Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 30

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 30
Garðyrkjuskýrsla 1931 Trjdrœkt. Vorið var óvanalega kalt, þessvegna kom allur gróð- ur mjög seint til. Tré og runnar laufguðust seint, er tæpast hægt að segja að trén væru allaufguð í maílok, en eftir þann tíma fór trjágróðrinum allvel fram, þó júnímánuður væri bæði kaldur og þurviðrasamur. Merki vetrarins voru ekki eins slæm á trjágróðrin- um og oft hefur verið áður. Toppkal sást næstum ekki á stærri trjám, nema einstöku tegundum, sem altaf kala á hverju ári hvernig sem viðrar, því þó veturnir séu góðir, eru þeir þó altaf of harðleiknir fyrir þeirra fínbygðu árssprota, t. d. má nefna Acer Platanoides og Sambucus nigrum, af þeirra ársvexti eyðilegst mikið á hverjum vetri. I græðibeðum stóðu plönturnar vel, mjög lítið sem hafði dáið og lítið toppkalið. Aftur á móti hafði dálítið týnt tölunni í fræbeðunum, bó ekki eins mikið og marga undanfarna vetur. Það, sem eftir lifði í fræ- beðum, stóð vel, og fór vel fram í sumar og sumu ágæt- lega eftir ástæðum. Þó vorið væri kalt, virtist trjágróð- ur ná sér furðanlega, og standa vel þegar fram á sum- arið kom. í júnílok stóð Heggur alsettur stórum og fallegum blómum upp í topp, og baunatré og geitblöð- ungur voru að byrja að blómstra.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.