Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 26

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 26
202 SUNNUDAGUR „Fólkið hérna hefur gert onér rangt til, síðan ég man eftir mér. Þegar ég var lítill fékk ég stundum ekki mjólk hálfan veturinn. Þá sagði fólk bara, að það væri eðlilegt, að stundum væri mjólkurlaust, þar sem enginn kýr væri. Svo varð ég kraftalaus og mergsvikinn. Eg væri ánægður, bara ef einhver væri reiður mín vegna. — Sérðu hvað mér veitist erfitt að róa? Þegar ég eltist, langaði mig, til að fara á skóla. Þá sagði fólk, að fátæktin spyrði ekki að því. Eg vissi það vel sjálfur. Mig langaði bara til að ein- hverjum sárnaði það. En það sárnaði engum. Þegar verið var að byggja vöruhúsið hans Gríms kaupmanns í fyrra' vetur, hreytti hann oft óhot- um að þeim, sem voru að vinna. Hann hefur. alla sína ævi talað við heiðvirða menn eins og hunda. Þess vegna tóku þeir sér það ekkert til. En einu sinni kallaði hann mig „letiblóð". Eg er ekkert latur. Eg fór ekki í vinnuna eftir það. Mér fannst ég vera eins og hundkvikindi en ekki maður, ef ég snautaði þangað aftur. Eg gat það ekki. Gat það ekki! Þá sagði fólkið hérna, að ég væri uppstökkur kjáni og það væri óðs manns æði, að fara úr svona góðri vinnu, bara til að þjóna lund sinni. — Eg tók mér þetta reyndar ekkert nærri — hugsaði ekkert um það, fyrr en — Hann var skjálfraddaður, fann það sjálfur og ætl- aði að hætta við að segja það eina, sem honum já á hjarta. En stúlkan horfði á hann með sömu eftir- væntingu og áður. „Og núna — þegar hún sveik mig — þá velti það vöngum, fólkið hérna, og sagði, að það hefði verið von, að hún hefði verið á báðum áttum, þegar henni buðust gull og grænir skógar. — Þetta var „eðlilegt“ í þess, augum, eins og allt annað. Finnst þér lifandi innan um svona fólk? Mér er ekkert illa við Grím gamla og jafnvel ekki stráksvínið hans. En ég hata fátæklingana héma sem hafa sama hugsi/narhátt og þeir. Þetta er að vera svikinn af bræðrum sínum“. Hann hafði suðu fyrir eyrunum og var farinn að talá lágt og slitrótt. Nú var óðum að skyggja að og hvessa. Kuldinn smaug um merg og bein. Ósjálf- rátt var hann farinn að róa af öllum kröftum. Það fóru kippir um andlit stúlkunnar og hún deplaði augunum ótt og títt. Tárin brutust fram und- an svörtu augnahárunum Allt í einu reis hún á hnén, hallaði sér áfram og lagði hendur um háls honum. í þetta sinn vakti það ekki þrá hans eftir unnust- unni. Það gerði hann rólegan, að finna barnshand- leggi hennar snerta sig. Hann iðraðist þess nú, að hann hafði ekki farið í sjálfa spariskyrtuna. Hún hefði þó frekar verið samboðin þessu gljóbjarta hári og þessum tárum. Hann hægði róðurinn. ;)Eg skal segja þér, hvað þú átt að gera, ef þú vilt launa líf þitt“, sagði hann rólega. „Vertu alltaf með þeim, sem eru beittir röngu. Þá gerir áreiðanlega ekki betur en þér endist ævin til að launa líf þitt!“ Stúlkan sleppti takinu um hálsinn á honum og hallaði^ sér fram yfir þóftuna við hlið hans. Svona hafði þá þetta kvöld liðið. En annað kvöld — kvöldið þar á eftir — mörg, mörg kvöld — mörg, mörg —? Þau nálguðuSt bryggjuna. Þar stóðu þrír, fjórir menn. Fleiri og fleiri bættust við í hópinn og a svipstundu var bryggjan orðin þéttskipuð fólki. Hann sá andlitin óljóst. Það var orðið svo dimmt. Palli í Nausti reri hægt upp í fjöruna. Honum la við að hlæja. Þeir máttu glápa. Það höfðu ekki alHr komið með betri feng $f sjó! Stúlkan sat við fætur hans. Hann br'osti við henni í fyrsta sinn. En hún var alltaf jafn alvarleg og dro andann óreglulega. Var hún 1 raun og veru vitstola? Hann tók á öllum kröftum og renndi bátnum upp í fjöruna. Þá var eins og stúlkan vaknaði af dvala- Hún spratt á fætur, stökk út úr bátnum og hljóp burt, án þess að líta á hann. Iiann dró bátinn á land. Fólkið þyrptist í kringum hann, krakkarnir á undan. Spumingunum rigndi yfir hann. „O, hún álpaðist bara út í bátinn“, svaraði hann önugur^ eins og ekki tæki því að tala um þetta. „Hann er víst að ganga upp með storm“, sagði ein- hver og leit til lofts. Um sama leyti daginn eftir komu þeir feðgarnir af sjónum. *„Þú skalt fara heim að borða, pabbi“, sagði PalH- „Eg kem rétt strax“. Gamli maðurinn hélt af stað heimleiðis. Sjálfur stóð hann um stund með hendur í vösum og horfði á aflann. Hann vildi vera einn. En nú hugsaði hann ekki um að drekkja sér. Annað kvöld — næsta kvöld — mörg, mörg kvöld — mörg, — mörg --------. Hann sá ekki út yfir ÞaU öll. En einhvern tíma hlaut sá dagur að renna upp, a^ hann ákalláði allt, sem heilagt er, og lofaði því sama og hann hafði látið litlu stúlkuna lofa í gær. Það var hann, sem átti að lofa því.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.