Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 28

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 28
204 SUNNUDAGUR „Þú mátt vera hjá mér“, sagði álíurinn. „Ef þú eldar mat handa mér og býrð um rúmið mitt. Konan mín og börnin eru dáin, og ég er orðinn gamall. „Hvað fæ ég fyrir?“ spurði drengurinn. „Það, sem verður í kistunni minni, þegar ég dey“. „Hvað er það?“ spurði drengurinn. „Laun heimsins“, svaraði álfurinn. „Þau hef ég fengið áður“, sagði drengur- inn. En hann var þreyttur og svangur og fór heim með álfinum. Hellirinn gamla álfsins var úr silfurbergi og það glitraði, þegar eldurinn brann á kvöld- in. Þá tók gamli álfurinn hljóðpípuna sína og lék svo falleg lög, að pilturinn gleymdi heimþrá sinni. Á daginn staulaðist álfurinn út í sólskinið, settist á stein og hlustaði á lækjarniðinn. Pilturinn bjó til vondan mat. „Ilvemig er grauturinn?“ spurði hann, þegar grautur- inn var sangur. „Eg er að hugsa um það, sem hún móðir mín sagði við mig, áður en hún dó“, svai’aði álfurinn. Hann var orðinn blindur. Pilturinn bjó illa um rúmið hans. Og þeg- ar það var sem verst gert, spurði hann: „Hvernig er búið um?“ „Eg er að hugsa um það, sem hún móðir mín sagði við mig, áður en hún dó“, svaraði álfurinn. Hann var kominn í kör. Loks dó gamli álfurinn. Pilturinn vakti ekki yfir honum og vissi ekki, hvernig hann dó. Hann gróf álfinn utan við hellinn og gerði það illa. Siðan ferðbjó hann sig, án þess að opna kistuna. En forvitnin rak hann heim í hell- inn aftur, og hann lauk henni upp. Þar fann hann allt, sem gamli álfurinn hafði átt af góðum gripum. Nú gat hann eignast góða jörð og búfé. En það bezta var, að hann fann líka í kistunni hringinn, sem hann hafði gef- ið leiksystur sinni. Hún var þá ólofuð enn. Og nú var hún orðin fulltíða stúlka. Hann hélt til byggða. Þar keypti hann sér jörð og fénað. Og leiksystir hans varð konan hans. .Hún var bæði góð og falleg og þau eignuðust mannvænleg börn. En hann varð aldrei glaður. „Segðu okkur frá því, þegar þú varst hjá ræningjanum, pabbi“, sögðu börnin. Og hann sagði þeim, hvað hann hefði unnið ræningjanum vel, hvað hann hefði trú- að honum ve,l — og hvað ræninginn' hefði launað það iila. „En segðu okkur líka frá því, þegar þú varst hjá gamla álfinum“, sögðu börnin. Þá sagði hann þeim, hvað álfurinn hefði verið sér góður og hvað hann hefði launað sér vel —. En svo þagnaði hann. „Um hvað ertu að hugsa, pabbi?“ spurðu börnin. „Eg er að hugsa um, hvað það muni hafa verið, sem móðir gamla álfsins sagði, áður en hún dó“. Börnin vissu það ekki, sem ekki var von. — — — Hvað haldið þið, að það hafi verið? O. G. Ilann: „Er ekki drengnum kalt úti í þessu írosti“- Hún: „Hvað ætli hann hafi vit á því óvilinn“. □ Iiann: „Þú sagðir einu sinni, að ég hefði eitthvað við mig, sem þér líkaði vel.“ Hún: „Já, ég hef ekki hugmynd um hvað af þvi hefur orðið“/ □ Lœknirinn: „Þér verðið að hætta allri andlegri áreynslu". ; • ' Sjúldingurinn: „Þá missi ég tekjur, því ég er erfiljóð.' okáld“. t Læknlinn: „Yður cr óhætt að halda því áfram.“ r i

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.