Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 22

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 22
198 SUNNUD AG'UR Elías Mar: I X Rabb um færeyskar bókmenntir Þegar ég hef und- anfarið verið að glugga í bækur, sem nýbúið er að fly.tja inn frá Nqrðurlönd- um, hef ég ekki rek- izf á eina einustu fi'á þeirri þjóðinni, scm næst okkur býr, Fsgr eyingum. í fyrra mátti þó sjá hér eina bók eftir færeyskan höfund, skáldsöguna „Blámannavík1*, .ef-tir Rich B. Thomsen, sem reyndar var skrifuð á dönsku. Ástæðurnar fyrir því að færeyskar bækur eru svo lítt áberandi tel ég m. a. vera þessar 1) Bókaútgáfa í Færeyjum er frekar lítil. Þar eru engin útgáfufélög; það hefur ekki þekkzt, að aðrir en höfundarnir sjálfir gæfú út bækurnar og jafnvel dreifðu þeim ■ líka. Eina undantekning.n frá þessu mun vera sú, að bókmenntafélagið „Varðin“ hefur gefið út fáeinar bækur. 2) Algengt er að heyra íslendinga tala niðrandi um færeyskt mál, finnast það leiðinlegt og afbökuð íslenzka. 3) Að sama skapi og fáar bækur koma út í Fær- eyjum, er upplag þeirra bóka, sem út koma, mjög lítið, og þær eru ekki.gefnar út með það fyrir aug- um, að þær verði seldar á erlendum markaði. Viðvíkjandi 2. atriðinu vil ég leyfa mér að taka upp ummæli Aðalsteins heit. Sigmundssonar, er fram komu í útvarpserindi hans um færeyska tungu og bókmenntir fyrir nokkrum árum síðan. Þar segir: „.... Hver sæmilega skýr íslendingur getur lesið færeyskt bókmál sér að fullu gagni, án náms í öðru en eigin tungu. — Hitt er almennt, að heyra ís- lendinga gera lítið úr færeysku, kalla hana hrogna- mái. afbökun úr íslenzku og fram eftir þeim götum. Þessir dómar eru eðlilegir að vísu, en þeir eru jafn óverðskuldaðir fyrir því og geta ekki komið fyrir : hjá öðrum en þeim, sem dæma um það, sem þeir þekkja ekki nema á yzta yfirborði. Menn sjá sömu orðin, seip þeir eru vanir að nota í íslenzku, með endingurp og hljóðbreytingum, sem koma þeim an- kannalega fyrir sjón r, vegna þess, að þær eru aðrar en þeir eru vanir að nota og telja réttar. — Færeyj- ar og ísland byggðust frá Noregi að heita má á sama tíma, svo að stofnmál beggja landa hefur verið hið sama. En færeyska hefur tekið dálítið meiri breyt- ingum frá forn-norsku en íslenzka, og þær breyt- ingar hafa orðið 1 ýmsum atriðum eftir öðrum lög- málum. — Auðvitað eru færeysku lögmálin jafn rétthá í færeysku, eins og íslenzku lögmálin í voru máli. Tunga vor nútiðar-íslendihga er hin sama og Úlfljótur sagði lög á og Egill talaði, en nú hefur hún bætt við sig lögmálsbundinni þúsund ára þróun. Mál nútíðar-Færeyinga er hið sama, með jafnlanga þróun og lögmálsbundna, en aðra. Færeyska er rök- rétt mál og sjálfu sér samkvæmt. Þess vegna er rangt að kalla hana hrogriamál, þótt þeim kunni að f nnast hún það, sem eigi hafa kynnzt henni nóg til þess að finna lög hennar. Hitt er fávíslegt, að kalla hana afbökun á nútíðarmáli voru, þar sem hún er ekki af því komin. Sannleikurinn er sá, að hver, sem les tungu Færeyinga ofan í kjölinn, hlýtur að dást að henni fyrir margra hluta sakir, og menningu þeirri, sem v ð hana er tengd. Um málfræðilega samkvæmni. mýkt, beygingaauð og viðkvæmni stendur hún, af Norðurlandamálunum, íslenzku eirini að baki, og munar þó mjóu. Færeyingar hafa engar ritaðar bók- menntir átt, sem leiðarsnúru við varðveizlu tungu sinnar um ár og aldir, eins og vér íslendingar. Um fjögur hundruð ára hafa þeir átt að búa við sífelld- an ágang erlends máls, þar sem danska hefur verið einyöld og aðalmál í opinberum stofnunum, kirkjum og yerzlunum, og skólum, síðan þeir komu. Þegar þessa er göett, er varla hægt að álykta annað en

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.