Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Side 58
60
61.3 kg. kali. Samanborið við tilbúinn áburð þá sam-
svarar þetta efnamagn 11052 tonnum af þýskum kalk-
saltpétri, 2809 tonnum af 18% Superfosfat og 4394
tonnum af 37% kaliáburði.
Frjóefnaforði gróðrarmoldarinnar er oft og tíðum
geysimikill, jörðin getur því oft gefið sæmilega upp-
skeru í fleiri ár án áburðar, afleiðingin hlýtur þó altaf
að verða sú, að frjóefnaforðinn gengur til þurðar og
uppskeran minkar. Höfuðtilgangur ræktunarinnar
hlýtur því altaf að vera sá, að viðhalda frjóefnaforða
jarðvegsins og uppskerumöguleika og frekar að auka
hann en rýra; þessu takmarki reynum vér að ná með
því að flytja jarðveginum eins mikið af jurtanærandi
efnum í áburði, eins og vér tökum frá honum í upp-
skerunni.
Sá áburður er vér fyrst og fremst notum til þess að
halda frjóefnaforða hins ræktaða lands óbreyttum er
húsdýraáburðurinn. Hve mikil ársframleiðsla þessa á-
burðar sé og hve mikið frjóefnamagn hennar sé er
erfitt að ákveða, því þar kemur margt til greina, sem
ómögulegt er að gera sér ljósa hugmynd um, án ítar-
legrar rannsóknar, svo sem: Misjafn innistöðutími bú-
fjárins, misjöfn fóðrun og mjög misjöfn hirðing og
notkun áburðarins. Það er því óhjákvæmilegt að leggja
einhvern meðal-mælikvarða á öll þessi breytilegu atriði
og styðst eg í þeim efnum við álit ýmsra mætra manna,
er um þetta efni hafa skrifað og vil eg þá áætla:
Ársáb. undan fullvöxnum nautgrip 10000 kg. meðalt.
Ársáburð undan fullvöxnum hesti 1500 kg. meðalt.
Ársáb. undan fullvaxinni sauðkind 200.kg meðalt.
Hvað áburðinn undan nautgripunum áhrærir, þá er
auðveldast að fara þar nærri lagi og munurinn lítill í
hinum ýmsu landshlutum. öðru máli er að gegna með
hrossin og sauðféð. Vegna mismunandi staðhátta í hin-