Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 4

Frjáls verslun - 01.07.1959, Síða 4
Jóhann Jakobsson, efnafrœðingur: HÁGNÝTAR RÁNNSÓKNIR Nokkur o/'ð um rannsóknir í þágu iðnaðar og vez'zlunar Upphaf og þróun Starfsemi almennrar rannsóknastofu hér á landi er litlu yngri en endurheimt heimastjórn- ar, og ber það vissulega vitni um þann stórhug og trú á eflingu atvinnulífs í landinu, sem var einkennandi fyrir brautryðjendur þessa tíma- bils. Áratuga- eða frekar aldalangri baráttu var að Ijúka með sigri íslenzks málstaðar. Árangur- inn birtist í bjartsýni og framfaraþrá svo sem skýrast kemur fram í aldamótakveðju Hannesar Hafstein. Tillaga um stofnun efnarannsóknastofu kom fyrst fram á Alþingi árið 1899. Tillögunni var þá eigi sinnt, en hún kom aftur fram og var samþykkt á Alþingi árið 1902. Efnarannsóknastofu þessari var ætlað að framkvæma rannsóknir vegna landbúnaðar og í þágu almennra vörurannsókna. Það virðist þannig þá þegar hafa ríkt skilningur á mikil- vægi almennra vörurannsókna til hagsbóta fyr- ir verzlunarstétt og neytendur. Þegar þetta gerðist var fyrsti íslenzki efna- íræðingurinn nálægt því að ljúka prófi. Þessi maður var Ásgeir Torfason, sem lauk efnafræði- prófi frá Polyteknisk Læreanstalt í Kaupmanna- höfn, árið 1903. Starfsemi efnarannsóknarstofunnar hófst þó eigi fyrr en árið 1906, og var Ásgeir Torfason for- stöðnmaður hennar þar til hann lézt, árið 1916. Þessi starfsemi er því nú rúmlega hálfrar aldar gömul, og lnin liefir haldizt óslitin frá upphafi. Við fráfall Ásgeirs Torfasonar tók Gísli Guð- mundsson, gerlafræðingur, við forstöðu stofunn- ar til ársins 1921, er Trausti Ólafsson, prófessor, tók við. Efnarannsóknastofa ríkisins, en svo var rannsóknastofan kölluð er hér var komið sögu, starfaði undir forstöðu Trausta Ólafssonar til ársins 1937, er hún sameinaðist nýrri stofnun, Atvinnudeild Háskólans, og myndaði ásamt rannsóknastofu fyrir matvælaeftirlit og rann- sóknastofu fyrir mjólkur- og gerlarannsóknir einn hluta Atvinnudeildar Háskólans, Iðnaðar- deildina. Prófessor Trausti Ólafsson hafði síðan með höndum forstöðu Iðnaðardeildarinnar til síðari hluta ársins 1946. Gísli Þorkélsson efna- verkfræðingur var forstöðumaður deildarinnar frá 1946—1954 og greinarhöfundur síðan. Með stofnun Atvinnudeildar Háskólans var stigið stórt spor í framfaraátt á sviði rannsókna í landinu. Starfsemi þeirri, sem þegar var í gangi voru sköpuð stórlega bætt skilyrði í nýrri byggingu á Háskóla-lóðinni og jafnframt voru tvær nýj- fylgjandi, en neita að taka afleiðingum hennar, svo að dæmi sé nefnt. Ég hygg', að ef verkefni stéttasamtaka bein- ast meira inn á þá braut, sem nú hefur verið drepið á, komi betur í Ijós en áður, live marg- slungnir hagsmunir einstaklinga og stétta eru. Og hverjum manni hlýtur að vera ljós nauðsyn þess, að síaukinn samtalcamáttur hagsmunahópa og heildarsamtaka, beinist að jákvæðri kjarabar- áttu, baráttu fyrir því, að efnahagslífinu verði sköpuð skilyrði til framfara með hagkvæmri nýt- ingu vinnuafls og auðlinda landsins, í stað þesíi að rýra jalnvel þjóðarframleiðsluna með bar- áttu sinni um þjóðartekjurnar. Sú nauðsyn hef- ur mönnum aldrei verið Ijósari en nú, og hún má ekki gleymast. 4 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.