Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 27
20
verið hæst í slæmu árferði. i sumar var Rósin hæst og
Up to date önnur í röðinni.
II. Uppskeran.
Síðastliðið vor hömluðu kuldar og þurkar mjög
sprettu þar til kom fram í júnímánuð, en úr því spratt
mjög ört, svo grasspretta varð að lokum sæmileg.
Nokkurt kal var í túnunum, einkum þar sem lægðir og
raklendir blettir eru og virðist svo sem snarrótin yrði
harðast úti, en hún sprettur mest á slíkum stöðum. Þó
mun sannast, að kalið færi als eigi eftir gróðrarfari,
heldur eftir landslagi og jarðvegsásigkomulagi.
Kartöflur spruttu mjög seint og arfi var óvenjulega
slæmur viðfangs, sem aðallega orsakaðist af því, hve
seint arfafræið spíraði. Arfinn spratt lítið fyr en kom
fram í sláttarbyrjun og kom því vorhirðing garðanna
að litlum notum.
Rófur spruttu í meðallagi; þurfa aldrei að bregðast
ef hægt er að sá þeim snemma og í vel raka mold og
áburður og hirðing er í góðu lagi.
Uppskeran varð þannig í 100 kg.
Taða. Hafrahey. Kartöflur. Gulrófur.
ca. 570 ca. 50 ca. 50 ca. 60
III. Frœðslustarfsemin.
a. Verklegt garð yrkjun ámslceið.
Á vornámskeiði voru:
Elín Jónsdóttir, Kálfavík, ögurhr., N.-ísafjarðars.
Halldóra Sturlaugsdóttir, Snartartungu, óspakseyr-
arhr., Strandasýslu.