Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Síða 18
20
bæði með sérstakri fræðslustarfsemi í sambandi við til-
raunastöð sína og sem þátttakandi í verklegri og
munnlegri búnaðarfræðslu, er stofnað verður til innan
vébanda sambandanna. Ársrit félagsins með tilrauna-
skýrslum og búnaðarmálaritgerðum bygðum á rann-
sóknum þess, er þýðingarmikill liður í þessu starfi og
gæti orðið þýðingarmikill þáttur í samstarfi Ræktun-
arfélagsins og sambandanna í Norðlendingafjórðungi
á þann hátt, að samböndunum gæfist kostur á að birta
þar árlega starfsskýrslur sínar og ritgerðir um búnað-
armál frá starfsmönnum sínum og áhugamönnum. Sam-
böndin yrðu þá að greiða prentunarkostnað á því efni,
sem þau óskuðu að fá birt í ritinu og gætu svo fengið
eins mörg eintök af ársritinu og þau óskuðu til útbýt-
ingar á sambandssvæðunum fyrir lítið gjald, er miðað-
ist við aukinn pappírskostnað, er af þessu leiddi. Á
Þennan hátt fengju samböndin tækifæri til að birta
skýrslur sínar og koma áhugamálum sinna manna á
framfæri með litlum tilkostnaði og gæfist ennfremur
kostur á að fylgjast nákvæmlega með starfsemi og
stefnum hvers annars og þeim tilraunaniðurstöðum og
leiðbeiningum, er Ræktunarfélagið birti í ársriti sínu.
Ársritið yrði þannig andlegur tengiliður milli Ræktun-
arfélagsins og Búnaðarsambandanna í Norðlendinga-
fjórðungi og milli sambandanna innbyrðis.
Þótt búnaðarsamböndin í Norðlendingafjórðungi
hafi nú skiftst í fleiri fjárhagslega óháð sambönd, þá
má slík skifting eigi veikja sameiginlegan samtaka-
mátt búnaðarfélagsskaparins í fjórðungnum; hún er
að ýmsu leyti heppileg, getur stuðlað að auknum fram-
kvæmdum og er í samræmi við landafræðislega skift-
ing fjórðungsins í glögt afmörkuð héruð. Þetta má þó
á engan hátt leiða til einangrunar, því búnaðarfélags-
skapurinn á Norðurlandi hefur um langt skeið átt svo