Frjáls verslun - 01.06.1955, Blaðsíða 2
Magnús J.
Brynjólfsson
kaupm.:
HORFT UM ÖXL
Stofnendur Verzlunarinannafélags Reykjavík-
ur höfðu það sérstaka markmið: að efla sam-
heldni og einingu verzlunarstéttarinnar. A þess-
um grundvelli er félagið stofnað og hefur hann
reynzt því giftudrjúgur og farsæll. Það sýnir
64 ára starfsemi V. R.
Fjöregg frjálsrar verzlunar er samheldni og
eininq allrar verzlunarstéttarinnar, ]>ví að hags-
munir allra aðila er sameiginlegur, jafnt af-
greiðshimanna, skrifstofumanna og annarra
starfsmanna, sem og eigenda fyrirtækjanna.
V. R. er stofnað í gróanda íslenzks þjóð'lífs.
T>að kemur sér upp bókasafni, strax á fyrsta ári,
og ver árlega fé til kaupa á blöðum og bókum.
Tekur upp iólatrésskemmtanir fyrir fátæk börn
árið 1896. Átti hlutdeild í að koma Verzlunar-
skólanum á stofn, ásamt Kaupmannafélaginu,
1905. Sýnir þetta bezt, að V. R. var langt á und-
an samtíð sinni í ýmsum þjóðfélagsmálum.
Giftudrjúg samvinna milli kaupmanna og verzl-
unarmanna. með stofnun V. R., var byggð upp
með hagsæld beggja fyrir augum. Þetta verða
félagar V. R. að hafa hugfast. Stofngrundvöllur-
inn: samheldni og eining eiga að vera einkunnar-
orð félagsins.
Við þekkjum allir þau öfl. sem vinna að sundr-
ungu og glundroða á málefnum verzlunarstétt-
arinnar. Þar eru að verki menn, sem hafa ekki
þjóðarhag fyrir augum, heldur sérhagsmuni og
upplausn iiins frjálsa þjóðskipulags. Dugandi,
samvizkusöm og áhugasöm verzlunarstétt er sú
sameign þjóðfélagsins, sem livorki mölur né ryð
fær grandað.
Það var eðlilegt með núverandi þróun í þjóð-
félagsmálum, að félagsleiðir verzlunarmanna og
kaupmanna skildu. Það var þeim, er þetta ritar,
Ijóst fyrir löngu. Auðvitað var skilnaðurinn ekki
sársaukalaus þeim, er um fjölda ára höfðu verið
félagar í V. R. og glaðzt yfir vexti og velgengni
félagsins.
En framkoma allra aðila, er hlut áttu að
máli, við að gera skilnaðarsamkomulagið V. R.
til sóma og svo að atvinnurekendur máttu vel
við una, var til fyrirmyndar.
Samkomulagið um að láta mikinn hluta eigna
V. R. ganga til Verzlunarskóla Tslands á 50 ára
afmæli hans í sumar, var sannarlega í anda
stofnenda V. R. ITér var unnið í anda markmiðs
félagsins í byrjun: að efla samheldni og einlægni
innan verzlunarstéttarinnar. Með þessum ein-
kunnarorðum að sjónarmiði, í öllum samningum
og málefnum verzlunarstéttarinnar, hvort held-
ur eru fjötrar á athafnafrelsi verzlunarinnar,
launamál eða önnur hagsmunamál, er auðvelt að
leysa hverskonar ágreininga og deilur, sem up]>
kunnu að koma, með samningum og samkomu-
lagi, því að öll málefni verzlunarstéttarinnar eru
sameignleg hagsmuna.mál hennar. Ef við höfum
þetta hugfast, er gifta og öryggi stéttarinnar
tryggt í nútíð og framtíð.
Við skulum strengia þess heit að standa vörð
um frelsi. hagsæld og einingu verzlunarstéttar-
innar. Vinna af alefli á móti þeim öflum, sem
stuðla að snndrung og upolausn á því skipulagi,
er frjáls verzlun hlýtur að hvila og byggjast á.
Áhugaleysi félagsmanna V. R. á málefnum fé-
lagsins getur orðið þeim afdrifarik, ef þeir sækja
illa fundi, þegar þýðingarmikil mál eru ti'l um-
ræðu eða ef um stjómarkjör er að ræða. Fá-
mennur hópur getur þá náð völdum í félaginu
og kollvarpað og eyðilagt allt það starf, sem
tekið hefur áratugi að byggja upp.
Það er ósk mín og von V. R. til handa á þess-
um merku tímamótum í þróunarsögu félagsins,
að forráðamennirnir veljist ávallt, eins og hmg-
að til, úr þeim hópi manna, sem hefur þá víð-
sýni, samheldni og einingu í málefnum verzlun-
arstéttarinnar og skilning á hagsmunamálum V.
R., er tr\rggir framtíð félagsins um ókomin ar
í anda stofnendanna. Þá er vel farið.
90
FRJALS VERZT.UN