Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.07.1959, Blaðsíða 7
Islenzka vinnulöggj öfin Frjáls Verzlun i'ór ]>ess nýlega á leil við nokkra menn, að ]>eir skrifuðu svargrein við spnrningunni: ..Hvaða endurbætur eru æskilegar á íslenzkri v'.nnulöggjöf og á almennri samningagerð milli laun]>ega og vinnúýeitenda?" S\i'»in sem bárust fara hér á eftir. Er ekki að efa, að mönnum l>yki for- vitnilegt að sjá umsagnir uin þetta mikitsverða málefni. Guðni II. Árnason, jormaður Trésmiðafélags Reykjavílcur: Árið mun mega telja merkisár, þó ekki væri nema fyrir það eitt, að þá gengu í gildi lögin um stéttarfélög og vinnudeilur. Ár eftir ár höfðu staðið yfir miklar deilur um lagasetningu þessa. Margir forystumenn verkalýðssamtakanna þá beitt.u sér af alefli gegn þessari laga- setningu, og héldu því fram, að hún myndi hindra alla starfsemi verkalýðs- samtakanna svo stórlega, að þeim yrði í raun og veru gert ómögulegt að ná rétti sínum í samskiptum við atvinnurekendur. Menn kölluðu lögin ýmsum nöfn- um, t.d. „þrælalög‘: o s. frv. Nú licfir þessi löggjöf verið við lýði i full 20 ár. Og reynslan á þessum árum hefir f>rðið sú, að laga- setningin um stéttarfélög og vinnudeilur hefir ekki aðeins gjört mikið gagn heldur er nú almennt litið svo á, að við gætum ekki án þessarar löggjafar verið. llitt cr svo annað mál, að þegar rætt. hefir verið um þá galla, scm á þessum lögum eru (en þeir eru að mínum dómi þó nokkrir), og um nauð- ■v.vnlegar breytingar til bóta, hafa allar slíkar um- ræður strandað af þeirri einföldu ástæðu, að sam- komulag um væntanlegar breytingar hcfir aldrei náðst milli atvinnurekendasamtakanna og verka- lýðssamtakanna. Spurningunni um það, hvaða breytingar ég tel að gera þyrfti á hinni íslenzku vinnulöggjöf vil ég svara á þessa leið: 1. Setja þarf ákveðnari og fyllri ákvæði um skip- un trúnaðarmanna, og mikil nauðsyn er á að kveða skýrar á um réttiudi og vernd þeirru. 2. Breyta þarf ákvæðunum um tiúnaðarn.anna- ráð, þannig að ákveða lágmarkstölu þeirra. er skipa trúnaðarmannaráðin. Sjálfsagt væ. i að trvggja það, að trúnaðar- menn á vinnustöðum ættu allir sæti í viðkom- andi trúnaðarmannaráði. Í5. Það þarf að taka upp í lögin skýr og ótvíræð ákvæði um félagsréttindi manna í hinum ýmsu stéttarfélögum, réttindi þeirra og skyldur. Ég tel höfuðnauðsyn á því að ákveða alveg sér- staklega skýrt og afdráttarlaust, hvernig menn öðlast félagsréttindi eða missa þau. 4. Setja þarf ákvæði, er feli sáttasemjara að birta opinberlega skýrslur um ástand og horfur á vinnumarkaðnum, að því er snertir kaup- og kjarasamninga. 5. Setja þarf ákvæði, er feli sáttasemjaraembætt- inu að birta a. m. k. árlega yfirlit um kaup og kjör hinna ýmsu vinnustétta. 0. Setja þarf ákvæði um, að stjórnarvöldin annist birtingu og útgáfu allra kaup- og kjarasamn- inga. Hannibal Valdimarsson, forseti Al\)ýðusambands tslands: Lögin um stéttarfélög og vinnudeilur eru nú orð- in rúmlega 20 ára gömul. Þau voru alger frum- smíð hér á landi, er þau voru sett sumarið 1938, en hafa yfirleitt gefizt vel í öllum aðalatriðum. GuSni H. Árnason FRJÁLS VERZLUN 7

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.