Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Side 6
8
en félagi getur hver sá orðið, bæði utan lands og inn-
an, sem uppfyllir skilyrði 5. gr.
8. gr. falli burt:
9. gr. Fyrsta málsgrein orðist svo: *
Félaginu stjórna fulltrúar og félagsstjórn. Hver
deild hefir rétt til að senda einn fulltrúa á fundi fé-
lagsins fyrir hverja 20 félagsmenn og helmingsbrot
eða meira, en auk þess hafa formenn búnaðarsambanda
og búnaðarþingsfulltrúar í Norðlendingafjórðungi rétt
til að sitja fundi félagsins sem reglulegir fulltrúar.
Aftan við greinina bætist:
Allir félagar hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum
félagsins, en fulltrúar einir og félagsstjórn atkvæðis-
rétt.
10. gr. — Fundir skulu haldnir til skiftis í sýslun-
um o. s. frv. falli burt.
14. gr. falli burt.
16. gr. orðist svo:
Lögum þessum má eigi breyta nema á aðalfundi og
þurfa % mættra fulltrúa að greiða atkvæði með breyt-
ingunum til þess að þær öðlist gildi.
Framanritaðar tillögur laganefndar með tilliti tii
starfseminnar á yfirstandandi ári voru að loknum um-
ræðum samþyktar með öllum atkvæðum.
9. Fór fram kosning tveggja manna, er ásamt stjórn
Ræktunarfélags Norðurlands eiga að semja uppkast að
lögum fyrif hið væntanlega búnaðarsamband.
Kosningu hlutu:
Davíð Jónsson hreppstjóri, Kroppi, með 8 atkv.
Kr. H. Benjamínsson bóndi, Tjörnum, með 7 atkv.
10. Framtiðarstarfsemi félagsins og fjárhagsáætlun:
Framsögumaður fjárhagsnefndar, Davíð Jónsson,
Kroppi, gerði grein fyrri starfi nefndarinnar. Hafði