Dagblaðið - 06.10.1981, Side 27

Dagblaðið - 06.10.1981, Side 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981. 27 I Útvarp Sjónvarp D Óvænt endalok —sjónvarpíkvöld kl. 21.05: Þátturinn „Óvænt endalok” heitir að þessu sinni „Sjáumst á jólunum” og það er Richard Johnson sem heldur hér á dularfullu blómi og virðist búa yfir launráðum. í þessum þætti „Óvæntra enda- loka” fáum við að sjá Sian Phillips og verður gaman að hitta hana aftur. Hún lék Liviu, hina valdamiklu keisarafrú, í þáttunum um Kládíus hinn rómverska og þótti túlka þá kaldlyndu konu með afbrigðum vel. Þessi mynd var tekin af henni þegar hún kom til íslands fyrir tveimur árum síðan. -DB-mynd: R. Th. Ýmsar breytingar er vetrardagskrá hefst — Lög unga f ólksins tvisvar f viku — kvöldvaka flutt yf ir á f östudaga —Jónas Jónasson með nýjan þátt, „Kvöldgesti” —þátturinn „í vikulokin” verður ekki í vetur Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri (t.v.) með tveimur nýjum liðsmönnum, Ingibjörgu Þorbergs og Atla Magnússyni. Þau voru bæði ráðin i stöður sem losnuðu, því starfsmönnum á dagskrárdeild hefur ekki verið fjölgað i átta ár. DB-mynd: KÖE. Ýmsar breytingar verða ævinlega á dagskrá útvarpsins, þegar vetur gengurígarð. Hlustendur hafa þegar orðið varir við sumar þeirra. Þannig fór Páll Heiöar aftur að láta til sín heyra í gærmorgun. Þetta var fjórði veturinn sem hann verður að fara snemma á fætur, en þáttur hans hefur nú skipt um heiti og kallast ekki Morgunpóstur lengur heldur Morgunvaka. Hann hefur líka lengzt og stendur frá 7.15 til 9.00. Inn i hann verður skotiö fréttum, veður- fregnum, morgunorðum og fleiru. Páli til aðstoðar verða þau önundur Björnsson og Guðrún Birgisdóttir. Syrpurnar vinsælu verða áfram eftir hádegið, líka á laugardögum. Þá verða þeir Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þorsteinsson áfram með syrpu sína eins og í sumar, en þátturinn „í vikulokin” verður ekki á dagskrá þennan veturinn. Eftir fréttirnar kl. 16.00 síðdegis verður sú breyting, að þá verða lesnar framhaldssögur fyrir börn, en klassíska tónlistin kemur um klukkustund seinna á dagskrá en verið hefur. Þetta er meðal annars gert með tilliti til barnaheimilanna, sem þá geta leyft börnunum að hlusta á útvarpið áður en þau fara heim. Lög unga fólksins verða tvisvar í viku í stað einu sinni áður. Hildur Eiríksdóttir stjórnar öðrum þættinum sem fyrr, en einhver annar verður fundinn til að stjórna hinum. „Sennilega karlmaður — til að hafa jafnréttið í heiðri,” sagði Hjðrtur Pálsson dagskrárstjóri. Annar þessara þátta verður á föstudögum kl. 20. „Mörgum finnst að við ættum alls ekki að hafa út- sendingar kl. 20, því þá eru fréttir í sjónvarpinu, sagði Hjörtur. „En táningunum er víst alveg sama.” Kvöldvakan, sem á sinn trygga hlustendahóp hjá elztu kynslóðinni, verður flutt yfir á föstudaga. Hefst hún þegar táningarnir eru búnir að hlusta á þáttinn sinn og farnir út á lífið. Þeir eldri og stilltari geta þá hlustað á frásöguþættina ínæði. Klukkan 23.00 á föstudögum kemur nýr þáttur „Kvöldgestir” og stendur fram yfir miðnætti. Er það lenging á dagskránni frá því sem verið hefur. Jónas Jónason tekur að sér þennan þátt. Hann mun bjóða til sín gestum, spjalla við þá og jafnvel bjóða þeim að leika það sem þeim finnst skemmtilegast að heyra. Sjálfur velur hann líka létta tónlist og flytur kynningar. Er ætlunin að hlustendur geti haft það notalegt undir þessum þætti og slakað á eftir ofvinnu vikunnar. Flestar af þessum breytingum verða teknar upp kringum fyrsta vetrardag, sem að þessu sinni ber upp á 24. október. -ihh. „Útsýni af sjöundu hæð” heitir leikrit eftir Þorvarö Helgason sem flutt var f útvarpið i sumar sem leið. Ljósmyndari DB tók þá þessa mynd af rithöfundinum. GLÝJA—útvarpssagan kl. 21.30: KYNSLOÐABILIÐ - SÉÐ MEÐ AUGUM MIÐALDRA MANNS Þorvarður Helgason les í kvöld annan lestur sðgu sinnar „Glýju”. Sagan hefur ekki enn birzt á prenti, en það er ekki oft sem islenzk skáldverk eru frumflutt í útvarpið. í skáldsögunni rifjar miðaldra maður upp þá tíma sem hann var ungur og bjartsýnn. Hann lýsir því umhverfi sem þá var og þeim hug- myndum sem hann gerði sér um lífið og framtíðina. Það er vel við hæfi að lesa slíka sögu þegar framhaldsskólarnir eru að hefjast og allt æskufólkið sezt á skólabekk. Kannski hjálpar hún þeim að skilja lærifeður sína ögn betur en Þorvarður hefur lengi verið mennta- skólakennari. Hann er fæddur í Reykjavík 1930 og hefur áður gefið út tvær skáldsögur: Eftirleit 1970 og Nýlendusögu 1975. Útvarpið hefur flutt eftir hann ein fimm leikrit, það seinasta í sumar sem leið og nefndist það „Útsýni af sjöundu hæð.” Segir þar frá tveimur mönnum, sem báðir þykjast eiga tilkall til sömu konunnar. -Ihh. ESKIFJÖRÐUR Blaðburðarfólk óskast strax á Eskifirði. Uppl. gefur umboðsmaður í síma 97-6331. MÉBuna EGILSSTAÐIR Blaðburðarfólk óskast strax í Fellabæ. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 97-1350. MMBIABIÐ

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.