Frjáls verslun - 20.06.1948, Blaðsíða 6
Sýningarsvæðið í Briissel liggur rétt utan við
borgina eða í útjaðri hennar. Er það hið feg-
ursta, og sýnilegt að þar hefur ekkert verið spar-
að til að gera húsakost sem mestan og veg-
legastan. Var sýningin í vor hin 22. í röðinni.
Eru Belgar, eins og áður segir, hinir áhugasöm-
ustu um að auka útflutningsverzlun sína, og
eiga að hafa góða aðstöðu til þess, a. m. k. að
því er snertir framleiðslugetuna og hráefnin.
Á sýningunni þar b'ar talsvert mikið á ýmsum
amerískum vélum og tækjum, sem fyrst og
fremst voru sýnd þarna til að vekja áhuga belgísks
almennings fyrir þessum og hinum hlutunum.
Þar voru sýndir kæliskápar og þvottavélar helztu
amerísku framleiðendanna í þeim greinum,
svissneskar vélar o. s. frv. En fyrst og fremst
bar sýningin merki belgísku útflytjendanna,
hinna áhugasömu manna, sem vita að nú á tím-
um er ekki nema um tvennt að velja, tryggja
markaði og flytja út, — eða lifa við sult og seyru.
IV.
„Frjáls verzlun“ hefur oft minnzt á það, að
okkur íslendingum beri að leggja meiri rækt
við öflun markaða fyrir íslenzkar afurðir og
nauðsynlegt sé að vinna að aukinni eftirspurn
erlendis eftir íslenzkum framleiðsluvörum. Þetta
er okkur lífsnauðsynlegt að gera, ef við ekki urn
ófyrirsjáanlega framtíð ætlum að búa við nú-
verandi eymdarástand í milliríkjaverzluninni.
Árleg þátttaka íslendinga í alþjóðlegum vöru-
sýningum, eins og t. d. Briissel og Utrecht sýning-
unum, ætti að geta orðið spor í þá átt. Um þátt-
tökukostnað í slíkum sýningum er ekki gott að
fullyrða, að lítt rannsökuðu máli, en sjálfsagt
yrði hann nokkur, þótt sýningarplássið sjálft sé
Höfnin í Amsterdam er ein hinna þýSingarmestu í álfunni.
Myndin er af skipum og skrifstojubyggingu Hollenzka gufu-
skipafélagsins í Amsterdam.
Úr mynclasafni V.R. i
XVIII.
leigt við mjög vægu verði. í Brússel mun það
kosta 600 belgíska franka, hver fermetri, eða
minna heldur en á landbúnaðarsýningunni í
fyrra vor. Á slíkri sýningu væri hægt að sýna í
kæliborði hraðfrysta fiskinn í hinum mismun-
andi umbúðum, feitmetisframleiðsluna, íslenzk-
ar niðursuðuvörur og annað það, sem við þurf-
um að stílja til útlanda. Jafnframt því væri
hægt, í myndum og máli, að gefa upplýsingar
um, hvað það er, sem héðan er hægt að kaupa,
og hvað hægt er að selja okkur.
Það væri ekki óeðlilegt að Verzlunarráðið hér
hefði forystu um að þetta mál væri a. m. k. at-
hugað og um það, ef til kæmi, höfð samvinna
við stærstu útflytjendur í landinu, því reynslan
sýnir og sannar, að með bættum samgöngum,
aukinni tækni og öllu því, sem fylgir þeim tíma
er við lifum á, eykst þátttakan í hinum alþýð-
legu vörusýningum og aðsóknin að þeim, þrátt
fyrir gjaldeyrishömlur og viðskiptahöft.
Þ. B.
130
FRJÁLS VERZLUN