Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1955, Qupperneq 7

Frjáls verslun - 01.06.1955, Qupperneq 7
Ljósm.: Pétur Thomsen. llluti af sýningu TékkóslóvaUlu í neðra 7lorti Miðbœjar- bamaslcólans, en J>ar eru sýndar margsJconar vélar, áhöld o.fl. ur á gæði og útlit varanna, en margar vöruteg- undir frá Tékkóslóvakíu þekkjum við af fyrri viðkynningu. Heildarsvipur sýninganna er góður og allt rúm vel nýtt. Fyrirtækið Kaupstefnan hér í bæ, er tekur að sér og skipuleggur vörusýningar innanlands og utan, hefur séð um framkvæmd sýninganna, en þátttakendur eru Verzlunarráð Tékkóslóvakíu í Prag, með þátttöku 11 téklcneskra útflutnings- fyrirtækja, og Verzlunarráð Sovétríkjanna með þátttöku 15 útflutningsfyrirtækja. Vörusýningin stendur yfir dagana 2.—17. júlí. Þetta er mesta og stærsta vörusýning, sem komið hefur verið upp hér á landi til þessa., og er gott til þess að vita, að þjóðir þær, sem að sýningunni standa, skuli telja íslenzka markað- inn það mikilvægan, að þau leggi í stórfelldan kostnað og fyrirhöfn til að' kynna landsmönnum Ljósm.: Pétur Thomseii. SJcinna'vara í sýningardeild SovétríJcjanna i TÁstamannaslcál- anum. vörur sínar. íslendingum er einnig nauðsyn að afla sér góðra og traustra markaða fyrir fram- leiðsluvörur sínar og vilja því sem víðtækust viðskiptatengsl á grundvelli gagnkvæms hagn- aðar. Vörusýningar eru táldar ómissandi hjálpar- gögn í viðskiptalífinu, bæði til að kynna almenn- ingi markaðsvörur og til þess að auðvelda kaup- sýslumönnum viðskipti sín í milli. Er því von- andi, að fleiri þjóðir heims leggi lykkju á leið sína og lieimsæki okkur hér á norðurhvel jarðar í náinni framtíð með vörusýningar. Það mætti einnig vera okkur hvatning til þess, að hefjast handa um byggingu veglegs sýningar- skála, bæði fvrir innlendar og erlendar vörusýn- ingar. -----■»<»•»•»------- Sjálfsöluverzlanir í Svíþjóð Um 10% af sölu nauðsynjavara í Svíþjóð fer nú fram í gegnum sjálfsöluverzlnnir. í Bretlandi nemur þessi tala 6% og í Bandaríkjunum 80%. t kringum 400 nýjar sjálfsöluverzlanir rísa upp ár hvert í Svíþjóð, og innan 15 ára er talið, að um 5 þús. þess háttar verzlanir verði í landinu. Meðalkostnaður við að koma upp vel skipu- lagðri sjálfsöluverzlun er talinn vera um 100 þúsund sænskar krónur. FKJÁLS VKUZLUN 95

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.