Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 35

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 35
Kreppan og áburðurinn Heimsviðburður sá, sem í daglegu tali er nefndur »kreppan«, hefur á þessu ári fyrir alvöru skollið yfir land vort. Eg skal eigi hér reyna að gera grein fyrir hverjar séu orsakir kreppunnar, því hvort sem þær eru offramleiðsla, of lítil kaupgeta fjöldans, of hátt kaupgjald, óeðlileg skuldaskifti eða misskifti gullsins í heiminum, þá er hin áþreifanlega afleiðing sú, að sölu- verð framleiðslunnar lækkar svo geysilega, að algert misvægi verður á milli tilkostnaðarins við framleiðsl- una annarsvegar og söluverðs hennar á hina hliðina. Þetta er sú hlið kreppunnar, sem að oss íslendingum snýr. Vér erum svo fáir og fátækir, að vér getum eng- in teljandi áhrif haft á rás viðburðanna í umheiminum og þar af leiðandi eigi læknað þær meinsemdir, sem kreppunni valda, en verðum að sníða oss stakk í sam- ræmi við það ástand, sem ríkir í verslun og viðskiftum á heimsmarkaðinum á hverjum tíma. Það eina ráð, sem vér getum mætt yfirstandandi kreppu með, er að lækka tilkostnaðinn við framleiðsluna. útgjöld þau, sem mynda framleiðslukostnaðinn, má draga saman í nokkura höfuðflokka, svo sem: útgjöld til kaupa á framleiðslutækjum og hráefni, verkalaun, vexti og afborganir af stofn- og rekstrarfé og opinber gjöld. Vér sjáum það fljótt, ef vér athugum þessa liði, að það er aðeins fyrsti liðurinn, sem framleiðandinn

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.