Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Blaðsíða 41
43
c. Ársritiö.
Tuttugu og fimm ára afmælisrit Ræktunarfélagsins
kom út eins og ákveðið var snemma á árinu 1928. Að
réttu lagi hefði því næsta ársrit átt að koma út eftir
áramótin 1929. Vegna Búnaðarþings, bændanámskeiða
og reikningsskila vanst mér þó eigi tími til að búa árs-
ritið undir prentun síðastliðinn vetur og gat það þvi
eigi komið út fyr en nú.
IV. Verklegar framkvœmdir.
Vorið 1928 var bygt fjós úr steinsteypu á Galtalæk
fyrir 15 nautgripi, undir fjósinu er vönduð þvaggryfja.
er rúmar um 82 ten.m. af þvagi. Þá var og gert við
haughús það, er áður var búið að byggja á Galtalæk
og gengur fjósið yfir nokkurn hluta þess. f fjósinu eru
sjálfbrynningar og er aðstaðan hin ákjósanlegasta tii
að hirða í því. Ennfremur var lokið við byggingu á
hlöðu þeirri, sem byrjað var að byggja 1927. Rúmar
hlaða þessi um 400 hesta af heyi.
Síðastliðið vor var gert við íbúðina á Galtalæk. Sett-
ur skorsteinn í hana, eldhúsið stækkað og lögð í það
skólpræsla og vatnsleiðsla, útbúin geymsla o. fl. Þá var
og steypt votheysgryfja áföst við hlöðuna, er rúmar um
100 hesta af heyi, en þrátt fyrir það, þótt hlöðurúm
hafi aukist mikið síðustu árin, þá eykst heyfengurinn
örar, svo enn þarf að geyma talsvert af heyi í stakk.
Vorið 1928 voru brotnar um fjórar dagsláttur af
nýju landi og var sáð í það höfrum. Land þetta var
plægt aftur haustið 1928, unnið að fullu síðastliðið vor
og sáð grasfræi í meirihluta þess og hepnaðist sú gras-