Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1988, Page 9
heppnir með starfsmenn þó auðvitað hafi þeir orðið fyrir
aðkasti. Nú síðustu árin hafa lögreglumenn frá rannsóknar-
lögreglu ríkisins sinnt starfi veiðieftirlistmanna í sumar-
leyfum sínum. Er mikill fengur að því að í þetta starf ráðist
starfsfólk sem kann til verka við margvíslegar aðstæður og
hefur hlotið undirstöðumenntun til að þekkja sálarflækjur
fólks sem ekki hefur ofgóða samvisku.
SÝNfSHORN AF FRAMKVÆMD VEfÐfEFTIRLITS
Mig langar hér til að taka hluta úr grein, sem birtist í Lög-
reglumanninum 2. tbl. 5. árgang 1989 eftir Eirík Helgason,
veiðieftirlitsmann við Miðfjarðará: „Fyrst skal að því vikið
hvernig greinarhöfundur tengist veiðivörslu. Pannig háttar
til að undanfarin 5—6 ár, hafa starfsmenn frá RLR tekið að
sér að gæta nokkurra veiðiáa í sumarleyfum sínum og eru
það ár bæði á Norður- og Austurlandi. Við það að taka
að sér veiðivörslu, hafa menn gjarnan séð tilbreytingu og
ekki hvað síst það að komast út undir bert loft því ólíkt
mörgum öðrum lögreglumönnum, þá eyðum við rannsóknar-
lögreglumenn oft á tíðum stórum hluta vinnudagsins innan
fjögurra veggja vinnustaðarins.
Veiðivarsla er náttúrulega fyrst og fremst það sem allir
átta sig á, er þeir heyra það starfsheiti; að fylgjast með veiði-
mönnum, að þeir fari eftir settum reglum um veiðitæki og
gerist ekki of veiðiglaðir og gírugir. Er rétt að taka það fram
strax, að sá hluti starfsins sem snýr að sportveiðimönnum
við Miðfjarðarár er einstaklega ánægjulegur. Til hreinna
undantekninga má telja að veiðimenn við ána fari ekki eftir
settum reglum. Par er yfirleitt samankomið einvala lið
sannra veiðimanna og prúðmenna, sem gera þann hluta
starfs veiðivarðarins að sannri ánægju. í öðru lagi þá er veiði-
eftirlitsmanni ætlað að sinna ýmsum verkefnum fyrir veiði-
málastjóra, safna skýrslum, annast sýnatökur af löxum og
silungum, mæla hitastig veiðivatna og svo framvegis.
11