Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 52

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 52
54 þessar jurtir, skal eg eigi lýsa hinum grasafræðilegu einkennum þeirra hér. Hinsvegar verður eigi komist hjá því, að minnast lítilsháttar á helstu vaxtareinkenni þeirra og útbreiðsluskilyrði. Bæði haugarfinn og hjartarfinn eru einærar jurtir, þ. e. vaxa einungis upp af fræi og hver planta lifir að- eins eitt vaxtartímabil. Þó geta þær plöntur, sem spretta svo seint, að þær ná eigi að þroska blóm fyrir veturinn, lifað til næsta vors og þroska þær plöntur fræ snemma sumars. Vaxtarmáti arfategundanna er næsta ólíkur. Haugarfinn er lágvaxin jurt með jarð- lægum marggreindum stönglum, rótin er fíngerð trefjarót, og auk höfuðrótarinnar skjóta stönglarnir rótum hér og hvar, og getur ein planta á þennan hátt breitt sig yfir y4—Vá m2- Hjartarfinn aftur á móti hefur upprétta lítið greinda stöngla, sem vaxa upp frá þéttri stofnblaðahvirfingu. Rótin er stólparót. Fræmyndun arfans er geysileg, er talið að ein haug- arfaplanta geti þroskað alt að 15000 fræ, en ein hjart- arfaplanta getur þroskað um 40000 fræ. Fræið þrosk- ast mjög auðveldlega og spírar ágætlega, þó það sé lítið meira en hálfþroskað og gegnum meltingarfæri búfénaðarins fer það auðveldlega án þess að missa gró- magn sitt. Haugarfinn þolir tiltölulega illa hávaxinn og blaðrík- an gróður; nái slíkur gróður að vaxa honum yfir höf- uð, þá er vaxtarþróttur hans á bak brotinn svo hann visnar upp og nær eigi að blómstra. Hjartarfinn, sem er hávaxnari og sterkbygðari, þolir betur slíkan gróð- ur og svo hjálpar líka hin sterka stofnborðahvirfing hans til að halda öðrum gróðri frá jurtinni. Báðar þessar illgresistegundir eru algengar í sáð- sléttum og nýyrkju yfirleitt, en sjaldan verða þær þar langærar, því grasið útrýmir þeim venjulega á 2—3

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.