Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1988, Side 29

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1988, Side 29
þekkja jarðarinnar ýmislegar tegundir; loftslagið, hvar jurtirnar skulu vaxa, og mátann, að yrkja jörðina handa þeim: vita megu menn og að lækna hana af sínum veikleikum, og frjóvga hana; og þetta hið seinasta vildi ég ádrepa, ef til nota kynni að verða; en þó er nauðsyn að telja fyrst stuttlega þær almennustu jarðar-tegundir. 2. frjár teljast aðalgreinir jarðarinnar: mold, leir og sandur. 1) Mold, sem er dökk að lit, smágerð, laus og létt, og heftr sína veru af hvítleitu dufti, olíu salti og vatni, og sinn uppruna af rotnuðum grösum, og öðru þvílíku rotnuðu; hún er almennt hin efsta flaga jarðarinnar; vatn gjörir hana lausari, og svartleitari, en raki seigari: þessi jarðar tegund er heitrar náttúru, minnkar af því að bera gras og jurtir, af þurrk og vindi, sólar-hita og burt-færslu af vatni; en vex af áburði, og vatns áleiðslu, og feitast af velbrenndri mykju, og öðru þessháttar. Kraftur moldarinnar þekkist af hennar þéttleika, til dæmis; grafi maður gröf, og moki sömu moldu í aftur svo er jörðin því megnari, sem minni mold fer í gröftna; en því feitari er hún, sem hún loðir manni meira við hendur; hún er hin frjósamasta allra jarðar-tegunda; sé hún of-létt, má hún þéttast með áburði. 2) Leir er ýmislega litur, sá blá-leiti er í mestu afhaldi, þéttur og smá-gerður, og eftir sínu rétta eðli ekki feitur; hann heldur vatni og öðru lengi í sér, verður harður og þéttur af þurrkum; af þessari jarðar-tegund verða oft steinar, og Mergel eður jarðar-mergur, sé hún kalki blandin; því djúpari í jörðu leirinn er, þess hreinari er hann. 3) Sandur er sem leir ýmislega litur, er eigi annað, en smágerður steinn; hann vermist fljótt, og er því oftast heitur á sumrum, en heldur eigi vatni, eður öðru lengi í sér; hann má bera á leir-jörðu, til að gjöra hana lausari, og hitanum hæftlegri; allskonar aur, rauður, gulur, ec. telst með þessari jarðartegund. Hún betrast með mykju, og góðum áburði, leiri, og moldu. Engin jarðar-tegund er einsömul, svo að eigi sé hún með annari menguð. Því votari jörðin er, þess kaldari er hún, hvar af ráða má að láglendið er kaldara en hálendi, þó loftið gjöri nokkuð til gróða hins síðara, því jurtir fæðast af oliu, eld-næmri jörðu, salti og vatni, sem temprar allt þetta, og þar að auk fæðirvel. Kaldastur er norðan-vindur, heitastur sunnan-vindur, austan-vindur kaldari enn vestan; en þó halda menn, að báðir færi með sér salta og oliu-mengaða fæðu; þó gjera þeir dampar af jörðunni, sem vindurinn fer yfir og flytur frá einum stað til annars, mikið að verkum. Allskonar jörð skemmist af ræktarleysi, en við yrkju verður jafnvel hin lakasta góð og frjósöm, það er að skilja, ef hún er pæld upp, (því efsta flaga jarðarinnar kann eigi jafnan að bera ávöxt) og blönduð með öðrum jarðartegundum, og vatni af-eður áhleypt. Súrleiki jarðarinnar tekst í burtu við kalk, skít, ösku og jarðarmerg. En um mykju, hvar með jörðin feitist, vil ég nú stuttlega tala. 31
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.