Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 6

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 6
182 SUNNUDAGUR Sjómenn halda jól ji. Skipin úti á höfninni hanga letilega í festunum. Sjórinn er sléttur, en kvikandi, líkt og eitt'hvað sé í aðsigi. Hann er skolgrár eins og himinn haustsins. í morgun hef ég átt vöku og séð komu dagsins. Það er snjór á fjöllunum og hann er snjólegur til ■hafsins. Kannski verða hvít jól. Skútan nýtur þess áð vera í höfn, hún e.r ánægjuleg og löt og lætur kvikuna vagga sér. Og maður sjálfur er eins og skútan. — Þegar maður kernur utan af sjó, með stirðleika utan um sig og nautheimskur hið innra, þá byrjar alltaf einhver ánægjugerjingur í manni, þeg- ar lagzt hefur verið við fast og maður heldur, að farið verði að bryggju. Eg stend við borðstokkinn, og ég er að hugsa um það, hvort við munum fá að vera í landi yfir jólin. Stýrimaðurinn kemur upp. Hann ekur sér og pissar í sjóinn. Hann er langur og mjór og stundum geð- vondur. ,ÞaÖ trekkir illa í kabyssunni", segir hann. Svo fer hann niður aftur. Seinni hluta dagsins ,er lagzt að bryggju. Þar liggja mörg skip, sem verið er að afferma og er mikil örtröð. Það er Þorláksmessa í landi og appel- sínulykt í loftinu. Við göngum upp í bæinn, allir, nema kokkurinn og sá, sem á vöku. Við eigum flestir heima héma, og þeir sem eru giftir heimsækja kellur sínar. Við hinir göngum í búðir. Það er mikið um að vera, fólk þeytist til og frá, kaupir og undirbýr komu jól- anna. Verzlanirnar eru fagurlega skreyttar og það eru jólasveinar og jólatré í gluggunum. Eg kaupi jólagjöf handa stelpu og grænsápu fyrir kokkinn. Undir kvöldmatinn höldum við aftur til skips. Flestir bera eitthvað af bögglum, því að margir hafa keypt einhverjar jólagjafir handa elskunum. Niður við höfnina mætum við vélstjóranum; hann hafði farið upp í bæ, að heimsækja unnustuna. „Og kominn strax frá elskunni“, segir einhver. ^Hún er farin í ástandið“, segir hann. „Hvert í logandi“. „Já, það er von, maður má aldrei vera að því, að slnna þessum greyjum“. Þegar við nálgumst skútuna, sjáum við, að það hefur verið sett upp rautt flagg. Einhver í hópnum krossbölvar. „Það er benzín“, segir annar. Um 'borð fréttum við, að rjúka á austur á land, seinna um kvöldið. Það liggur á þessu, það er bjór í lestinni. Giftu karlarnir koma um borð. Þeir eru fúlir og þungbúnir. „Það ætlar víst að biða þessi jólin, að maður verði í landi“, segir einn. Annars er kokkurinn geðverstur. Hann hefur allt á hornum sér og blótar hræðilega yfir soðkötlun- um. Það er mið nótt þegar við 'höldum ú.r höfniniii. Skútan skríður hægt. Vélin knýr hana aðeins þrjár mílur í logni, og nú er logn og því gagnslaust, að setja upp segl. Á næstu höfn eigum við að hafa við- komu og taka vörur til viðbótar. í birtingu leggj- umst'við þar að bryggju. Þegar líður fram á morguninn, koma karlar úr landi og skipa út vönunum. Þeir vinna vel og ætla sýnilega að flýta þessu. Ekki bíða jólin. Eg geng upp í kauptúnið. Það er langt og mjótt, eins og stýrimaðurinn og húsin eru flest ljót. Eg geng hægt og skap mitt er rótt. Það er þessi hljóða tilfinning innan í mér; sem maður finnur til, þegar maður kemur af sjó: Maður reikar eftir illa tilhöfðum götunum og meðfram fátæklegum húsa- röðunum og finnst allt þetta svo aðlaðandi og vina- legt Og maður öfundar þær mennskepnur, sem þarna geta eytt deginum við amstur sitt. Jafnvel tötralega klæddar kerlingar, sem haltrast milli hús- anna, verða eftirlætisbörn lífsins í augum mannS. Eftir 'hádegið höldum við út. Það er kominn strekkingur. Við .erum ergilegir yfir því, að mega ekki reykja ofanþilja og pottarnir eru óþægir við kokkinn. Eg tek stýrisvöku eftir klukkutíma. Hásetinn, sem stýrði fer ekki strax, þegar ég tek við, hann leggst út í gluggann og raular þunglyndislega. Kannski á hann bláeyga elsku í landi, sem hann hefur verið búinn að hugsa sér að færa jólagjöf í kvöld? Vélstjóranum skýtur upp úr vélarhúsinu. Hann er svartur eins og negri. „Það er búið með þetta koppalognið“, tautar hann og snýtir úr annarri nösinni. „Já, það er að bræla“, anza ég. „Sá verður fallegur þegar við komum fyrir nesið“ kallar hásetinn úr glugganum. ,

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.