Frjáls verslun - 01.06.1955, Page 18
Tíu ár liðin slðan fyrsfa
íslenzka millilandaflugið
með farþega var farið
Spjallað við fyrsta farþegann, Jón Jðhannesson, stórlaupmann
Fyrstu farþegarnir, sem flugu í íslenzkri flug-
vél milli Islands og annarra landa, voru þrír ís-
lenzkir kaupsýslumenn, þeir Jón Jóhannesson,
Hans Þórðarson og Jón Einarsson, svo og Ro-
bert Jack, sem síð'ar varð prestur í Grímsey.
Við komum nýlega að máli við Jón Jóhannes-
son, stórkaupmann í Reykjavík, en hann var
fyrstur þeirra fjórmenninganna til að kaupa far-
miða hjá Flugfélagi íslands með fyrstu íslenzku
millilandaflugferðinni frá Reykjavík til Skot-
lands í júlímánuði 1945. Jón skipar því heiðurs-
sess meðaf hinna mörgu þúsunda, sem síðan hafa
ferðast með íslenzkum flugvélum milli Islands
og annarra landa. Báðum við Jón um að skýra
lesendum blaðsins eitthvað frá þessari merlci-
legu flugferð fyrir 10 árum, sem markaði tíma-
mót í þróunarsögu íslenzkra flugsamgangna.
Hvað vildum. bér segja okkur um hessa jyrstu
ferð?
Sannast að segja finnst mér næstum ótrúlegt,
að liðin skuli vera 10 ár síðan við flugum með
Katalína-flugbáti Flugfélags íslands til Skot-
lands. Það þýðir samt ekki að deila við' þann,
sem tímatalinu stjórnar, og verður maður að
sætta sig \dð það, hversu ört tíminn líður. Ann-
ars er ánægjulegt að líta til baka og rifja upp
endurminningarnar frá þessari sögidegu flugferð'.
Oc, þér teljist fyrsti farþeginn í íslenzku milli-
landajlugi?
Já, svo mun víst vera.. Þegar ég frétti af þvf,
að Flugfélag fslands ráðgerði að senda flugvél
til Skotlands, hafði ég strax samband við skrif-
stofu félagsins og pantaði sæti með fyrstu ferð.
I hvaða erindum fáruð þér utan?
Eg fór í viðskiptaerindum. Strax og stríðinu
lauk í Evrópu fóru menn hér heima að hugsa til
hreyfings og leita nýrra viðskiptasambanda er-
lendis. Hafði ég lengi haft í huga að fara til út-
landa þessarra erinda, en ýmissa orsaka vegna
ekki orðið af því. En svo bauðst tækifærið að
komast út á jafn niörgum tímum og það tók
daga að ferðast áður, og fannst mér sjálfsagt að
notfæra mér þessa sérstæðu ferð.
Hvemig gekk svo sjálf flugferðin til Slcot-
lands?
Hún gekk í alla staði vel. Við lögðum upp frá
Skerjafirði snemma morguns þann 11. júlí og
komum til Largs í Skotlandi laust eftir hádegi,
og höfðum við þá verið um 6 tíma á leiðinni.
Það fór ágætlega um mann í flugbátnum og var
ekki laust við', að nokkurs spennings gætti hjá
mér, þar sem þetta var fyrsta flugferðin mín.
Þrír farþegar voru með í ferðinni auk mín, þeir
Hans Þórðarson og Jón Einarsson, kaupsýslu-
menn í Reykjavík, og svo Robert Jack, sem
seinna varð prestur í Grímsey, en mun nú vera
þjónandi hjá íslenzkum söfnuðum vestur í
ICanada.
Hvað gáituð þið svo gert til dægrastyttingar
á leiðinni?
Okkur þótti einna verst að geta. ekki kveikt
106
FRJÁLS VERZLUN