Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Blaðsíða 19
21
d) Að þau smærri sambönd, sem styrks njóta frá
Ræktunarfélaginu, séu skyld að senda stjórn Ræktun-
arfélagsins fyrir 1. maí ár hvert: Rökstudda fjárhags-
áætlun, endurskoðaða og samþykta reikninga fyrir síð-
astliðið ár og nákvæma skýrslu um starfsemi sína á
síðasta ári.
e) Að viðskifti Ræktunarfélagsins og búnaðarfélaga
hinna smærri sambanda, gangi að svo miklu leyti, sem
við verður komið, gegnum stjórnir sambandanna, svo
sem: pantanir á útsæði, fræi o. fl.
Ennfremur sé sambandsstjórnum skylt að taka á
móti og annast um flutning og útbreiðslu allra þeirra
tilkynninga og málefna, er Ræktunarfélagið kann að
vilja senda út til þeirra búnaðarfélaga, er í þessum
samböndum eru.
Baldvin Friðlaugsson hafði framsögu í málinu fyrir
hönd nefndar þeirrar er skipuð var í málið og lagði
fram svohljóðandi álit:
»Nefnd sú er kosin var á aðalfundi Ræktunarfélags
Norðurlands til þess að athuga afstöðu hinna smærri
sambandá gagnvart Ræktunarfélaginu, leggur til:
1. Að fundurinn samþykki tillögur stjórnarinnar að
öðru leyti en því, að stafliður a) orðist þannig: Að
hvert samband aðstoði Ræktunarfélag Norðurlands
með innheimtu á árgjöldum þeirra búnaðarfélaga er
sambandið mynda.
2. Viðvíkjandi tillögu frá búnaðarþingi um kosningu
fulltrúa á búnaðarþing, leggur nefndin til að eftirfylgj-
andi tillaga sé samþykt:
Fundurinn lítur svo á að það fáist ekki rétt sam-
ræmi á kosningu fulltrúa á búnaðarþing sé fulltrúatala
á sambandsfundi miðuð við tölu búnaðarfélaga, þar
sem búnaðarfélögin hafa mjög misjafna tölu meðlima.
Fulltrúakosning á sambandsfundi ætti því að miðast