjá en flestir hefðu
þegið boðið.
Eigendur Manhattan eru þeir
Grétar Hreinsson og Baldvin
Heimisson. Sjómaður og prentari,
sem lögðu aleigu sína undir til að gera
þennan stað að veruleika, þrátt fyrir
alla samkeppni. Manhattan er
diskótek sem opið verður
fimmtudags-, föstudags-, iaugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Staðurinn tekur um fjögur
hundruð manns, þar af þrjú hundruð
í sæti. Tveir salir eru í Manhattan,
annar þar sem danstónlistin dunar en
hinn er með rólegri tónlist, þar sem
gestir geta rætt saman. Öll húsgögn i
Manhattan eru íslenzk framleiðsla
svo og gólfteppin, sem eru sérofin hjá
Álafoss fyrir þennan stað. Arkó sá
um innréttingar.
„Það er varla að maður trúi
þessu,” sagði Baldvin er hann var
spurður hvernig honum liði nú þegar
staðurinn væri loks opnaður. Þá
sögðust þeir félagar ekki kviða
samkeppni. „Okkur hefur fundizt
vanta stað hér í Kópavoginn og við
teijumaðeinn staðurinn í viðbót eigi
fudan rétt á sér”. í Manhattan
verður boðið upp á ýmsar uppá-
komur — lifandi tónlist, tízkusýning-
ar og þess háttar. Ekki gera þeir
aðrar kröfur til gesta sinna en að þeir
séu snyrtilega klæddir. Bindisskylda
er ekki, né bann við gallabuxum og
leðurjökkum.
-ELA.
Unnur Arngrímsdóttir og örn Guð-
mundsson dansari höfóu grelni-
lega um ýmlslegt að spjalla en
gáfu sirþó tíma tílað ttta upp fyrir
myndatöku.
Ogþi mi ekkl gleyma Quöna „fri Lmk" Kolbeinssynl og Hannesi Hólm-
stelnl. En Guðni fikk atttað vlta um frjUshyggju.
DB-myndlr Kristjin örn.
Starfsfóttdð erl ditttíð 6 venjulegum búnlngum en þú skemmtnegum. Htr
mi sji fjórar afgrelðslustúlkur og yfírþjónlnn Guðjón.
Elgendur stoðarins, Baldvln
Helmlsson og elglnkona hens,
Þórlaug Guðmundsdóttlr, og
Gritar Hreinsson og eiginkone
hans, Hafdís Heimisdóttir.