Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 5

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR ,181 SJÓMENN HALDA JÓL Þegar klukkunrnar hringja inn helgi jólanna og þeir sem eru heima hjá sér í landi setjast að iólakrásunum er íjöldi sjómanna við störf sín á hafinu. Hér eru tvær frásagnir af •hvernig sjómenn halda jól. Við höfum gott af að lesa þær. Höf. fyrri greinarinnar lætur ekki nafns síns getið, en greinin hans er ekki síður eftirminnileg fyrir því. I. Aðfangadagskvöld jóla. Raunamæddur togarinn lijassaðist á öldunni. Iialinn. Það voru vaktaskipti, ég hafði verið á kojuvakt. Klukkan var sex. Eg t'róð mér í hráblautan stakkinn, og reyndi að srriokka 'þurrum og aumum ‘höndunum í gegnum (hálf-frosnar ennarnar, án þess að koma við þær, sjóhattinum demdi ég á höfuðið, þvölum, allar hlíf- ar eru ýmist þvalar, blautar eða frosnar um borð í togara, því að engum manni dettur í hug að fara með þær niður í lúkara tij þerris, a. m. k. er það illa séð. Eg batt undir kverk, mér leizt þannig til, er ég kíkti undan hvalbaknum, að það væri viss- ara. Við stauluðumst í halarófu aftur dekkið, sjó- menn; stýrimannsvaktin, tólf menn voru fyrir á dekkinu. Fullt dekk fiskjar, bylur, •sjór, myrkur, frost, vindur austan 4. Það var nýbúið að kasta, og allir í aðgerð. Þrjú flatnlngsborð, þrír eða fjórir menrt við hvert, hausari, fyrirristumaður og ýmist einn eða tveir sem slitu, væru þeir tveir, þá sleit annar innan úr fiskinum, hinn sleit lifrina, væri aftur á móti einn, þá skar fyrirristumaðurinn á görn fiskjarins. ’ Eg hausaði og bar lifur, en það kom venjulega í'hlut hausaranna að hjálpast að því, þar som lifrarkarlinn varð að hjálpa pontaranum, en það er rnaður, sem vaskar niður, nú var vaskað niður um fremstu lúgu, skipið var að fyllast, vantaði í eina stíu ísklefans og tvo steisa, tuttugu — til tuttugu óg fimm — poka. Kojuvaktin ætlaði að taka til fótanna, er hún sá okkúr koma, en þá heyrð- ist kallað hrjúfri röddu: „Viljið þið ekki standa, strákaf, á meðan þe'r éta“. Það svaraði cnginn, hreyfði sig cnginn frá borðunum, og við héldum áfram aflur dekkið. Það bölvuðu allir. Við, sem komum úr koju, bölvuðum. Af hverju gat hann ekki sagt þetta, áður en við fórum í stakkana, þeir, sem áttu kojuna bölvuðu, snuðaðir um klukkutíma af dýrmælum límá. Þci'r sem átfu vaktina bölvuðu í samúðarskyni. Allir bölvuðu fram eða niður, eng- inn aftur. Tuttugu mínútur hver törn í mat- það voru lög. Hátíðamatur, þríréttað, 6% mín. pr. rétt. Fyrirsjáanleg vandræði hjá kjötinu. Við átum, ég leit um öxl mér á klukkuna inni í káhettunni íitn leið og ég fór upp stigann, tuttugu minútur gehgih í sjö, mé.r fannst ég hafa gleypt stein. Orusta við stakkana, svo löturhægt fram ganginn til hlés, potandi á sig vettlingunum, síðan gekk mað- ur snöfurlega fram undan brúarveggnum. Karlinn var að toga og óvíst um hverjir sigldu. Næsta vakt fór í mat, ég tók sveðjuna. Það eru til ýmiskonar pyndingartæki fyrir sárthenta menn, en ég held að sveðjan slái þau öll út, það er engan veginn hægt að forða sér. Mig hefur oft langað til að gefa pyndingatækjasafninu í Blackpool svo sem eins og eina hausingasveðju, og ég er alvég hissa á Tjallanum að vara ekki búinn að því.‘ Ef hægri hcndin skyldi nú vera í lagi, þá er sú vinstri í ólagi, allt annað er útilokað og hefur aldrei skeð um borð í togara. Þorskurinn^ upsinn, fjand- menn hausarans, ýsan svarinn óvinur, loksins, þegar maður hefur krækt fingrinum undir kjálkabárðið, annað dettur engum heilvita manni í húg fyrsta kortérið, þá sprikla kvikindin. Ósjálfrátt óskar mað- ur þess að skipið farist. Bölv, ragn, formælingar. nærri því að maðúr biðji guð að hjálpa sér. Steingélt'- ur. (Frómu fólki til huggunar, þýðir það ekki néltt voðalegt, það vantar bara hausaðan fisk). Henduí'il- ar dofna og hugarfarið tekur gagngerðum brevting- um, maður hæfctir að vera geltur. Aðfangadágskvöld. „Hiv op“ heyrist draugslegri röddu úr myrkvaðri brúnni, stýrimaðurinn þýtur frá borðinu aftúr áð spili og kallar úm leið: 5,Sláðu úr, Jónsi“. En það verður ekki af því í bili, dallurinn fyllir ganginn, sem áveðurs er, bakborðsganginn, byrjar að hallast í veðrið, það er siður margra togara. Tveir menn hafa vcrið áð hésa grútartunnur upp á keis, þeir sjá hvað ver^a vill, setja fasfc á spilkoppinn, í skyndi, og forða sér, tunna dinglar upp í blokk á aftur- bómunni yfir íshafinu, gráu, hvítu, kkipið liggur á brúaivæng, brotnir fiskkassar; flatningsborð fljóta út, karlamir fram undir hvalbak; uppgefin ljós á þrotlausu myi'kri; bylur. sjór, rok; aðfangadags- kvöld. • ■ ' *

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.