Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1988, Síða 106
við útvegun fræs af góðum grasastofnum. Að lokum ræddi Bjarni um
samskipti bænda og ráðunauta og sagði það hlutverk þessa fundar
að fjalla um þau mál.
Fleiri óskuðu ekki eftir að ræða skýrslur og reikninga. Fundarstjóri
bar síðan reikningana upp til atkvæða og voru þeir samþykktir sam-
hljóða.
6. Skipað var í eftirtaldar nefndir til starfa á fundinum:
I.agancfnd:
Arnór Gunnarsson,
Ragnar Bjarnason,
Björn Benediktsson,
Stefán Flalldórsson,
Aðalbjörn Benediktsson,
Björn Þórðarson,
Guðbjartur Guðmundss.,
Guðmundur Steindórsson.
Fjárhagsncfnd:
Pétur Helgason,
Heimir Ágústsson,
Erlingur Arnórsson,
Heiðar Kristjánsson,
Sigurjón Tobíasson,
Ari Teitsson,
Ólafur G. Vagnsson,
Gunnar Þórarinsson.
Allshcrjarnefnd:
Gunnar Sæmundsson,
Haukur Steindórsson,
Jón Gíslason,
Jón Guðmundsson,
Þorsteinn Davíðsson,
Víkingur Gunnarsson,
Benedikt Björgvinsson,
Jón H. Sigurðsson.
Þeir sem fyrst eru skráðir gegndu formennsku í viðkomandi nefnd.
7. Framlagning mála:
Bjarni E. Guðleifsson lagði fram og skýrði fjárhagsáætlun fyrir árið
1989. Henni var vísað til fjárhagsnefndar.
Ævarr Hjartarson skýrði frá störfum nefndar sem skipuð var á síð-
asta aðalfundi Ræktunarfélagsins og hafði það verkefni að gera úttekt
á leiðbeiningaþjónustu á svæði Ræktunarfélagsins og gera tillögur um
breytingar ef ástæða þætti til. Auk hans voru í nefndinni Jóhannes
Sigvaldason, Jón Bjarnason, Aðalbjörn Benediktsson og Sigtryggur
Vagnsson. Nefndin leggur fram eftirfarandi tillögur:
„Á aðalfundi Ræktunarfélags Norðurlands 1987 voru undirritaðir
skipaðir í nefnd til þess að gera úttekt á leiðbeiningaþjónustu á
svæði félagsins og leggja fram tillögu til breytinga ef nefndin teldi
ástæðu til. Nefndin hefur komið þrisvar saman til fundar og orðið
sammála um að leggja fyrir aðalfund Ræktunarfélags Norðurlands
1988 eftirfarandi tillögur eða valkosti:
1. Leiðbeiningasvæði. a. Norðurland verði eitt leiðbeiningasvæði.
b. Svæðaskifting verði með svipuðu sniði og nú er en ákveðin og
markviss samvinna á milli sambandanna. Nefndin hallast að val-
kosti b. Með því móti helst sjálfstæði einstakra búnaðarsambanda
til eigin leiðbeininga en lögð verði aðaláhersla á að samvinna verði
um verkefni sem eðlilegt er að vinna megi á sama máta yfir stærra
svæði. Má þar nefna sérstök átaksverkefni í leiðbeiningum og verk-
efni eins og bændabókhald, kortagerð, nýbúgreinar og annað álíka.
Varðandi átaksverkefni yrði að tilhlutan Ræktunarfélagsins komið
108