Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1947, Qupperneq 12

Frjáls verslun - 01.06.1947, Qupperneq 12
legt kaup verkamanna sé nú í öðru landi liærra en hér. í upphafi var raunhæfur grundvöllur fyrir kauphækkuninni, vegna hins háa verðlags á útflutningsafurðunum og lítillar samkeppni um sölu þeirra á ófriðarárunum. En síðar hefur orðið breyting, kaupið hefur hækkað langt frarn yfir hækkun þá, sem orðið hefur á verði útflutn- ingsafurðanna, og nú eigum við auk þess að etja við samkeppni annarra landa, sem geta selt vörur sínar miklu lægra verði en við, sökum þess að kaupgjald þar og allur framleiðslukostnaður er miklu lægri en hér á landi. Allt hlýtur þetta að leiða til þess, að við verð- um að gera okkur ljóst, hvar við erum staddir og hvert stefna beri í kaupgjaldsmálunum, eða með öðrum orðum að svara þeirri spurningu, livað kaupið megi vera hátt með tilliti til greiðslugetu atvinnuveganna. Það sem ræður hæð kaupsins á hverjum tíma er m.a. framleiðslugeta (produktivitet) vinnunn- ar og viðskiptin, það verð, sem fæst fyrir afurð- irnar. Hámark kaupsins takmarkast sem sé af því, að verðið, sem fæst fyrir hina seldu vöru, nægi til þess að borga kaupið og annan fram- leiðslukostnað, þ. e. a. s. að framleiðslan beri sig, því að annars stöðvast hún og atvinnuleysið með öllu sínu böli heldur innreið sína. í raun réttri eru það því hagsmunir verkamannanna sjálfra, að kaupið sé ekki spennt of liátt og framleiðslan stöðvist, því þá bitnar það fyrst og fremst á þeim. Oll óábyrg launapólitík, sem reynir að spenna kaupið upp fyrir getu atvinnurekstursins, er því verkamönnum óhagstæð. Sú stefna, sem virðist því vera verkamönn- um og alþjóð heppilegust hér á landi, eins og sakir standa, er án efa sú, að reyna ekki almennt að þrýsta „nominalkapinu“ upp frekar en orð- ið er, en hinsvegar að tryggja kaupmátt kaups- ins með lækkaðri dýrtíð, að viðhalda stöðugri vinnu og að auðvelda kaupmætti kaupsins eðli- lega útrás í auknum lífsþægindum í formi bætts húsnæðis og aukinna heimilisþæginda. FjárhagsráS hefur veriS skipaS frá 1. júlí þ. á. aS telja. 1 því eiga sæti eftirtaldir 5 menn: Dr. Magnús Jónsson, próf., formaSur. Finnur Jónsson, alþingismaSur. Hermann Jónasson, alþingismaSur. Dr. Oddur GuSjónsson, form. ViSskiptaráSs. Sigtryggur Klemenzson, sljórnarráSsfulltr. Mun þetta nýja og valdamikla ráS þegar hafa hafiS undirbúningsframkvæmdir, og má búast viS aS þaS setjist viS stýriS senn hvaS líSur. | Úr myndasafni V.R. Árni Árnason. Skúli landfógeti. .. Framhald af bls. 104 manna og hjörtum, þá hefði hann sjálfsagt bor- ið bagal og mítur og sveiflað tilfinnanlega ein- valdssprota kirkjunnar yfir landi og lýð. Hefði honum aftur á móti verið það ætlað af forsjón- inni að lifa á vorum dögum, um þær mundir, er frelsishugmyndir þessarar aldar ruddu sér braut yfir löndin, þá má telja það víst, að hann hefði gripið merki þeirra og ruðst fram í broddi fylkingar móti kúgun og þrældómi. Allir þessir hæfileikar lágu fólgnir í sálu hans. Renna oss ósjálfrátt í hug orð Haralds konungs harðráða, er tilrætt varð um Gizur biskup, að úr honum mætti gera þrjá menn: víkingahöfðingja, kon- ung og biskup, „ok væri hann til alls vel fall- inn“. 108 FltJÁLS VEltZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.