Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 21

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Blaðsíða 21
SUNNUDAGUR 197 Og þarna sat hann á þóftunni og brosti til mín um leið og hann reri, en sólin skein á vot árablöðin. — Já, og þegar hann kom seint úr róðri, hvað maður varð glaður þegar maður heyrði fótatakið og fann lykt af fiski, oh'u og sjó. Og svo var það síðasta nóttin. Eg vaknaði við að hann tók mig í fangið og bar mig í rúrnið til mömmu. Hún spurði um veðrið og hann sagði að það vseri gott, en dimmt til lofts- ins. Svo hagræddi hann sænginni, kyssti okkur og sagði okkur að halda áfram að sofa. Mamma tók um hálsinn á mér og horfði á hann sínum góðu aug- um. Hánn slökkti ljósið og gekk fram 1 eldhúsið. Birtan þaðan féll inn til okkar um hálfopnar dyrnar. Og þarna stóð hann pabbi svo stór og sterkur og var að fara í róður. Gegn um svefninn heyrði ég fótaták hans og hurðina falla að stöfum þegar hann fór. Daginn eftir var ofsaveður. Seint um kvöldið, þegar myrkrið var skollið á og húsið nötraði, spurði ég mömmu hvort pabbi kæmi ekki bráðum heim. Hún tók mig í fangið og þrýsti mér að brjósti sér. Og hún sagði að ég mætti ekki verða sjómaður. — Eg svaf lítið um nóttina, því hún vakti. í þrjá daga beið ég og spurði, þangað til ég sá tár blika á vanga hennar og þá skildi ég að hann kæmi aldrei aftur til okkar. Eg var bara níu ára og það var svo skrít- ið, að hann sem var svo stór og sterkur og átti svo hlýjar og öruggar hendur, væri horfinn og ég fengi aldrei, aldrei að sjá hann. Þá hataði ég sjóinn. — En svona fór það. Hérna stend ég hjá þér og horfi á hann leika sér að bátnum. Hvenær kemur að okkur eða förum við í þurru gröfina? Hann þagnaði og við kveiktum í nýjum sígarett- um. Ljósbaujan hoppaði á öldunum skammt frá kinnungnum. ' Það er margt líf ð þótt lifað sér, sagði ég í vand- ræðum. Já, það er margt skrítið, það leggst eitthvað kjána- lega i mig. Eg sá það ... Jæja, sleppum því. Svona í koju með þig. Nei, farðu sjálfur . .. Eg sofrja ekki. Svona farðu nú frammí. Og ég fór. í lúkarnum var hlýtt. Félagar mínir sváfu og einn hraut mikið. Eg bætti í kabissuna og snaraði mér í koju. En ég sofnaði ekki strax. Eg var að hugsa um sögu vélstjórans. Og svo var bað stúlkan mín og bamið okkar ... Við vorum komnir að bryggju og farnir að kasta upp fiskinum þegar við uppgötvuðum það. Einhver spurði: Hvar er vélstjórinn? Ha? Já, hvar er vélstjórinn? Fcrmaðurinn var kominn upp á bryggjuna. Þegar hann heyrði til okkar ruddist hann ofan í bát. Vélstjórinn. Eg hélt hann væri fram í. Fram í? sögðum við. Já, hann fór þangað rétt áður en við komum í land, sagði formaðurinn. Hann kom aldrei í lúkarinn, sögðum við. Einn þaut fram í, annar aftur í, en vélstjórinn var ekki í bátnum. Við litum hver á annan, sögðum ekkert, en allir hugsuðu það sama: hann hefur hrokk- ið út. Það var farið að rökkva. Bryggjuljósin glittu á votum og blóðugum þorskinum og köstuðu mjúkum, titrandi rákum á lygnuna milli bryggjanna. Glamrið í vélum bátanna blandaðist hrópum manna og bíla- skrölti. Jæja, sagði formaðurinn, hnípinn og horfði út fyr- ir borðstokkinn, hann er sá fyrsti sem ég missi i sjóinn. Hann hafði varla sleppt orðunum þegar við heyrð- um þekkta rödd kalla af bryggjunni: Voru þið að fáann? Það var sonur vélstjórans, kartinn ellefu ára snáði, sem ævinlega var kominn ofan í bát um leið og við lögðum að bryggju. Hann greip um siglu- stagið báðum höndum, sveiflaði sér niður á þilfarið og sagði: Hvar er pabbi?

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.