Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1959, Qupperneq 10

Frjáls verslun - 01.07.1959, Qupperneq 10
nema áður hafi farið fram allsherjaratkvæðagreiðsla í félaginu um uppsögnina, með þátttöku lögákveð- ins hluta skráðra félagsmanna, t. d. % hluta þeirra, og uppsögnin verið samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða. Ennfremur ætti að setja það skilyrði fyrir lögmæti uppsagnar, að gagnaðila bær- ust kröfur um breytingar á gildandi samningum samtímis tilkynningu um uppsögn. Eins og allir vita, geta verkföll og verkbönn haft hinar örlagaríkustu afleiðingar fyrir þjóðfélag- ið. Það virðist því vera lágmarkskrafa fyrir liig- mæti slíkra ákvarðana, að allsherjaratkvæða- greiðsla innan félags hafi óvefengjanlega leitt í ljós, að hreinn meirihluti félagsmanna sé því sam- þykkur, að stofnað sé til vinnustöðvunarinnar. Nú nægir að örfáir trúnaðarmenn fjölmennra félaga komi sér saman um vinnustöðvun, og hljóta allir að sjá, hve stórhættulegt slíkt ofurvald í höndum örfárra manna gæti orðið þjóðfélaginu. Tilkynningarfrestur um vinnustöðvanir er nú ein- ungis 7 dagar. Frestur þessi þyrfti að lengjast t. d. í 14 daga. Aðalregla núgildandi )aga er sú, að náist ekki meirihluti greiddra atkvæða með þátttöku minnst 35% félagsmanna um miðlunartillögu sáttasemjara, skoðast tillagan felld. Þetta virðist mér vera alls ófullnægjandi viljayfirlýsing og álít að til þess að fella svo þýðingarmikla tillögu verði að krefjast að hreinn meirihluti félagsmanna greiði atkvæði gegn henni. Mjög mikil ringulreið hefur verið ráðandi um gildistíma samninga, og hafa bæði atvinnurckendur og raunar þjóðfélagið í heild oftlcga þurft um sárt að binda vegna tíðra vinnustöðvana. Það yrði því að teljast til þjóðþrifa, ef unnt reyndist að lögfesta einhvern dag ársins er allir kjarasamningar skyldu við miðast. Einnig mætti athuga um lágmark gildis- tíma. Banna þyrfti að leggja niður vinnu í verkfalli, þegar slík stöðvun gæti leitt af sér eyðilcggingu á verðmætum, sem skapazt hafa áður en vinnu- stöðvunin kom til framkvæmda. Nægir í því sam- bandi að benda á það stórfellda tjón, sem af því gæti hlotizt, ef vélgæzlumenn í frystihúsum gerðu algert verkfall og neituðu að vernda þau verðmæti, er þeir þegar hefðu tekið greiðslu fyrir að skapa. Gæti slíkt framferði valdið tjóni, sem skipti jafnvel hundruðum milljóna. Margt, margt fleira mætti nefna af æskilegum breytingum á gildandi reglum, en ég hef víst þegar notað ríflega það rúm, sem svari mínu er ætlað og læt hér staðar numið. Þó get ég ekki stillt mig um að bera fraiu enn eina athugasemd. IJndanfarin ár hefur sú venja skapazt við undirskrift kjarasamninga, er gerðir hafa verið fyrir milligöngu sáttasemjara og nefnda, að aðilar eru látnir undirrita skuldbindingar um, að allar sakir á gagnaðila í sambandi við vinnu- stöðvunina, skuli niður falla. Þetta álít ég stór- hættulega venju, sem ætti að lögbanna og þarf það engra skýringa við. Páll Sœmundsson, jormaður Sambands smásöluverzlana: Þeir, sem fylgzt hafa með róti launa- og efnahags- mála hér á landi undanfarin ár, hafa flestir þótzt sjá, að ekki væri allt með felklu í launamálum vor- um, og margt hlyti að standa þar til bóta. Það fyrsta, sem maður stanzar við, þegar um þessi inál er hugsað er það, til hve stutts tíma samið er hverju sinni, og hve lítið samband virðist vera inn- byrðis milli samninga og samningstímabila liinna ýmsu launþegahópa. Mér virðist augljós nauðsyn þess, að launasamningar séu gerðir til mun lengri tíma en nú tíðkast, og að þeir séu jafnframt látnir gilda fyrir svipað eða sama tímabil hjá sem allra flestum starfsgreinum. Auk ]>ess verst maður ekki þeirri hugsun að æskilegt væri, að aðilar hinna fjölmörgu launaflokka færu að átta sig á afstöðunni hver til annars og komast þannig niður á einhvern fastan grundvöll, sem hægt væri að byggja á til frambúðar. Eitt er það í kjarasamningum Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur og kaupmanna sérstaklega, sem vert er að drepa á í sambandi við ofangreinda spurningu. Það eru ákvæði 8. gr. samninganna, þar sem ýtarlega er ákveðið hvenær verzlanir mega opna og hvenær loka skuli, og mun þetta vera al- 10 F U J A L S V E H Z L U N

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.